11. nóvember 2026 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

26 verkefni hljóta styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála

{image.Description}
Ráðherra ásamt styrkþegum úr þróunarsjóði innflytjendamála 2026.

Styrkir úr Þróunarsjóði innflytjendamála fyrir árið 2026 voru veittir á viðburðinum Lykill að samfélaginu sem innflytjendaráð stóð fyrir nú í morgun. Alls hlutu 26 verkefni styrk.

Það voru Tomasz Chrapek, formaður innflytjendaráðs, og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, sem afhentu styrkina. Ragnar Þór benti í ávarpi sínu á að verkefnin væru vítt og breitt um landið og tækju á ólíkum þáttum í takt við áherslurnar í ár.

„Með því að virkja mannauðinn sem til er í landinu byggjum við til framtíðar, til þess er Þróunarsjóður innflytjendamála og það gerir það fólk sem fær hér styrk í dag,“ sagði ráðherra.

Auglýst var eftir umsóknum um styrkina í sumar og var áhersla lögð á verkefni sem stuðla að virkri notkun íslensku í daglegu lífi, verkefni sem styðja ungt fólk sem er nýkomið til landsins og foreldra framhaldsskólanema af erlendum uppruna og verkefni sem vinna gegn fordómum, hatursorðræðu og rangfærslum í stafrænu umhverfi.

„Verkefnin sem við fögnum í dag hjálpa okkur að sjá hvert annað skýrar. Þau leiða fólk saman og skapa tækifæri til að læra og taka þátt. Þau sýna að við getum eflt íslenskuna og um leið virt þau tungumál og þá reynslu sem fólk hefur með sér,“ sagði Tomasz Chrapek, formaður innflytjendaráðs, á viðburðinum í morgun.

Alls voru veittir styrkir fyrir 68.580.000 kr. og hlutu eftirfarandi verkefni styrk:

Nafn verkefnis Styrkþegi Upphæð styrks 
Raddir, tengsl og þátttaka Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi 5.000.000 kr. 
Æfum íslensku saman: markaðs- og vitundarherferð GETA Samtök 2.000.000 kr. 
Skapandi vinnustofur: Raddir, handverk og sjálfsmynd Kvennaskólinn í Reykjavík 950.000 kr. 
Framtíð fyrir alla: Draumar, námsval og tækifæri ungmenna af erlendum uppruna í íslensku skólakerfi og á vinnumarkaði Vinafélag Pólska skólans í Reykjavík 1.180.000 kr. 
Íslenska til náms - sjálfsnámsbrú að B2 Mímir-símenntun ehf. 3.500.000 kr. 
Fullorðinsfræðsla og innflytjendur: Leiðin að félagslegri, lýðræðislegri og efnahagslegri þátttöku? Nichole Leigh Mosty 1.400.000 kr. 
Iceland 101 - International Student Transition Programme Stúdentaráð Háskóla Íslands 3.000.000 kr. 
Legal certainty and a good start: what Iceland's Venezuelan arrival cohorts show about early integration Hlöðver Skúli Hákonarson 2.500.000 kr. 
Gefum íslensku séns - um allt land Gefum íslensku séns, félag 3.100.000 kr. 
Dagur í lífi fatlaðs fólks af erlendum uppruna Átak, félag fólks með þroskahömlun 1.700.000 kr. 
Raddir saman VOX Rángárþing 2.000.000 kr. 
Íslenska í hjúkrun Deild erlendra hjúkrunarfræðinga í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga 750.000 kr. 
Stitch & Saga: Threads of Memory, Belonging and Dialogue Najlaa Attaallah 4.000.000 kr. 
Let's keep speaking Icelandic: Supporting communication between first- and second-language speakers of Icelandic Sprettur Háskóli Íslands 4.500.000 kr. 
Málsvari íslenskunnar - íslenska í verki á vinnustöðum og í stofnunum Símenntun á Vesturlandi 4.500.000 kr. 
Voices in Motion Samfélag fyrir Öll 2.000.000 kr. 
Samleiðir - ungt fólk gegn hatursorðræðu og fordómum Austurbrú ses 3.000.000 kr. 
Who We Are Mental Bytes 1.100.000 kr. 
Lesum saman, lestur og íslenska í daglegu lífi Pappírsbátur félagasamtök 3.000.000 kr. 
Orð skipta máli: fræðsla og verkfæri gegn fordómum og hatursorðræðu á netinu AMSIS 4.500.000 kr. 
Stuðningur í þágu félagslegrar aðlögunar og tengslamyndunar barna í fóstri sem komu til landsins á flótta Félag fósturforeldra 1.500.000 kr. 
Brúin - Samþætting, fræðsla og þátttaka Félag Sómala á Íslandi 4.500.000 kr. 
Icelandic over Coffee - Language, Work and Participation Samtök pólskra verkfræðinga á Íslandi 3.000.000 kr. 
Íslenska, félagsleg tengsl og þátttaka - reynsla ungmenna sem eru nýkomin til Íslands og íslenskumælandi ungmenna af tækifærum og hindrunum til íslenskunotkunar og félagslegra tengsla Eva Sigrún Óskarsdóttir 4.000.000 kr. 
Mánuður móðurmáls Amtsbókasafnið á Akureyri 400.000 kr. 
Menntaðar flóttakonur frá Miðausturlöndum: Tungumálaáskoranir á íslenskum vinnumarkaði Félagsvísindasvið Háskóla Íslands 1.500.000 kr. 

 

Var efnið hjálplegt?