Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
31. maí 2005 /
Utanríkisráðuneytið
Stofnun stjórnmálasambands

Föstudaginn 27. maí 2005 undirrituðu fastafulltrúar Íslands og Gabon hjá Sameinuðu þjóðunum, sendiherrarnir Hjálmar W. Hannesson og Denis Dengue Réwaka yfirlýsingu um stofnun stjórnmálasambands milli ríkjanna.
