19. nóvember 2026 /

Stjórn WFP fundar í Róm

Stjórnarfundur Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna, WFP - World Food Programme, fór fram dagana 16-18. nóvember í höfuðstöðvunum í Róm. Að venju sameinuðust Norðurlöndin um yfirlýsingu við opnun fundarins og kom það nú í hlut Íslands að flytja hana.

Norðurlöndin buðu nýjan forstjóra stofnunarinnar, Bandaríkjamanninn Luke Lindberg, velkominn til starfa og þökkuðu Svíanum Carl Skau fyrir framúrskarandi vel unnin störf.

Í yfirlýsingunni voru áréttuð þau gildi sem Norðurlöndin leggja til grundvallar mannúðaraðstoð: virðing fyrir alþjóðalögum, mannréttindum, kynjajafnrétti og viðurkenning og ábyrgð gagnvart þeim sem aðstoðin er ætluð. Þau undirstrika tvíþætt hlutverk stofnunarinnar sem varða annars vegar neyðaraðstoð og hins vegar uppbyggingu á viðnámsþrótti samfélaga, og mikilvægi þess að unnið sé gegn neikvæðum áhrifum loftlagsbreytinga. Áfram eru það fyrst og fremst geópólitísk togstreita, vopnuð átök og umhverfisþættir sem valda aukningu hungurs og fæðuóöryggis um víða veröld.

Norðurlöndin gagnrýndu framferði Rússlands í Svartahafi. Tálmanir á skipaflutningum á korni hafa bein áhrif á verð matvæla um heim allan og bitna harðast á þeir sem síst skyldi, auk þess að auka kostnað við matvælaaðstoð.

Vísað var til vettvangsferðar fulltrúa Norðurlandanna til Sýrlands og Libanon fyrir skemmstu og undirstrikað mikilvægi þess að átök stigmagnist ekki á svæðinu ef framhald á að vera á hægfara bata.

Í yfirlýsingunni var hvatt til breytinga á verklagi og samstarfi alþjóðastofnana; bæði þeirra sem staðsettar eru í Róm og sinna eðlisskyldum verkefnum, og hinna fjölmörgu stofnana Sameinuðu þjóðanna, sem verði að vinna miklu betur saman að vel skilgreindum og sameiginlegum árangursmarkmiðum og niðurstöðum.

Loks hvöttu Norðurlöndin önnur ríki, aðra bakhjarla WFP, til að halda áfram stuðningi við stofnunina á tímum þegar framlög til fjölþjóðlegrar mannúðaraðstoðar fara lækkandi. Öll veita Norðurlöndin að langmestu leyti óbundin og óeyrnamerkt framlög til WFP.

Guðmundur Árnason, sendiherra og fastafulltrúi Íslands hjá WFP flutti ávarp Norðurlandanna að þessu sinni.

Var efnið hjálplegt?