03. okt. 2026Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi, Sameinuðu þjóðirnar, Mannréttindi og jafnrétti
Reynsla Íslands í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi rædd á fundi SÞ
Réttlæti án hindrana var yfirskrift hliðarviðburðar íslenskra stjórnvalda í samvinnu við stjórnvöld í Þýskalandi og Kenía og Kvennanefnd Sameinuðu þjóðanna (UN Women) á Kvennanefndarfundi Sameinuðu þjóðanna CSW70 í dag. Fjallað var um sameiginlegar áskoranir þjóðanna í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi, lærdóm þeirra af því að nýta ólíkar leiðir í þeirri baráttu, forvarnir gegn kynbundnu ofbeldi, stuðning við þolendur og árangur af alþjóðlegu samstarfi.