15. jan. 2014Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál, Úrskurðir
Mál nr. 16/2013.
<p>Fjárhagsaðstoð. Aðfinnslur. Kærandi var hvorki skráður eigandi húsnæðis né með þinglýstan leigusamning og því skal honum reiknast hálf grunnfjárhæð á mánuði að frádregnum eigin tekjum, sbr. 3. mgr. 11. gr. reglna Sveitarfélagsins Árborgar um fjárhagsaðstoð. Ákvörðun sveitarfélagsins um greiðslu hálfrar fjárhagsaðstoðar til kæranda fyrir júní, júlí og september 2012 verður því staðfest. Kærandi skráði sig ekki vikulega hjá félagsþjónustunni og átti því að missa hlutfallslega rétt til fjárhagsaðstoðar í ágúst 2012, sbr. 6. tölul. 1. mgr., sbr. 3. mgr. 8. gr. reglnanna. Ákvörðun sveitarfélagsins um að synja kæranda um fjárhagsaðstoð vegna þessa er felld úr gildi.</p>