5. nóvember 2026 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Heilbrigðisráðuneytið

Stefnt að nýrri aðgerðaáætlun Gott að eldast fyrir 2028-2032

{image.Description}
Af haustfundi Gott að eldast. Mynd: Róbert Ragnarsson.

Félags- og húsnæðismálaráðherra og heilbrigðisráðherra hafa sammælst um að halda áfram innleiðingu aðgerðaáætlunarinnar Gott að eldast og byggja á þeim árangri sem þegar hefur náðst í þróun þjónustu við eldra fólk. Stefnt er að því að móta nýja fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2028-2032 þar sem lögð verður áhersla á áframhaldandi samþættingu þjónustu, aukið samstarf ríkis og sveitarfélaga, nýsköpun og hagkvæma nýtingu fjármuna. Markmiðið er að eldra fólk geti lifað sjálfstæðu og innihaldsríku lífi og búið á eigin heimili eins lengi og kostur er.

Þetta kom fram á haustdegi Gott að eldast sem var haldinn í gær þar sem um 100 manns af öllu landinu komu saman til að bera saman bækur sínar og fræðast um öldrunarmál.

Verkefnið Gott að eldast byggir á aðgerðaáætlun sem samþykkt var á Alþingi árið 2023. Hún felur í sér 19 aðgerðir sem snúa meðal annars að samþættingu þjónustu, virkni og heilsueflingu eldra fólks, miðlun upplýsinga, þróun og nýsköpun og húsnæðismálum.

„Með Gott að eldast höfum við stigið mikilvæg skref í að tengja betur saman félags- og heilbrigðisþjónustu og þróa þjónustu sem tekur mið af þörfum hvers og eins. Sá árangur sem þegar hefur náðst sýnir okkur að við erum á réttri leið. Nú ætlum við að byggja áfram á þeirri reynslu, efla samstarf ríkis og sveitarfélaga og tryggja að þjónustan þróist í takt við fjölgun eldra fólks á komandi árum,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.

„Það að er ánægjulegt að sjá hversu mikið hefur áunnist á síðustu árum,“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra. „Samfélagið á að styðja við þá réttmætu kröfu að fá að eldast heima hjá okkur, en ekki standa í vegi fyrir því. Þannig er kjarninn í Gott að eldast samþætting heimahjúkrunar og félagslegs stuðnings heima fyrir. Tvö kerfi, hönd í hönd, fyrir hvern einstakling sem þarf á aðstoð að halda.“

Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra, ásamt stjórn og starfsfólki Gott að eldast.

Samþætt þjónusta nær til tæps helmings eldra fólks

Alls taka 22 sveitarfélög á 16 svæðum og sex heilbrigðisumdæmi þátt í þróunarverkefnum Gott að eldast. Samstarf sveitarfélaga og heilbrigðisstofnana hefur aukist verulega og víða hefur verið komið á sameiginlegu verklagi við mat á þjónustuþörf eldra fólks. Í sex sveitarfélögum hefur verið gengið skrefinu lengra með samningum um samþættan rekstur þjónustunnar. Það er í Húnaþingi vestra, Dalvík, Vesturbyggð, Mosfellsbæ, Hveragerði og Árborg.

Samkvæmt mati Miðstöðvar í öldrunarfræðum við Háskóla Íslands, sem var kynnt á haustfundinum, hefur innleiðing samþættrar heimaþjónustu almennt gengið mjög vel.

Í matinu kemur fram að aukið samstarf fagstétta og samræming þjónustu hafi þegar skilað jákvæðum breytingum fyrir bæði þjónustuþega og starfsfólk. Jafnframt er bent á mikilvægi þess að halda áfram innleiðingunni, nýta reynslu þróunarverkefnanna og styðja sveitarfélög og heilbrigðisstofnanir við frekari samþættingu.

Aukin áhersla á endurhæfingu og sjálfstæða búsetu

Ein af megináherslum Gott að eldast er að efla heimaendurhæfingu og stuðla að breyttri nálgun í þjónustu við eldra fólk. Í stað þess að þjónustan felist fyrst og fremst í að taka yfir dagleg verkefni er lögð aukin áhersla á að styðja fólk til að viðhalda og efla eigin færni.

Þar gegna meðal annars iðjuþjálfar og sjúkraþjálfarar mikilvægu hlutverki, í samstarfi við hjúkrunarfræðinga, félagsráðgjafa, sjúkraliða og annað starfsfólk.

Heimaendurhæfing getur falist í líkamlegri þjálfun, aðstoð við að tileinka sér nýja færni eða nýtingu tæknilausna sem auðvelda daglegt líf. Markmiðið er að fólk geti áfram sinnt sem flestum verkefnum sjálft, viðhaldið sjálfstæði sínu og notið aukinna lífsgæða.

Samhliða þessu hefur dagdvalarrýmum fjölgað um meira en eitt hundrað frá því að innleiðing aðgerðaáætlunarinnar hófst. Dagdvöl, félagsstarf og endurhæfing eru mikilvægir þættir í því að styðja eldra fólk til sjálfstæðrar búsetu og draga úr þörf fyrir umfangsmeiri þjónustu.

Ný fimm ára áætlun byggð á reynslu og árangri

Á næstu tíu árum er gert ráð fyrir að landsmönnum 80 ára og eldri fjölgi um 44%, samanborið við um 18% fjölgun í öðrum aldurshópum. Þessi þróun kallar á áframhaldandi breytingar á skipulagi heilbrigðis- og velferðarþjónustu og aukna áherslu á forvarnir, endurhæfingu og samþætta þjónustu.

Að sögn Regínu Ásvaldsdóttur verkefnisstjóra verður lögð áhersla á að nýta þá þekkingu og reynslu sem hefur skapast við innleiðingu Gott að eldast við undirbúning nýrrar aðgerðaáætlunar fyrir árin 2028-2032. ,,Við munum halda áfram þéttu samstarfi við sveitarfélögin og stefnum að því að fjölga þeim sem skrifa undir samning um samrekstur heimahjúkrunar og félagslegs stuðnings,“ segir Regína. ,,Þá er mikilvægt að innleiða tæknilausnir sem auðvelda þjónustuna og forgangsraða verkefnum með hliðsjón af árangri og kostnaðarhagkvæmni.“

Jafnframt verður unnið að aðgerða- og kostnaðaráætlun til næstu fimm ára sem tekur mið af fyrirsjáanlegri fjölgun eldra fólks og breyttum þörfum þess.

 

Mikill metnaður fyrir bættri þjónustu við eldra fólk

Haustfundur Gott að eldast var fjölsóttur og endurspeglaði þann mikla áhuga sem er á áframhaldandi þróun þjónustu við eldra fólk.

Á fundinum kom skýrt fram hversu mikill mannauður, þekking og hugmyndaauðgi býr meðal starfsfólks og stjórnenda í félags- og heilbrigðisþjónustu um allt land. Þar starfar öflugt fólk sem vinnur ötullega á hverjum degi að því að þróa og bæta þjónustuna, finna nýjar lausnir og mæta þörfum eldra fólks með sem bestum hætti.

Sú reynsla, þekking og eldmóður sem er til staðar í þjónustunni verður mikilvægur grunnur að áframhaldandi innleiðingu Gott að eldast og mótun nýrrar aðgerðaáætlunar fyrir árin 2028-2032.

Var efnið hjálplegt?