Dansk-íslenskt rannsóknasamstarf eflir hafrannsóknir hér á landi
Stuðningur íslenskra stjórnvalda við Hafrannsóknasetur Margrétar Danadrottningar og Vigdísar Finnbogadóttur hefur eflt hafrannsóknir við Háskóla Íslands svo um munar. Afrakstur samstarfsins var kynntur á lokamálþingi setursins í Veröld – húsi Vigdísar mánudaginn 16. nóvember.
Þar greindi Katherine Richardson, sem fer fyrir setrinu, frá starfseminni en auk þess var fjallað um rannsóknir á tengslum hafs, loftslags, lífríkis og samfélags og þýðingu þeirra fyrir Ísland. Einnig var gerð grein fyrir viðamiklum rannsóknum á meira en 50 stöðuvötnum á Íslandi, m.a. Tjörninni, sem Kurt H. Kjær prófessor við Kaupmannahafnarháskóla leiðir og niðurstöðum þeirra, en rannsóknir á stöðuvötnunum urðu síðar hluti af hafrannsóknarsetrinu.
Íslensk stjórnvöld lögðu samtals 240 milljónir króna til verkefnisins, þar af 100 milljónir úr Rannsóknasjóði í umsýslu Rannís til nýdoktorastyrkja. Framlagið tengdist átaki stjórnvalda til að efla vísindasamstarf Íslands og Danmerkur í tilefni af 75 ára afmæli lýðveldisins. Carlsbergsjóðurinn lagði til 25 milljónir danskra króna, sem samsvaraði um 500 milljónum íslenskra króna þegar til samstarfsins var stofnað.
„Fyrir okkur Íslendinga skiptir miklu að skilja hvernig loftslagsbreytingar hafa áhrif á hafið og lífríki þess – og þetta samstarf hefur eflt rannsóknir við Háskóla Íslands og laðað vísindafólk til starfa hér á landi. Við erum þakklát Carlsbergsjóðnum fyrir rausnarlegt framlag sem hefur, ásamt stuðningi íslenskra stjórnvalda, gert þessar rannsóknir mögulegar. Samstarfið er vitnisburður um vináttu þjóðanna og þann árangur sem við getum náð með sameiginlegu átaki,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
Setrið, sem er þverfaglegt, var stofnað árið 2020 í tilefni af níræðisafmæli Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, og áttræðisafmæli Margrétar Danadrottningar en um er að ræða samstarfsverkefni Háskóla Íslands og Kaupmannahafnarháskóla. Samstarfið byggist á langri sögu vísindasamvinnu Dana og Íslendinga og þeirri vináttu sem Vigdís og Margrét hafa átt þátt í að rækta. Þá hefur Carlsbergsjóðurinn stutt dyggilega við vísindastarf hér á landi allt frá stofnun hans.
Tjörnin í Reykjavík rannsökuð
Fjárstuðningurinn hefur skapað ungu vísindafólki, einkum nýdoktorum, tækifæri til rannsókna og styrkt tengsl íslensks fræðasamfélags við alþjóðlegt rannsóknastarf. Nokkrir erlendir sérfræðingar hafa komið til starfa hér á landi fyrir tilstilli verkefnisins og það hefur ýtt undir frekara alþjóðlegt samstarf. Þannig hefur samstarfið bæði eflt rannsóknir við Háskóla Íslands og byggt upp þekkingu sem nýtist íslensku og alþjóðlegu vísindastarfi til framtíðar.
Rannsóknir setursins hafa meðal annars beinst að setlögum á hafsbotni við Ísland og í íslenskum stöðuvötnum, þar á meðal Tjörninni í Reykjavík. Með greiningu á fornu erfðaefni í setlögum má rekja breytingar á lífríki og skoða tengsl þeirra við loftslagsþróun og umsvif fólks. Á málþinginu var einnig fjallað um breytingar í hafinu umhverfis Ísland, rannsóknir á eitruðum þörungum og notkun sjálfvirkra flotmælitækja við loftslags- og fiskirannsóknir.
Verkefnið hefur skilað mikilvægum vísindalegum niðurstöðum um samspil loftslags og lífríkis í hafi og vötnum og er frekari birtingar þeirra að vænta í vísindatímaritum og á öðrum vettvangi á næstunni. Þekkingin hefur sérstaka þýðingu fyrir Ísland, þar sem hafið og auðlindir þess eru undirstaða atvinnu og byggðar. Samstarfið sýnir jafnframt hvernig sameiginlegur stuðningur stjórnvalda og einkaaðila og samvinna íslenskra og erlendra vísindamanna getur eflt rannsóknir og skapað grundvöll að áframhaldandi vísindasamvinnu. Ný vísindaleg þekking gagnast bæði landi og þjóð og er jafnframt mikilvægt framlag til vísinda á heimsvísu.
Í stýrihópi setursins áttu sæti þau Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, Magnús Tumi Guðmundsson, Auður Hauksdóttir fyrir Íslands hönd og Katherine Richardson, Kurt H. Kjær og Flemming Besenbacher fyrir hönd Danmerkur.