ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en fimm ára.
12. febrúar 2009
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Kynntu þér styrkjaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir menningu og listir

- Ert þú listamaður eða vinnur þú á annan hátt að menningu og listum?
- Viltu fá alþjóðlegan vinkil á verkefnin þín?
- Viltu mynda ný tengsl?
- Ertu með áhugavert verkefni?
Ef þú svarar þessum spurningum játandi mun menningaráætlun Norrænu ráðherranefndarinnar líklega vekja áhuga þinn. Þá stendur Norræna styrkjaáætlunin fyrir kynningarfundi Norrænu menningargáttarinnar í Norræna húsinu.
Bergljót Jónsdóttir forstjóri segir frá þeim möguleikum sem Norræna styrkjaáætlunin býður upp á og gefur góð ráð til umsækjenda. Eftir stutta kynningu verður gerð grein fyrir verkefni sem Menningargáttin hefur styrkt. Síðan fara fram pallborðsumræður með; Ágústi Guðmundsyni, Bergljótu Jónsdóttur, Hávari Sigurjónssyni, Ragnheiði Tryggvadóttur, Signýju Ormarsdóttur og Þuríði Helgu Kristjánsdóttur.
- Mánudaginn 16. febrúar 2009 kl 13:00 í Norræna húsinu, Sturlugötu 5, 101 Reykjavík.
- Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á thuridur@nordice.is fyrir 14.2.2009.
- Nánari upplýsingar veitir info@kknord.org eða thuridur@nordice.is.
- www.kulturkontaktnord.org