26. maí 2025Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið
Úrskurður nr. 5/2025
Útdráttur: Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að synja kæranda um starfsleyfi sem sálfræðingur. Kærandi byggði á því að hún ætti rétt á starfsleyfi á grundvelli reglugerðar nr. 510/2020 þar sem hún hefði lokið námi og starfað sem sálfræðingur í Hollandi. Embætti landlæknis taldi að meta ætti nám hennar samkvæmt reglugerð nr. 1130/2012, sem gildir um starfsleyfi sálfræðinga á Íslandi, og synjaði umsókn hennar, m.a. á grundvelli umsagnar frá sálfræðideild Háskóla Íslands. Í niðurstöðu ráðuneytisins kom fram að þegar metið væri hvort einstaklingur ætti rétt á viðurkenningu á faglegri menntun eða hæfi samkvæmt reglugerð nr. 510/2020 þyrfti að ganga úr skugga um hvort um sama starf væri að ræða, af gögnum málsins mætti ráða að embætti landlæknis hefði ekki gert það.…