11. desember 2025 /
Innviðaráðuneytið

Reykjanesbraut tvöföld frá Hafnarfirði til Reykjanesbæjar með nýjum vegarkafla

{image.Description}
Við opnun nýs tvöfalds vegarkafla á Reykjanesbraut. Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar, Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og Valdimar Víðisson bæjarstjóri Hafnarfjarðar.

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra opnaði í dag nýjan tvöfaldan vegarkafla á Reykjanesbraut fyrir umferð, á milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns. Þar með er Reykjanesbraut tvöföld alla leið frá Hafnarfirði til Reykjanesbæjar. Auk ráðherra klipptu Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, og Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, á borða af þessu tilefni. 

Umferðin á Reykjanesbraut hefur aukist jafnt og þétt undanfarna áratugi og því var mikilvægt að aðskilja akstursstefnur á veginum til að auka öryggi vegfarenda.

„Aðskilnaður akstursstefna á Reykjanesbraut hefur reynst afar mikilvæg aðgerð við að fækka slysum og auka umferðaröryggi. Tvöföldun brautarinnar greiðir einnig fyrir mikilli umferð á einum fjölfarnasta vegi landsins. Við munum áfram leggja mikla áhersla á að aðskilja akstursstefnur í fjölmörgum samgönguframkvæmdum sem framundan eru,“ segir Eyjólfur Ármannsson.

Framkvæmdir á undan áætlun

Framkvæmdir hafa gengið framar vonum og því er hægt að opna brautina fyrir umferð nú í desember. Einhver frágangur verður unninn í vetur og fram á vor. Verklok eru áætluð í júní 2026.

Verkefnið á vegarkaflanum Reykjanesbraut (41) Krýsuvíkurvegur-Hvassahraun fólst í breikkun Reykjanesbrautar á 5,6 km kafla frá Krýsuvíkurvegi að enda fjögurra akreina brautarinnar á Hrauni vestan Straumsvíkur.

Vegurinn var breikkaður í 2+2 aðskildar akreinar, mislægum vegamótum við álverið í Straumsvík, ISAL, var breytt og útbúnar vegtengingar að Straumi og Álhellu. Byggð voru mislæg vegamót við Rauðamel og útbúnar vegtengingar að Straumsvíkurhöfn og dælu- og hreinsistöð austan Straumsvíkur með undirgöngum. Einnig voru gerð undirgöng fyrir gangandi og hjólandi rétt austan við álverið sem og eftirlitsstaðir fyrir umferðareftirlit beggja megin Reykjanesbrautar, austan við Straumsvík.

Var efnið hjálplegt?