Föstudagspóstur 20. nóvember 2026
Heil og sæl,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, tók þátt í opnunardagskrá Heimsþings kvenleiðtoga, Reykjavík Global Forum, sem fór fram í vikunni. Utanríkisráðuneytið er meðstjórnandi ráðstefnunnar sem nú var haldin í 9 sinn. Yfir 500 kvenleiðtogar frá um 90 ríkjum komu saman til að ræða lýðræði, jafnrétti, frið, efnahagslegt öryggi og alþjóðlegt samstarf.
Mathias Cormann, framkvæmdastjóri Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) fundaði með ráðherra í vikunni, en hann var staddur hér á landi í tengslum við Heimsþing kvenleiðtoga. Á fundi þeirra ræddu þau þróun utanríkisviðskipta og efnahagsmála og helstu viðfangsefni stofnunarinnar um þessar mundir. Cormann sat einnig hádegisverðarfund með spretthópi sem ráðherra skipaði í október sl. og ætlað er að fara yfir þróun mála innan alþjóðaviðskiptakerfisins, stöðu Íslands innan þess og hvaða tækifæri og áskoranir kunni að liggja fyrir í því sambandi.
Þorgerður Katrín birti greinina Rödd smáþjóðar í heimi stórvelda í Vísi í gær, 19. nóvember. Í greinini fjallar ráðherra um m.a. ávinning Íslands af alþjóðasamstarfi og mikilvægi alþjóðalaga, en í gær voru einmitt 80 ár frá því að Ísland gerðist aðildarríki að Sameinuðu þjóðunum.
Í tilefni þess birti ráðuneytið myndband sem Fastanefnd Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York gerði.
Berlín
Það var nóg um að vera hjá sendiráðsteyminu okkar í Berlín í vikunni. Auðunn Atlason, sendiherra Íslands í Berlín, var fulltrúi Íslands á leiðtogafundi bandalags hinna viljugu eða Coalition of the Willing í Berlín í gær. Um er að ræða samstarfsvettvang tæplega 40 ríkja sem styðja við Úkraínu í varnarbaráttu sinni gegn allsherjarinnrás Rússlands.
Steingrímur Sigurgeirsson, varamaður sendiherra, var fulltrúi ráðuneytisins á hátíðarfundi í Bonn í tilefni 30 ára afmælis sérstaks sjóðs Sameinuðu þjóðanna um afnám ofbeldis gegn konum og stúlkum, en Ísland hefur stutt dyggilega við sjóðinn í gegnum tíðina. Í vikunni var haldinn viðburður í sameiginlegu sendiráðsbyggingu Norðurlanda í Berlín, Fellashaus, þar sem rætt var við Yrsa Roca Fannberg, leikstjóra, og Hönnu Björk Valsdóttur, framleiðanda, um nýlegu kvikmynd sína The Ground Beneath our Feet.
Brussel
Freetown
Genf
Í dag fór fram undirbúningsfundur (UPR Pre-Session) fyrir allsherjarúttekt Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttinda á Íslandi en úttektin fer fram í mannréttindaráðinu í janúar 2027.
53. lotu allsherjarúttektar Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttindamála lauk í síðustu viku og tók Ísland virkan þátt í umræðum í lotunni. Hér fjallar fastanefnd Íslands um þátttöku Íslands í lotunni.
Helsinki
Kampala
Kaupmannahöfn
Lilongwe
Tvær uppbyggingarlóðir fyrir grunnskóla í Balaka-héraði voru formlega afhendar verktökum og getur því vinna hafist við uppbyggingu skólanna. Í Namanje mun rísa nýr grunnskóli sem mun veita meira en 1,000 börnum aðgengi að menntun. Í dag þurfa börn á þessu svæði í Namanje að ganga langar vegalengdir til þess eins að sækja sér menntunar og því mun því grunnskólinn hafa veruleg jákvæð áhrif á nærsamfélagið. Grunnskólinn í Mvimbang'oma verður stækkaður og námsaðstaða bætt. Yfir 1,100 grunnskólabörn munu því njóta góðs af bættri menntaaðstöðu.
Sendiráðsteymið fór einnig í vettvangsferðir í vikunni til þess að kynna sér árangur íslenskra þróunarsamvinnuverkefna í Mangochi-héraði og Machinga-héraði.
Madríd
Sendiráð Íslands í Madríd kom að skipulagningu kynningarviðburðar á fyrstu skáldsögu barna- og unglingabókahöfundsins Gunnars Helgasonar sem gefin hefur verið út á spænsku. Viðburðurinn var haldinn í samstarfi við spænska forlagið Gato Sueco Editorial og bókabúðarinnar Grant Librería í Madríd. Kristján Andri Stefánsson, sendiherra, opnaði viðburðinn og bauð gesti velkomna.
Í vikunni setti sendiráðið á laggirnar lítið bókasafn með íslenskum bókum sem þýddar hafa verið á spænsku. Nú geta áhugasamir Spánverjar kíkt í heimsókn og fengið bækur að láni og kynnst íslenskum bókmenntum.
Nýja-Delhi
Benedikt Höskuldsson, sendiherra Íslands á Indlandi, tók þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um sjaldgæfa jarðmálma sem haldin var í Ahmedabad í gær. Sendiherra tók þátt í umræðum á ráðstefnunni og gerði þar grein fyrir sjónarmiðum Íslendinga um mikilvægi alþjóðlegs samstarfs við nýtingu og viðskipti á sjaldgæfum jarðmálmum svo hægt sé m.a. að stuðla að öruggum aðfangakeðjum og sjálfbærum orkuskiptum.
Í vikunni heimsóttu einnig fulltrúar íslenska Sjávarklasans sendiráðið til þess að ræða viðskiptatækifæri fyrir íslensk sjávarútvegsfyrirtæki á Indlandi.
Osló
Sendiráðsteymið okkar í Osló stóð fyrir nokkrum viðburðum í vikunni.
Í gærkvöld var haldinn viðburður í sendiráðsbústaðnum fyrir aðila úr íslensku og norsku atvinnulífi. Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, opnaði viðburðinn og fjallaði um sóknarfæri fyrir íslensk og norsk fyrirtæki. Viðburðurinn var haldinn í samstarfi við Íslandsstofu og Norsk-íslenska viðskiptaráðið.
Opnuð var sýning á listaverkum eftir Sigurborgu Stefánsdóttur í sendiráðsbústaðnum og í tilefni dags íslenskrar tungu buðu sendiherrahjónin, Ragnar Kristjánsson og Þórunn Scheving Elíasdóttir, íslenskum og norskum rithöfundum, bókaútgefendum, þýðendum og öðrum bókaunnendum á viðburð í sendiráðsbústaðnum þar sem fjallað var um íslenskar bókmenntir. Einnig deildi sendiráðið skemmtilegu myndbandi í tengslum við dags íslenskrar tungu.
Í vikunni var Åsmund Aukrust, þróunarmálaráðherra Noregs, sem jafnframt er samstarfsráðherra Norðurlanda, gestur sendiherra í hádegisverði ásamt öðrum sendiherrum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja. Þar ræddu ráðherrann og sendiherrarnir stöðu alþjóðlegrar þróunarsamvinnu, fjölþjóðasamstarf og samstarfs Norðurlanda og Eystrasaltsríkja.
París
- ap arkitektar sýna verkefni sitt Lavaforming á OVNI hátíðinni í Nice (Objectif Vidéo Nice) sem er alþjóðlegur vettvangur fyrir vídeó- og samtímalist.
Marta Jónsdóttir, staðgengill sendiherra, var viðstödd opnun sýningarinnar og fundaði þar með aðstandendum sýningarinnar og öðrum fulltrúum franska menningargeirans.
Róm
Stokkhólmur
Sendiráð Íslands í Stokkhólmi stóð fyrir málstofu í sendiráðsbústaðnum í tengslum við formennsku Íslands í Eystrasaltsráðinu um öryggis- og varnarmál með áherslu á fjölþáttaógnir og áfallaþol Eystrasaltssvæðisins. Elín R. Sigurðardóttir, sendiherra Íslands, og Árni Þór Sigurðsson, formaður embættismannanefndar Eystrasaltsráðsins, buðu gesti velkomna.
Sendiherra birti einnig skemmtilegt myndband í tilefni dags íslenskrar tungu þar sem hún fjallaði um þau orð sem hafa verið valin af Árnastofnun á undanförnum árum sem orð ársins.
Einnig var haldinn viðburður í tengslum við útgáfu nýrrar bókar eftir íslensku listakonuna Erlu S. Haraldsdóttur sem ber heitið Imagine Visionary Animals.
Tókýó
Í síðasta mánuði undirrituðu Reykjavíkurborg og japanska borgin Tama samstarfssamning og er nú orðnar systurborgir. Til þess að fanga þessum tímamótum bjóða nú nokkrir veitingastaðir í Tama upp á íslenskar kræsingar með japönsku ívafi! Hægt er að finna íslenskt lambakjöt, íslenskar sjávarafurðir, pylsur með öllu og meira að segja kleinur á matseðlum veitingastaðanna.
Utanríkismálanefnd Alþingis heimsótti Japan í síðustu viku í boði japanska þingsins í tilefni af 70 ára afmæli stjórnmálasambands Íslands og Japan. Þingmennirnir ræddu við fulltrúa japanska þingsins og annarra stjórnvalda um samskipti ríkjanna, m.a. á sviði jarðvarma, fríverslunar, norðurslóðamála og jafnréttismála. Fundað var með forseta japanska þingsins, vinahópi Íslands í þinginu og utanríkismálanefnd þess. Þingmenirnir heimsóttu friðarsafnið í Hiroshima og hittu einstakling sem lifði af kjarnorkuárásina á borgina. Sendiráðið okkar studdi við heimsókn utanríkismálanefndar til landsins.
Sendiráðið hélt viðburð fyrir aðila úr japanska og íslenska ferðaþjónustugeiranum til þess að stuðla að auknu samstarfi þeirra á milli. Yfir 30 fulltrúar japanskra ferðaþjónustufyrirtækja, hótela og flugfélaga sóttu viðburðinn.