27. jún. 2012Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál, Úrskurðir
Mál nr. 192/2011
<p>Ágreiningur um hvort veita bæri þriggja ára fötluðu barni ferðaþjónustu til að fara í sjúkra- og iðjuþjálfun og sund. Samkvæmt 35. gr. laga um málefni fatlaðs fólks nr. 59/1992 skal sveitarfélag gefa fötluðu fólki kost á ferðaþjónustu, en markmið ferðaþjónustu fatlaðs fólks sé að gera þeim sem ekki geta nýtt sér almenningsfarartæki vegna fötlunar kleift að stunda atvinnu og nám og njóta tómstunda. Úrskurðarnefndin taldi að þar sem um var að ræða barn undir 18 ára aldri sem lúti forsjá foreldra, eigi foreldrar rétt til greiðslna vegna ferðakostnaðar, sem hluta umönnunarbóta sem greiddar séu foreldrum langveikra barna á grundvelli laga um félagslega aðstoð nr. 99/2007. Sú ferðaþjónusta sem fötluðu fólki væri færð í 35. gr. laga nr. 59/1992, sbr. lög nr.…