Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Mannréttindi og jafnrétti
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 601–650 af 808
    Raða eftir:
    09. maí 2018Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Istanbúlsamningurinn fullgildur á Íslandi

    Fulltrúar ýmissa félagasamtaka, þingmenn og ýmsir fleiri komu saman í dag í tilefni af fullgildingu Istanbúlsamningsins.

    09. maí 2018Menningarmál, Mannréttindi og jafnrétti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Yfirlýsing menningarmálaráðherra Norðurlanda í kjölfar #églíka-byltingarinnar

    Menningarmálaráðherrar Norðurlanda skrifuðu í dag undir sameiginlega yfirlýsingu um aðgerðir vegna #églíka-byltingarinnar.

    08. maí 2018Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Ráðherranefnd í jafnréttismálum fundar með sendinefnd á vegum OECD

    Ráðherranefnd í jafnréttismálum fundaði með sendinefnd á vegum Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) í morgun.

    03. maí 2018Menningarmál, Menntamál, Mannréttindi og jafnrétti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Þroskahjálp og framtíðin

    Á fundi mennta- og menningarmálaráðherra með fulltrúum Þroskahjálpar var rætt um réttindi og tækifæri fatlaðs fólks til menntunar og þátttöku í menningarlífinu.

    27. apr. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Félags- og fjölskyldumál

    Margvíslegar réttarbætur fyrir fatlað fólk staðfestar með lögum frá Alþingi

    Alþingi hefur samþykkt heildarlög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og lög um breytingu á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Lagabreytingarnar fela m.a. í sér lögfestingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA).

    27. apr. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir UNICEF um fimm milljónir kr. vegna útgáfu skýrslu um efnislega stöðu barna á Íslandi

    Ríkisstjórnin mun veita fimm milljónir kr. af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar til þess að styrkja útgáfu skýrslu um stöðu efnislegs skorts barna á Íslandi, sem UNICEF á Íslandi mun vinna í samstarfi við Hagstofu Íslands.

    27. apr. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti

    Fjölmenn rakararastofuráðstefna undir forystu Íslands og Danmerkur á Evrópuráðsþinginu í gær

    Ísland og Danmörk stóðu að fjölmennum rakarastofuviðburði fyrir Evrópuráðið og Evrópuráðsþingið í gær. Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra opnaði viðburðinn og tók þátt í pallborðsumræðum um kynjamismunun á opinberum vettvangi ásamt Arnold Skribsted fastafulltrúa Danmerkur hjá Evrópuráðinu, Thorbjørn Jagland aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðsins og Rósu Björk Brynjólfsdóttur, þingmanni og varaforseta Evrópuráðsþingsins.

    26. apr. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti

    Ráðherra afhenti aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðsins fullgildingarskjal Istanbúlsamningsins

    Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, fundaði í dag með Thorbjørn Jagland aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðsins. Á fundinum afhenti ráðherra staðfestingarskjal um fullgildingu Íslands á samningi Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi.

    25. apr. 2018Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Mannréttindi og jafnrétti

    Ísland hlýtur alþjóðlega viðurkenningu fyrir brautryðjendastarf í jafnréttismálum

    Tilkynnt var í gærkvöldi að Ísland hlyti sérstaka viðurkenningu fyrir brautryðjandastarf í þágu jafnréttis kynjanna, undir yfirskriftinni Framtíð karlmennskunnar (Future of Manhood). Það eru kanadísku samtökin Promundo sem veita viðurkenninguna.

    25. apr. 2018Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið

    Dómsmálaráðherra sótti Kaupmannahafnarráðstefnu Evrópuráðsins

    Dagana 11-13. apríl sótti Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra ráðherrafund Evrópuráðsins í Kaupmannahöfn en Danir fara nú með forystu innan þess. Á ráðstefnunni samþykktu dómsmálaráðherrar allra aðildarríkja Evrópuráðsins, þar á meðal Ísland, yfirlýsingu um afstöðu þeirra til Mannréttindasáttmála Evrópu og stöðu Mannréttindadómstóls Evrópu.

    18. apr. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Félags- og fjölskyldumál

    Starfshópur um fjölbreyttari úrræði fyrir gerendur í ofbeldismálum

    Félags- og jafnréttismálaráðherra hefur skipað starfshóp sem meðal annars er falið að kortleggja og skilgreina þjónustuþörf fyrir gerendur í ofbeldismálum og þá sem eru í hættu á að fremja ofbeldisbrot. Hópnum er ætlað að skila ráðherra niðurstöðum sínum 1. nóvember næstkomandi.

    17. apr. 2018Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Utanríkisráðherra á jafnréttisráðstefnu í Svíþjóð

    Mikilvægt hlutverk kvenna í friðarumleitunum og þáttur karlmanna í jafnréttisumræðunni var á meðal þess sem Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, ræddi á jafnréttisráðstefnu í Stokkhólmi sem haldin var í boði utanríkisráðherra Svíþjóðar.

    11. apr. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Norrænt samstarf

    Unnið að samnorrænni jafnlaunavottun

    Norræna velferðarnefndin vinnur að því að koma á fót samnorrænni jafnlaunavottun að íslenskri fyrirmynd sem ætlað er að loka launabilinu milli kvenna og karla. Munurinn mælist nú að jafnaði um 15% á Norðurlöndunum. Nefndin fundaði á Akureyri í gær og heimsótti m.a. Jafnréttisstofu.

    10. apr. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Umhverfi og náttúruvernd, Lög og réttur

    Húsfyllir á málþingi um Árósasamninginn

    Árósasamninginn og reynslan af honum þau sjö ár sem samningurinn hefur verið í gildi hér á landi var til umræðu á málþingi sem umhverfis- og auðlindaráðuneytið stóð fyrir á dögunum. Húsfyllir var á málþinginu en aðalgestur þess var formaður eftirlitsnefndar Árósasamningsins.

    06. apr. 2018Dómsmálaráðuneytið, Menningarmál, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Samtökin ´78 fá styrk frá ríkisstjórn Íslands í tilefni af 40 ára afmæli samtakanna

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun, að tillögu Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra, að veita 3,5 millj. kr. framlag af sameiginlegu ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar í verkefni á vegum Samtakanna´78 í tilefni af 40 ára afmæli samtakanna.

    03. apr. 2018Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Mannréttindi, Utanríkisráðuneytið

    Ísland aðili að Equal Rights Coalition

    Equal Rights Coalition er hópur ríkja sem vinna saman að því að tryggja að hinsegin fólk (LGBTI) hvarvetna fái notið allra mannréttinda.

    23. mar. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti

    Starfshópur undirbýr endurskoðun laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla

    Félags- og jafnréttismálaráðherra hefur skipað starfshóp sérfræðinga Stjórnarráðsins og Jafnréttisstofu sem hefur það meginhlutverk að vinna að undirbúningi að endurskoðun laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, og gera úttekt á stjórnsýslu jafnréttismála í alþjóðlegum samanburði.

    22. mar. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti

    Hlutföll kynja í nefndum velferðarráðuneytisins

    Velferðarráðuneytið birtir hér með upplýsingar um hlutföll kynjanna í nefndum sem skipaðar eru á vegum ráðherra velferðarráðuneytisins, líkt og skylt er samkvæmt jafnréttislögum.

    21. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra skrifar um mikilvægi neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis

    Komur á neyðarmóttöku Landspítalans fyrir þolendur kynferðisofbeldis voru 187 árið 2017 og hafði komum þá fjölgað um 40% á tveimur árum. Svandís Svavarsdóttir skrifar um þessi mál, fjallar um þjónustu neyðarmóttökunnar og mikilvægi þess að vinna gegn ofbeldi í nánum samböndum í blaðagrein í Morgunblaðinu í dag.

    20. mar. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti

    Frumvörp um bann við allri mismunun

    Frumvörp Ásmundar Einars Daðasonar félags- og jafnréttismálaráðherra um jafna meðferð á vinnumarkaði og um jafna meðferð fólks óháð kynþætti og þjóðernisuppruna hafa verið lögð fram á Alþingi.

    13. mar. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti

    Mikill áhugi á íslenskum lausnum á sviði jafnréttismála

    Fullt var út úr dyrum og komust færri að en vildu á hliðarviðburð sem Ísland stóð fyrir á fundi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna sem haldinn er í New York. Fjallað var um stafrænt ofbeldi á netinu og neikvæð áhrif þess fyrir þátttöku kvenna á opinberum vettvangi og þróun lýðræðisins.

    13. mar. 2018Lög og réttur, Mannréttindi og jafnrétti, Félags- og fjölskyldumál, Dómsmálaráðuneytið

    Fyrirhugaðar breytingar á barnalögum

    Dómsmálaráðuneytið hefur hafið vinnu við breytingar á barnalögum nr. 76/2003 sem eru tvíþættar.

    13. mar. 2018Utanríkismál, Mannréttindi og jafnrétti, Mannréttindi, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Ræður og greinar, Sendiskrifstofa, Ræður fulltrúa Íslands

    Norræn ræða um ástandið í Sýrlandi

    Íslandi fluttii í dag fyrir hönd Norðurlandanna ræðu á 37. fundi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf þar sem bein afleiðing ástandins í Sýrlandi, einkum í Austur-Ghouta á börn var hörmuð.

    13. mar. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti

    Bæklingurinn Konur og karlar á Íslandi 2018

    Kyngreindar upplýsingar sem varpa ljósi á stöðu kynjanna, t.d. um búsetu, menntun, atvinnuþátttöku, launamun, stjórnunarstörf og þátttöku í stjórnmálum er að finna í nýútkomnum bæklingi sem Hagstofan gefur úr í samvinnu við Jafnréttisstofu og velferðarráðuneytið.

    13. mar. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti

    Sendinefnd Íslands á 62. fundi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna

    Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra leiðir sendinefnd Íslands á 62. fundi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna (CSW) sem var settur í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í gær.

    13. mar. 2018Mannréttindi og jafnrétti, Félags- og fjölskyldumál, Dómsmálaráðuneytið

    Framlög til Samtakanna ´78 tvöfölduð

    Ráðgjafar- og fræðsluhlutverk Samtakanna ´78 verður eflt í samræmi við áherslur stjórnvalda um að koma Íslandi í fremstu röð í málefnum hinsegin fólks. Félags- og jafnréttismálaráðherra og framkvæmdasstjóri samtakanna hafa undirritað þjónustusamning þessa efnis.

    08. mar. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Halla Gunnarsdóttir leiðir starf stýrihóps um úrbætur að því er varðar kynferðislegt ofbeldi

    Meginhlutverk hópsins er að beita sér fyrir framsæknum og samhæfðum aðgerðum stjórnvalda gegn kynferðislegu ofbeldi, kynferðislegri og kynbundinni áreitni og að Ísland sé í fremstu röð í baráttunni gegn hvers kyns kynbundnu ofbeldi.

    08. mar. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti

    Skarður hlutur kvenna í fjölmiðlum og gagnsemi jafnréttisáætlana

    Konur, karlar, fjölmiðlar og lýðræði var meðal umfjöllunarefna á jafnréttisþingi sem lauk í dag. Hægt gengur að jafna kynjahallann í fjölmiðlum en augljós árangur hefur orðið hjá RÚV eftir að stofnunin setti sér skýr markmið um að ná jafnvægi milli kynja í hópi viðmælenda.

    08. mar. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið

    Tilraunaverkefni um innleiðingu jafnlaunastaðals lokið og viðurkenningar veittar

    Í dag lauk á jafnréttisþingi tilraunaverkefni um innleiðingu jafnlaunastaðals sem staðið hefur frá árinu 2013. Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra veitti þátttakendum viðurkenningar en markmið verkefnisins var að prófa jafnlaunastaðalinn ÍST 85:2012 og átta sig á umfangi innleiðingar hans, ávinningi og áskorunum.

    07. mar. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti

    Áherslur úr ræðu ráðherra á jafnréttisþingi

    Aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi, endurreisn fæðingarorlofskerfisins, launajafnrétti kynjanna og eftirfylgni með framkvæmd jafnlaunavottunar samkvæmt lögum voru meðal þeirra efna sem Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra gerði að umtalsefni við upphaf jafnréttisþings í morgun.

    07. mar. 2018Rit og skýrslur, Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið

    Skýrsla félags- og jafnréttismálaráðherra um stöðu og þróun jafnréttismála 2015-2017

    mars 2018 / Dómsmálaráðuneytið Skýrsla félags- og jafnréttismálaráðherra um stöðu og þróun jafnréttismála 2015-2017 Skýrsla félags- og jafnréttismálaráðherra um stöðu og þróun jafnréttismála 2015-2017

    07. mar. 2018Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið

    Dregur úr launamun kynjanna

    Rannsókn Hagstofu Íslands á launamun kynjanna í samvinnu við aðgerðahóp stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um launajafnrétti leiðir í ljós að dregið hefur úr launamunur kynjanna á árabilinu 2008 – 2016. Niðurstöður rannsóknarinnar verða kynntar á jafnréttisþingi sem nú stendur yfir.

    07. mar. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti

    Bein útsending frá Jafnréttisþingi 2018

    Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra kynnir skýrslu sína um stöðu og þróun jafnréttismála 2015-2017 á þinginu sem hefst kl. 9.15. Sent er út beint frá þinginu á vefnum.

    02. mar. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti

    Ráðherra og Jafnréttisráð boða til jafnréttisþings 7. - 8. mars

    Jafnréttisþing félags- og jafnréttismálaráðherra og Jafnréttisráðs verður haldið miðvikudaginn og fimmtudaginn 7. – 8. mars 2018 undir yfirskriftinni Útvíkkun jafnréttisstarfs - #metoo og margbreytileiki.

    27. feb. 2018Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Mannréttindi og jafnrétti

    Utanríkisráðherra ræddi mannréttindi við utanríkisráðherra Filippseyja

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra átti í dag fund með Peter S. Cayetano, utanríkisráðherra Filippseyja, í Genf en ráðherra gerði í ræðu sinni fyrir Mannréttindaráði SÞ í gær stöðu mannréttinda á Filippseyjum að sérstöku umtalsefni. Ráðherra átti jafnframt tvíhliða fundi með utanríkisráðherrum Spánar, Kanda og Liechtenstein og ræddi einnig við embættismenn hjá SÞ.

    27. feb. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti

    Árelía Eydís skipuð formaður Jafnréttisráðs

    Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur skipað nýtt Jafnréttisráð samkvæmt lögum. Árelía Eydís Guðmundsdóttir er formaður þess og Daníel E. Arnarsson varaformaður. Ráðherra hitti þau í velferðarráðuneytinu í dag.

    26. feb. 2018Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Mannréttindi og jafnrétti

    Utanríkisráðherra ávarpar Mannréttindaráð SÞ

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra brýndi aðildarríki Sameinuðu þjóðanna til að virða grundvallarmannréttindi í ræðu sinni fyrir Mannréttindaráði SÞ í morgun. Hann lýsti yfir þungum áhyggjum af ofbeldinu í Sýrlandi og Jemen og skoraði á stjórnvöld í Filippseyjum að heimila óháðum eftirlitsmönnum að kanna þar ástand mannréttindamála.

    23. feb. 2018Dómsmálaráðuneytið, Vinnumál, Mannréttindi og jafnrétti

    Innköllun jafnréttisáætlana til Jafnréttisstofu

    Innköllun er hafin á jafnréttisáætlunum fyrirtækja með 250 starfsmenn eða fleiri. Þetta er liður í eftirliti Jafnréttisstofu með jafnréttislögum. Þessi fyrirtæki eiga samkvæmt lögunum að hafa öðlast jafnlaunavottun í lok þessa árs.

    22. feb. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Heimsþing kvenleiðtoga verða haldin á Íslandi næstu fjögur árin

    Ríkisstjórn Íslands og Alþingi hafa gert samkomulag við WPL, Women Political Leaders, Global Forum um að efna til Heimsþings kvenleiðtoga á Íslandi ár hvert næstu fjögur ár.

    22. feb. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Félags- og fjölskyldumál, Forsætisráðuneytið

    Skipun stýrihóps um heildstæðar úrbætur að því er varðar kynferðislegt ofbeldi

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur skipað stýrihóp um heildstæðar úrbætur að því er varðar kynferðislegt ofbeldi.

    16. feb. 2018Dómsmálaráðuneytið, Vinnumál, Mannréttindi og jafnrétti

    Félags- og jafnréttismálaráðherra brýnir stjórnendur í baráttu gegn kynbundnu ofbeldi og áreitni

    Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra hefur sent stjórnendum allra stofnana sem heyra undir embætti hans bréf þar sem hann brýnir þá til að vinna gegn einelti, kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustöðum sínum líkt og lög bjóða.

    09. feb. 2018Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið

    Kynningarfundur um starfsemi og viðfangsefni Jafnréttissjóðs

    Velferðarráðuneytið og stjórn Jafnréttissjóðs Íslands boða til kynningarfundar um starfsemi og viðfangsefni sjóðsins 16. febrúar næstkomandi kl. 14.15 í nýsköpunar- og atvinnuvegaráðuneytinu.

    06. feb. 2018Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Loftslagsmál, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Mannréttindi og jafnrétti

    Lýsti stuðningi við áherslur aðalframkvæmdastjóra SÞ

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra átti í gær fund með António Guterres, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, í höfuðstöðvum stofnunarinnar í New York. Hann hitti einnig Miroslav Lajcak, forseta allsherjarþingsins, og Jeffrey Feltman, yfirmann stjórnmáladeildar Sameinuðu þjóðanna.

    05. feb. 2018Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Þróunarsamvinna, Mannréttindi og jafnrétti

    Áframhald samstarfs við UN Women

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Phumzile Mlambo-Ngcuka, framkvæmdastýra stofnunar Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna (UN Women) undirrituðu í morgun rammasamning um áframhaldandi samstarf íslenskra stjórnvalda og UN Women.

    02. feb. 2018Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið

    Minnt á umsagnarfrest vegna heildarendurskoðunar jafnréttislaga

    Vegna heildarendurskoðunar á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla hefur velferðarráðuneytið óskað eftir umsögnum og tillögum að breytingum á gildandi löggjöf. Minnt er á að umsagnir þurfa að berast ráðuneytinu fyrir 13. febrúar næstkomandi.

    01. feb. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti

    Jafnréttissjóður Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki

    Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum árið 2018. Sjóðurinn nýtur framlaga af fjárlögum og nemur árlegt framlag 100 milljónum króna. Umsóknarfrestur rennur út 22. mars næstkomandi kl. 16.00.

    01. feb. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Staða kvenna af erlendum uppruna rædd á öðrum fundi ráðherranefndar um jafnréttismál

    Annar fundur ráðherranefndar um jafnréttismál var haldinn í forsætisráðuneytinu í morgun.

    31. jan. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti

    Gjaldfrjáls aðgangur að jafnlaunastaðlinum

    Almenningi hefur verið tryggður gjaldfrjáls lesaðgangur að jafnlaunastaðlinum; ÍST 85:2012 – Kröfur og leiðbeiningar. Staðallinn er birtur á sérstökum vef sem opnaður var í þessu skyni í samræmi við samning velferðarráðuneytisins og Staðlaráðs Íslands.

    24. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Líf og heilsa

    Mikilvæg skref í jafnréttisbaráttu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallar um jafnréttismál í grein í Morgunblaðinu í dag. „Það er óskandi að áhrif #metoo-byltingarinnar verði til þess að það takist að uppræta kynferðislega áreitni, ofbeldi og mismunun í samfélaginu“ skrifar heilbrigðisráðherra meðal annars í grein sinni.

    18. jan. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Fyrsti fundur ráðherranefndar um jafnréttismál

    Fyrsti fundur ráðherranefndar um jafnréttismál var haldinn í forsætisráðuneytinu í morgun.

    • First
    • Prev
    • 11
    • 12
    • 13
    • 14
    • 15
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband