Spretthópur kallar eftir sjónarmiðum um tækifæri og áskoranir í utanríkisviðskiptum
Utanríkisráðuneytið hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda umsagnarbeiðni spretthóps um tækifæri og áskoranir í alþjóðaviðskiptamálum þar sem fyrirtækjum og öðrum hagsmunaaðilum gefst kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.
Utanríkisráðherra skipaði spretthópinn 9. október síðastliðinn með það að markmiði að greina stöðu og þróun alþjóðaviðskiptakerfisins með hliðsjón af hagsmunum Íslands. Hlutverk hópsins er meðal annars að greina helstu tækifæri og áskoranir í alþjóðaviðskiptum, kortleggja ný viðskiptatækifæri og móta tillögur að sameiginlegum markmiðum stjórnvalda og atvinnulífs, auk aðgerða sem unnt væri að ráðast í til skemmri og meðallangs tíma.
Vinnan tekur til mikilvægustu viðskiptamarkaða Íslands, bæði nær og fjær, þar á meðal innri markaðar EES, Bandaríkjanna, Bretlands, Kanada og Asíu.
Með beiðninni vill spretthópurinn fá betri innsýn í reynslu, þarfir og áherslur íslenskra fyrirtækja í alþjóðaviðskiptum. Sérstaklega er óskað eftir sjónarmiðum um helstu tækifæri til sóknar á erlendum mörkuðum, áskoranir og hindranir í núverandi viðskiptaumhverfi, bæði innanlands og erlendis, og hvernig stjórnvöld geti betur stutt við hagsmuni íslensks atvinnulífs á alþjóðavettvangi.
Opið er fyrir umsagnir og ábendingar frá almenningi, fyrirtækjum og hagsmunaaðilum. Spretthópurinn hvetur sérstaklega fyrirtæki í útflutningi og aðra hagsmunaaðila til að taka þátt og senda inn umsögn.
Hægt er að nálgast öll skjöl málsins og skila inn umsögn með rafrænum skilríkjum á vef samráðsgáttar stjórnvalda. Umsagnir skulu berast eigi síðar en 3. desember næstkomandi í gegnum samráðsgáttina eða með tölvupósti á netfangið spretthopur@utn.is.