Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Auðlindir, Atvinnuvegaráðuneytið, Orka
Rammaáætlun
Rammaáætlun
Áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, eða rammaáætlun eins og hún er jafnan nefnd, er ætlað að stuðla að því að að nýting landsvæða þar sem er að finna virkjunarkosti byggist á langtímasjónarmiðum og heildstæðu hagsmunamati þar sem sjálfbær þróun er höfð að leiðarljósi. Í áætluninni er leitast við að taka tillit til verndargildis náttúru og menningarsögulegra minja, hagkvæmni og arðsemi ólíkra nýtingarkosta sem og hagsmuna þeirra sem nýta þessi gæði.
Rammaáætlun byggir á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun og er í formi þingsályktunartillögu sem umhverfis- og auðlindaráðherra leggur fram í samráði við ráðherra orkumála eigi sjaldnar en á fjögurra ára fresti