ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en fimm ára.
12. september 2011
/
Atvinnuvegaráðuneytið
Vara forsætisráðherra Víetnam í heimskókn
Fimmtudaginn 8. september 2011, tók sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Jón Bjarnason á móti Mr. Hoang Trung Hai, varaforsætisráðherra Víetnam. Ráðherrarnir áttu klukkustundar fund ásamt embættismönnum beggja þjóðanna þar sem skipst var á upplýsingum um sjávarútveg og landbúnað og rædd önnur málefni sem þjóðirnar varða.