02. jún. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Nýsköpun, Gervigreind
Bætt þjónusta hins opinbera með ábyrgri notkun gervigreindar
Umræða um gervigreind og notkun tækninnar verður æ meira áberandi hér á landi og notkun opinberra aðila á tækni sem nýtir gervigreind hefur stóraukist á fáum árum. Samkvæmt Nýsköpunarvoginni, könnun fjármála- og efnahagsráðuneytisins frá nóvember 2023, nýta 43% þeirra ríkisaðila sem svöruðu könnuninni gervigreind og 80% sjá möguleika til umbóta í starfsemi með notkun gervigreindar.