Norðurlönd og Eystrasaltsríki vilja efla stafrænt sjálfstæði
Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin ætla að efla stafrænt sjálfstæði svæðisins fram til ársins 2030. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu ráðherra stafrænna mála, sem samþykkt var á fundi þeirra í Kaupmannahöfn á dögunum. Sigríður Valgeirsdóttir skrifstofustjóri nýsköpunar,- rannsókna og starfrænnamála í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu sótti fundinn fyrir Íslands hönd.
Ríkin hafa verið í fararbroddi í þróun og innleiðingu stafrænnar tækni, sem hefur stutt við framleiðni og nýsköpun. Ráðherrarnir telja þó að svæðið sé orðið of háð fáum stórum tæknifyrirtækjum og vilja því skoða leiðir til að styrkja eigin stafræna getu og innviði án þess að hægja á nýsköpun eða leggja óþarfa byrðar á fyrirtæki.
Í yfirlýsingunni er lögð áhersla á aukið samstarf um innkaup á skýjaþjónustu og öryggi sæstrengja. Fjárfestingum á að beina að stafrænum innviðum og fjármögnun á næstu árum mun í auknum mæli að renna til sameiginlegra verkefna sem styrkja samkeppnishæfni og viðnámsþrótt ríkjanna.
Samhliða ráðherrafundinum var rætt um gervigreind á New Nordics AI High-Level Forum, þar sem fulltrúar stjórnvalda, atvinnulífs, háskóla og borgaralegs samfélags ræddu hvernig gervigreind getur eflt samkeppnishæfni, velferð og stafrænt sjálfstæði. New Nordics AI er samstarfsvettvangur svæðisins um gervigreind, stofnaður með stuðningi Norrænu ráðherranefndarinnar. Á fundinum var Eistlandi, Lettlandi og Litháen formlega boðið til samstarfs á vettvangnum.