5. nóvember 2026 /
Atvinnuvegaráðuneytið

Lög um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr endurskoðuð

{image.Description}
DL

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur skipað starfshóp um endurskoðun á lögum um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr.

Hlutverk hópsins er að vinna frumvarp til nýrra laga um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, m.a. með hliðsjón af ráðleggingum sem fram koma í skýrslum Alþjóðadýraheilbrigðisstofnunarinnar (WOAH) og Skýrslu starfshóps um endurskoðun löggjafar um dýrasjúkdóma og dýralækna.

Til að dýraeigendur geti uppfyllt skyldur sínar gagnvart læknishjálp fyrir dýr sín eða aflífun verða einkum rýnd þau atriði sem snúa að reglum um starfsleyfi, lágmarks dýralæknaþjónustu og fyrirkomulag vakta á landsvísu. Jafnframt mun hópurinn endurskoða reglur um stjórnskipulag málaflokksins þannig að sjúkdómsgreining og hröð viðbrögð við alvarlegum dýrasjúkdómum séu tryggð og boðleiðir skýrar.

Rebekka Hilmarsdóttir, lögfræðingur í atvinnuvegaráðuneytinu er formaður starfshópsins sem þannig er skipaður:

  • Sigurborg Daðadóttir , sérfræðingur í atvinnuvegaráðuneytinu
  • Kristín Ösp Jónsdóttir, lögfræðingur í atvinnuvegaráðuneytinu
  • Bára Eyfjörð Heimisdóttur, formaður Dýralæknafélags Íslands
  • Þóra Jóhanna Jónasdóttir, yfirdýralæknir
  • Charlotta Oddsdóttir, dýralæknir

Áformað er að starfshópurinn taki til starfa í nóvember 2026 og skili tillögu að endurskoðuðum lögum um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr sem mögulega verði unnt að leggja fram á Alþingi  haustið 2027.

Var efnið hjálplegt?