Umhverfismat á stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku til kynningar í Samráðsgátt
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett drög að umhverfismati á stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku til kynningar í Samráðsgátt stjórnvalda. Drög að stefnunni hafa þegar hlotið kynningu í Samráðsgátt og var við vinnslu umhverfismatsins tekið mið af þeim umsögnum og athugasemdum sem þá bárust.
Samkvæmt lögum nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana skal stefnan sæta umhverfismati, þar sem hún markar stefnu um leyfisveitingar til framkvæmda sem falla undir lögin. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur umsjón með matinu, sem unnið var með aðstoð VSÓ ráðgjafar.
Markmið stefnu um uppbyggingu flutningskerfis raforku er að tryggja að flutningskerfið geti mætt aukinni raforkuþörf, bætt afhendingaröryggi og stutt við orkuskipti og atvinnuuppbyggingu. Meðal áherslna er aukin flutningsgeta milli landshluta, styrking raforkukerfisins á Vestfjörðum og Norðausturlandi og að uppbygging raforkuvinnslu, flutningskerfis og notkunar verði betur samhæfð. Lögð er áhersla á að í þeim tilfellum þar sem óhjákvæmilegt er að flutningslínur fari yfir hálendi verði þeim haldið við ytri mörk miðhálendisins.
Er það niðurstaða umhverfismatsins sem nú er til kynningar að stefnan geti haft jákvæð áhrif á samfélag og atvinnulíf með bættu afhendingaröryggi og sterkari raforkuinnviðum. Bætt flutningsgeta geti jafnframt stutt við orkuskipti og haft jákvæð áhrif á loftslag. Á móti getur uppbygging flutningsmannvirkja haft takmörkuð neikvæð áhrif, meðal annars á lífríki, vatn, landslag og víðerni. Umfang þeirra áhrifa ræðst að verulegu leyti af staðsetningu og útfærslu einstakra framkvæmda.
„Við þurfum að styrkja flutningskerfið svo fólk og fyrirtæki um allt land hafi öruggan aðgang að raforku og samfélög sitji ekki eftir í orkuskiptunum. En hraðari uppbygging má ekki þýða að við gefum afslátt af náttúruvernd eða vönduðu samráði. Umhverfismatið hjálpar okkur að vega þessa hagsmuni saman og vanda þær ákvarðanir sem fram undan eru,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Athygli er vakin á að umsagnarfrestur í Samráðsgátt er til og með 1. janúar 2027.
Umhverfismat á drögum að stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku