Hjúkrunarheimilið Hlévangur opnað eftir endurbætur
Hjúkrunarheimilið Hlévangur í Reykjanesbæ hefur verið tekið í notkun á ný eftir gagngerar endurbætur. Haldið var upp á opnun heimilisins í gær þar sem gestum og gangandi gafst kostur á að skoða húsnæðið að loknum vel heppnuðum framkvæmdum. Þar eru 24 hjúkrunarrými og fyrstu íbúarnir eru þegar fluttir inn. Húsið er á tveimur hæðum með skjólríkum inngarði. Öll rými eru einbýli með sérbaðherbergi og á báðum hæðum eru bjartar setustofur fyrir íbúana.
Hlévangi var lokað um síðustu áramót þegar nýtt hjúkrunarheimili Hrafnistu fyrir 80 íbúa var opnað við Nesvelli í Reykjanesbæ. Fljótlega var farið að skoða kosti þess að opna Hlévang tímabundið að nýju, ekki síst til að bregðast við alvarlegri stöðu á bráðamóttöku Landspítala vegna skorts á hjúkrunarrýmum fyrir einstaklinga sem á þurftu að halda að lokinni meðferð á spítalanum.
Húsnæði Hlévangs er í eigu Reykjanesbæjar. Að undangengnum viðræðum heilbrigðisráðuneytis, félags- og húsnæðismálaráðuneytis og fjármálaráðuneytis var ákveðið að leita samninga við Reykjanesbæ um leigu á húsnæðinu. Samningar gengu greiðlega, Reykjanesbær annaðist endurbætur húsnæðisins í góðu samstarfi við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sem jafnframt tók að sér að reka heimilið.
Í ávarpi við opnun Hlévangs ræddi Alma D. Möller heilbrigðisráðherra um þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa ráðist í til að mæta uppsafnaðri innviðaskuld sem kallað hefur á skjótar lausnir, auk mikillar uppbyggingar á næstu árum. Inga Sæland, sem fer fyrir uppbyggingu hjúkrunarrýma, lagði áherslu á mikilvægi þess að taka utan um elsta aldurshópinn og veita fólki kærleik, öryggi og hlýju. Opnun Hlévangs hefði gengið afar vel og væri enn eitt stóra skrefið í þjóðarátaki um fjölgun hjúkrunarrýma.
Mikil fjölgun hjúkrunarrýma
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er rík áhersla lögð á málefni eldra fólks. Gert er ráð fyrir að ríflega 1.500 hjúkrunarrými verði tekin í notkun fyrir lok árs 2030 – þar af 1.355 ný rými.
- Þann 19. mars 2025 var tilkynnt að samkomulag væri í höfn milli ríkis og sveitarfélaga um ábyrgðarskiptingu á uppbyggingu hjúkrunarhei….
- Í byrjun maí 2025 var fyrsta skóflustungan tekin að nýju hjúkrunarheimili í Ási í Hveragerði.
- Nokkrum dögum síðar mundaði þáverandi félags- og húsnæðismálaráðherra sleggju við Nauthólsveg í Reykjavík en þar verður ráðist í gagngerar endurbætur á húsnæði sem breytt verður í hjúkrunarheimili.
- Undir lok maímánaðar 2025 var ráðherra á Akureyri vegna samkomulags um nýtt hjúkrunarheimili í Þursaholti.
- Sama dag fór ráðherra á Húsavík en þar hefur kyrrstaða nú verið rofin um hjúkrunarheimili sem beðið hefur verið eftir svo árum skiptir.
- Þann 16. júní 2025 var samkomulagið sem náðist milli ríkis og sveitarfélaga í mars fest í lög.
- Þann 1. júlí 2025 var nýtt samkomulag undirritað um þreföldun hjúkrunarrýma í Mosfellsbæ.
- Þremur dögum síðar var skóflustunga tekin að stækkun hjúkrunarheimilisins í Sóltúni í Reykjavík.
- Nýtt hjúkrunarheimili í Boðaþingi í Kópavogi var opnað þann 2. september 2025, að viðstöddum ráðherrum, bæjarstjóra og fleirum.
- Þann 8. janúar 2026 var viljayfirlýsing undirrituð um uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis í Hafnarfirði.
- Nýtt hjúkrunarheimili var opnað við Nesvelli í Reykjanesbæ þann 15. janúar 2026 að viðstöddum ráðherrum, bæjarstjóra og fleirum.
- Í mars síðastliðinn var hjúkrunarheimili opnað í Urðarhvarfi í Kópavogi með 100 rýmum sem notuð eru sem skammtímahjúkrunarrými.
- Í mars síðastliðnum var uppfært samkomulag undirritað um byggingu nýs hjúkrunarheimilis við Mosaveg í Reykjavík.
- Í mars var sömuleiðis undirritað samkomulag um nýtt hjúkrunarrými við Vetrarmýri í Garðabæ með 100 hjúkrunarrýmum.
- Þann 4. maí var samkomulag undirritað um nýbyggingu sem mun hýsa nýtt hjúkrunarheimili og heilsugæslustöð í Vík í Mýrdal.
- Um miðjan júní var tilkynnt að tilboð Reita hafi verið valið hagstæðast af Framkvæmdasýslunni-Ríkiseignum vegna uppbyggingar hjúkr… fyrir 140 íbúa á Akureyri.
- Síðar í sama mánuði var tilkynnt að nýtt hjúkrunarheimili með 90 rýmum verði opnað við Keilisbraut í Reykjanesbæ.
- Í júní var einnig undirrituð viljayfirlýsing um viðbyggingu við hjúkrunarheimilið Höfða á Akranesi með 60 nýjum hjúkrunarrýmum.
- Í ágúst var nýtt hjúkrunarheimili við Skjólgarð á Höfn í Hornafirði vígt.