Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1051–1100 af 3013
    Raða eftir:
    01. mar. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 6/2022

    Ráðuneytið taldi að læknir, sem veitt hafði umsögn sem óháður sérfræðingur vegna meintra mistaka við veitingu heilbrigðisþjónustu, hefði verið vanhæfur til að veita umsögn í málinu, sbr. 6. tölul. 1. mgr. 3. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Vísaði ráðuneytið til þess að læknirinn starfaði á sömu læknastofu og sá læknir, sem kvartað var undan í málinu, auk þess að vera stjórnarformaður stofunnar sem kynni að hafa fjárhagslegra hagsmuna að gæta af niðurstöðu embættis landlæknis. Var málsmeðferð embættis landlæknis í málinu því ómerkt og lagt fyrir embættið að taka málið til nýrrar meðferðar.

    23. feb. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    COVID-19: Aflétting allra takmarkana innanlands og á landamærum

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að frá og með föstudeginum 25. febrúar verði öllum opinberum sóttvarnaaðgerðum vegna heimsfaraldurs COVID-19 aflétt, jafnt innanlands og á landamærunum. Þar með falla brott allar reglur um takmarkanir á samkomum og skólahaldi og einnig krafa um einangrun þeirra sem sýkjast af COVID-19. Heilbrigðisráðherra kynnti ákvörðun sína á fundi ríkisstjórnar í dag sem byggist á tillögum sóttvarnalæknis til ráðherra um afléttingar. „Við getum sannarlega glaðst á þessum tímamótum en ég hvet fólk engu að síður til að fara varlega, gæta að persónubundnum sóttvörnum og halda sig til hlés finni það fyrir einkennum“ segir heilbrigðisráðherra.

    15. feb. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 5/2022

    Í málinu hafði kærandi kvartað til embættis landlæknis vegna meintra mistaka og vanrækslu við veitingu heilbrigðisþjónustu, sbr. 12. gr. laga um landlækni og lýðheilsu, sem hann taldi hafa átt sér stað er hann sótti þjónustu lækna á heilsugæslustöð. Embætti landlæknis taldi kvörtun kæranda frekar fela í sér athugasemd við þjónustu samkvæmt lögum um réttindi sjúklinga og tók kvörtunina ekki til efnislegrar meðferðar. Kærði kærandi þá málsmeðferð til ráðuneytisins. Í úrskurði ráðuneytisins sagði m.a. að svo kvörtun til embættis verði tekin til meðferðar á grundvelli 12. gr. laga um landlækni og lýðheilsu verði hún að gefa að einhverju leyti til kynna að mistök eða vanræksla hafi átt sér stað við veitingu heilbrigðisþjónustu.…

    15. feb. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Frumvarp til breytinga á lögum um sjúkraskrár – umsýsluumboð til þriðja aðila

    Lagt er til að sérfræðilæknar geti veitt þriðja aðila umsýsluumboð fyrir hönd einstaklings sem er ófær um að nýta sér rafræna þjónustu heilbrigðiskerfisins eða veita öðrum umboð fyrir sína hönd. Umboðshafi geti þannig nálgast rafræna þjónustu innan heilbrigðiskerfisins fyrir hönd hlutaðeigandi á öruggan og rekjanlegan hátt. Drög að frumvarpi þessa efnis hafa verið birt til umsagnar og er markmiðið að tryggja jafnan aðgang fólks að rafrænni heilbrigðisþjónustu og upplýsingum þar að lútandi. Umsagnarfrestur er til 28. febrúar næstkomandi.

    11. feb. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Geðheilsuteymi fanga fest í sessi með varanlegri fjármögnun

    Í ljósi góðrar reynslu af þjónustu geðheilsuteymis fanga hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að tryggja rekstur þess til frambúðar með föstu fjármagni. Teymið var sett á fót sem nýsköpunarverkefni á sviði geðheilbrigðismála til eins árs árið 2020 og síðan framlengt um eitt ár. Algjör stakkaskipti hafa orðið á geðheilbrigðisþjónustu við fólk sem afplánar dóma í fangelsum með tilkomu teymisins, líkt og að var stefnt og ljóst er að þörfin fyrir þjónustuna er mikil.

    11. feb. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    COVID-19: Afnám sóttkvíar, fjöldatakmörk í 200 manns, 1.000 manna viðburðir heimilaðir o.fl.

    Hátt í 10.000 manns losna undan sóttkví í dag þegar reglur um sóttkví falla brott með reglugerð. Á miðnætti tekur svo gildi reglugerð um samkomutakmarkanir sem felur í sér tilslakanir, líkt og nánar er tíundað hér að neðan.

    09. feb. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Þörf fyrir fólk í bakvarðasveitina vegna aukins álags á heilbrigðisstofnunum

    Heilbrigðisráðuneytið minnir enn á bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Þörf er á fleira heilbrigðisstarfsfólki á skrá til að mæta vaxandi álagi á heilbrigðisstofnunum vegna fjölgunar Covid-19 smita. Annars vegar hefur innlögnum vegna Covid fjölgað nokkuð síðustu daga en það eru ekki síður forföll starfsfólks sem valda mönnunarvanda. Í morgun voru til að mynda 248 starfsmenn Landspítala Covid sýktir og í einangrun og við Sjúkrahúsið á Akureyri eru um 50 starfsmenn forfallaðir vegna Covid.

    09. feb. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Norðurlöndin ráðast í greiningu á sameiginlegri getu til að þróa og framleiða bóluefni

    Norðurlandaþjóðirnar hafa ákveðið að ráðast í greiningu á sameiginlegri getu sinni til að rannsaka, þróa og framleiða bóluefni og fýsileika norræns samstarfs til nýsköpunar á þessu sviði. Ráðist er í verkefnið að frumkvæði iðnaðar- og viðskiptaráðherra Svía en heimsfaraldur Covid-19 hefur varpað ljósi á mikilvægi öflugs samstarfs Norðurlandaþjóðanna, m.a. með samhæfingu aðgerða og viðbúnaði gegn skorti á hráefnum og aðföngum þegar vá stendur fyrir dyrum.

    08. feb. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ný heildarlöggjöf um dýralyf samþykkt á Alþingi

    Alþingi hefur samþykkt frumvarp heilbrigðisráðherra að nýrri heildarlöggjöf um dýralyf. Lögin fela í sér innleiðingu á reglugerðum Evrópusambandsins í íslenskan rétt í kjölfar heildarendurskoðunar sambandsins á löggjöf um dýralyf. Markmið laganna er að tryggja gæði og öryggi dýralyfja með öryggi og velferð dýra að leiðarljósi. Þar er ekki síst horft til þess að tryggja yfirsýn yfir skráningu, sölu og notkun sýkingalyfja sem notuð eru fyrir dýr í því skyni að halda aftur af útbreiðslu sýklalyfjaónæmis. Lögin öðlast gildi við birtingu í Stjórnartíðindum.

    08. feb. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aukið aðgengi að Naloxon sem er lífsbjargandi lyf við ofskammti ópíóíða

    Aðgengi að lyfinu Naloxon í nefúðaformi hefur verið aukið og er nú til reiðu í sjúkraflutningbílum og hjá Frú Ragnheiði. Lyfið er notað þegar þörf er á tafarlausri neyðarmeðferð vegna ofneyslu ópíóða sem valdið getur öndunarstoppi og dauða. „Greiðara aðgengi að lyfinu er mikilvægt skaðaminnkandi úrræði fyrir jaðarsettan hóp einstaklinga sem misnota ópíóíða og því hef ég lagt áherslu á þetta verkefni“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.

    04. feb. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aukið fjármagn til Sjúkrahússins á Akureyri vegna mikilvægra framkvæmda

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Sjúkrahúsinu á Akureyri auknar fjárheimildir, alls 307 milljónir króna, til brýnna framkvæmda sem mikilvægt er að ljúka sem fyrst. Annars vegar er um að ræða aðstöðu fyrir nýtt sjúkrahúsapótek sem uppfyllir nútímakröfur um meðhöndlun og blöndun lyfja. Hins vegar lokafrágang og innréttingu á tæplega 600 fermetra húsnæði sem m.a. nýtist fyrir kennsluaðstöðu og skrifstofur.

    04. feb. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Einangrun stytt úr sjö dögum í fimm

    Einangrun vegna Covid-sýkingar verður stytt úr sjö dögum í fimm með reglugerð heilbrigðisráðherra sem tekur gildi mánudaginn 7. febrúar. Sem fyrr verður þó heimilt að framlengja einangrun ef þörf krefur samkvæmt læknisfræðilegu mati. Frá sama tíma er afnumin skylda þeirra til að sæta sóttkví eða viðhafa smitgát sem eru með afstaðna sýkingu, staðfesta með PCR-prófi sem er ekki yngra en 7 daga gamalt og ekki eldra en 180 daga.

    02. feb. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    COVID-19: Nálægðartakmörk á sitjandi viðburðum felld brott

    Frá og með morgundeginum verður hætt að gera kröfu um 1 metra nálægðarmörk á sitjandi viðburðum. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið þetta að höfðu samráði við sóttvarnalækni. Reglugerð ráðherra þessa efnis hefur verið send Stjórnartíðindum. „Þetta er stór og mikilvæg breyting. Með þessu breytast aðstæður til viðburðahalds þar sem hægt verður að nýta öll sæti á viðburðum svo lengi sem ekki eru fleiri en 500 í hólfi“ segir ráðherra.

    02. feb. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tannverndarvika 2022

    Nú stendur yfir árleg tannverndarvika sem embætti landlæknis og Tannlæknafélag Íslands standa fyrir. Í tilefni af tannverndarvikunni hefur nýtt mælaborð tannheilsu verið birt á vef embættis landlæknis. Mælaborðið er gagnvirkt og birtir tölulegar upplýsingar um fjölda tannfyllinga hjá börnum sem mæta í reglulegt eftirliti hjá heimilistannlækni.

    01. feb. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Runólfur Pálsson verður forstjóri Landspítala

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Runólf Pálsson í embætti forstjóra Landspítala til næstu fimm ára. Ákvörðun ráðherra er tekin að undangengnu mati lögskipaðrar hæfnisnefndar sem mat Runólf meðal þeirra umsækjenda sem hæfastir þóttu til að gegna embættinu.

    01. feb. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Frumvarp að nýjum sóttvarnalögum

    Birt hafa verið til umsagnar drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra til nýrra heildarlaga um sóttvarnir. Lagðar eru til ýmsar breytingar á stjórnsýslu málaflokksins og lagt til að aðkoma og eftirlitshlutverk Alþingis að opinberum sóttvarnaráðstöfunum verði styrkt. Umsagnarfrestur er til 15. febrúar næstkomandi.

    01. feb. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 4/2022

    Kærandi kærði málsmeðferð embættis landlæknis vegna álits þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að hann hefði gert mistök við veitingu heilbrigðisþjónustu. Byggði kærandi m.a. á því að honum hefði ekki verið veitt tækifæri til að tjá sig um umsögn óháðs sérfræðings sem embætti landlæknis hafði aflað við meðferð málsins. Í niðurstöðu ráðuneytisins segir að umsagnir óháðra sérfræðinga hafi almennt talsverða þýðingu fyrir niðurstöðu slíkra mála. Þar sem kæranda hafi ekki verið veitt færi á tjá sig um umsögnina hafi meðferð málsins ekki verið í samræmi við andmælareglu 13. gr. stjórnsýslulaga. Var meðferð málsins því ómerkt og lagt fyrir embætti landlæknis að taka málið til nýrrar meðferðar.

    28. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Umtalsverðar tilslakanir innanlandstakmarkana frá og með 29. janúar

    Almennar fjöldatakmarkanir verða 50 manns, nándarregla verður 1 metri, krár og skemmtistaðir mega opna að nýju og opnunartími þeirra og annarra veitingastaða verður lengdur um tvær klukkustundir.

    25. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Slakað á reglum um sóttkví

    Einstaklingum sem eru útsettir fyrir COVID-19 smiti utan heimilis eða dvalarstaðar síns verður ekki lengur skylt að fara í sóttkví en þurfa þess í stað að viðhafa smitgát.

    24. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Landamæraeftirlit, Líf og heilsa

    Gildistími bólusetningarvottorða á landamærum Íslands

    Bólusetningarvottorð vegna Covid-19 eru sérstaklega mikilvæg fyrir þá einstaklinga sem ferðast til annarra landa.

    23. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Hvert er verkefnið – leiðin út

    23 janúar 2022 / Heilbrigðisráðuneytið Hvert er verkefnið – leiðin út Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra Heilbrigðiskerfið okkar stendur nú í ströngu við að takast á við enn eitt afbrigði Covid-19 veirunnar – ómikron. Covid-19 innlagnir og eftirköst veikinda kalla á tvöfalda umönnun auk þess sem heilbrigðisstofnanir verða að vera í stakk búnar til að sinna bráðum veikindum og slysum sem eru ótengd Covid-19. Fram undan eru lokametrar þessarar bylgju og þá skiptir máli að verkefnið sé skýrt afmarkað svo að við missum ekki sjónar á því hvert við ætlum okkur

    20. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Sjúkratryggingar hafa samið um allt að 30 manna liðsauka til að styrkja mönnun á Landspítala

    Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samning við Lækningu í Lágmúla um að styrkja tímabundið mönnun á Landspítala vegna Covid-19. Þetta er þriðji samningurinn sem gerður er í þessu skyni en áður hafði verið samið við Klíníkina og Orkuhúsið. Samtals fela samningarnir í sér möguleika á auknum liðsstyrk 10 svæfingarlækna, 18 hjúkrunarfræðinga á sviði almennrar hjúkrunar og skurðstofu- og gjörgæsluhjúkrunar og 2 sjúkraliða á tímabilinu 10. - 28. janúar.

    20. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Reglugerð um kostnaðarvigtir og einingaverð (DRG)

    Birt hafa verið til umsagnar drög að reglugerð heilbrigðisráðherra um kostnaðarvigtir og einingaverð vegna samninga um þjónustutengda fjármögnun heilbrigðisþjónustu. Reglugerðin tengist nýlegum samningum Sjúkratrygginga Íslands við Landspítala og Sjúkrahúsið á Akureyri sem kveða á um að umtalsverður hluti klínískrar þjónustu sjúkrahúsanna skuli fjármagnaður í samræmi við umfang veittrar þjónustu sem byggist á alþjóðlega sjúklingaflokkunarkerfinu DRG (Diagnosis Related Groups). Umsagnarfrestur er til 26. janúar næstkomandi.

    19. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Krafa um sýnatöku í tengslum við smitgát afnumin og útivera í einangrun heimiluð

    Einstaklingum sem sæta smitgát í kjölfar smitrakningar verður ekki lengur skylt að fara í hraðpróf við upphaf og lok smitgátar frá og með morgundeginum en þurfa að fara gætilega í 7 daga og í PCR próf ef einkenni koma fram. Heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerð þessa efnis. Með reglugerðinni er einstaklingum í einangrun jafnframt veitt takmörkuð heimild til útiveru.

    19. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samningur um þjónustu talmeinafræðinga – ákvæði um tveggja ára starfsreynslu fellt brott

    Sjúkratryggingar Íslands hafa framlengt samning um þjónustu sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga um sex mánuði og fellt brott kröfu um tveggja ára starfsreynslu líkt og talmeinafræðingar hafa lagt á ríka áherslu. Jafnframt er gert ráð fyrir að framlengingartíminn verði nýttur til að vinna að útfærslu gæðavísa um þjónustuna, forgangsröðun og fleiru til að tryggja sem besta þjónustu við notendur. „Þetta er mikilvægt skref. Ég bind miklar vonir við að vel takist til með nýjan samning að sex mánuðum liðnum sem færir þessa mikilvægu þjónustu í gott horf fyrir þá sem á henni þurfa að halda en það eru að langstærstum hluta börn“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.

    19. jan. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 3/2022

    Málið varðaði umsókn lyfjaverslunar um undanþágu frá ákvæði 5. mgr. 37. gr. lyfjalaga nr. 100/2020 um tvo lyfjafræðinga að störfum. Byggðu kærendur á því að við mat á umfangi starfsemi í skilningi ákvæðisins hefði Lyfjastofnun ekki litið til þess að opnunartími verslunarinnar væri mun lengri en almennur afgreiðslutími lyfjaverslana. Var það mat ráðuneytisins að mat Lyfjastofnunar hefði ekki tekið nægilegt tillit til aðstæðna í málinu og verið ófullnægjandi. Vísaði ráðuneytið í þessu sambandi m.a. til sjónarmiða um skyldubundið mat og rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Var ákvörðun Lyfjastofnunar því felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka málið til nýrrar meðferðar.

    19. jan. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 2/2022

    Málið varðaði umsókn lyfjaverslunar um undanþágu frá ákvæði 5. mgr. 37. gr. lyfjalaga nr. 100/2020 um tvo lyfjafræðinga að störfum. Byggðu kærendur á því að Lyfjastofnun hefði ekki tekið tillit til raunverulegs álagstíma í lyfjaversluninni auk þess sem afgreiðsla á vélskömmtuðum lyfjum væri hátt, en þær afgreiðslur væru ekki sambærilegar afgreiðslum úr verslun. Í úrskurðinum féllst ráðuneytið rök Lyfjastofnunar um að ekki skyldi gera greinarmun á afgreiðslum vélskammtaðra lyfja og afgreiðslum í verslun við mat á umfangi starfsemi. Ráðuneytið staðfesti ákvörðun Lyfjastofnunar að mestu leyti en taldi unnt að veita undanþágu frá ákvæði 5. mgr. 37. gr. lyfjalaga á tilteknum tímum dags, þegar umfang starfsemi væri lítið í skilningi ákvæðisins.

    18. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    Til umsagnar: breyting á lögum nr. 87/2018 (nikótínvörur)

    Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur. Með frumvarpinu er ætlunin að setja skýrar reglur um heimildir til sölu, markaðssetningar og notkunar á nikótínvörum, þar á meðal nikótínpúðum.

    17. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Áformuð lagabreyting – stjórn yfir Landspítala

    Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til breytinga á lögum um heilbrigðisþjónustu sem kveður á um skipan sjö manna stjórn Landspítala. Frumvarpið er liður í innleiðingu þeirra áherslumála sem fram koma í sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs en í stjórnarsáttmála kemur fram að staða og hlutverk Landspítala sem mikilvægustu heilbrigðisstofnunar landsins verði styrkt og sérstök áhersla lögð á að fylgja eftir uppbyggingu gjörgæslu og bráðadeildar. Er stjórn spítalans ætlað að gegna stefnumarkandi hlutverki í þeirri þróun.

    17. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Viljayfirlýsing um að reisa hjúkrunarheimili í Kópavogi fyrir 120 íbúa

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs hafa undirritað viljayfirlýsingu um byggingu hjúkrunarheimilis í Kópavogi fyrir 120 íbúa. Stefnt er að því að framkvæmdir geti hafist á næsta ári og að heimilið verið tilbúið til notkunar árið 2026.

    14. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    COVID-19: Almennar samkomutakmarkanir hertar á miðnætti

    Almennar samkomutakmarkanir verða 10 manns, heimild til aukins fjölda fólks á viðburðum með hraðprófum fellur brott, hámarksfjöldi í verslunum verður 200 manns og skemmtistöðum, krám og spilakössum verður lokað. Þetta er megininntak hertra sóttvarnaráðstafana sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið og byggjast á tillögum sóttvarnalæknis. Gildandi takmarkanir á skólastarfi verða óbreyttar. Reglugerð um hertar sóttvarnaaðgerðir innanlands gilda frá og með laugardeginum 15. janúar til og með 2. febrúar næstkomandi.

    14. jan. 2022Covid-19, Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Ríkisstjórnin ræddi stöðu og horfur í faraldrinum

    Ríkisstjórnin ræddi á fundi sínum í dag um stöðu og horfur í COVID-19 faraldrinum. Markmið stjórnvalda er sem fyrr að standa vörð um líf og heilsu landsmanna en lágmarka efnahagsleg og samfélagsleg áhrif faraldursins.

    14. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Aðgerðir til að efla stöðu Landspítalans

    Ríkisstjórnin hefur ákveðið að tryggja Landspítala svigrúm sem gerir kleift að greiða starfsfólki sérstaklega fyrir viðbótarvinnuframlag næstu fjórar vikurnar. Talið er að þannig megi betur tryggja mönnun við erfiðar aðstæður meðan mesti þunginn í faraldrinum gengur yfir. „Við þurfum að gera ráð fyrir að næstu vikur verði krefjandi og ástandið er mjög þungt á Landspítala. Stjórnvöld standa þétt að baki spítalanum og þessi ákvörðun er liður í því. Það er ótrúlegt hve miklu er hægt að áorka með góðri samstöðu, samvinnu og útsjónarsemi. Stjórnendur og starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar hefur sýnt það og sannað á afgerandi hátt síðustu misserin og ég met það mikils.“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.

    13. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Tillaga til þingsályktunar um mótun stefnu í heilbrigðisþjónustu við aldraða

    Drög að tillögu til þingsályktunar um mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða hafa verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnarfrestur er til 7. febrúar næstkomandi.

    13. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Nýtt hjúkrunarheimili í Árborg opnar í mars

    Nýtt hjúkrunarheimili á Selfossi fyrir 60 íbúa verður afhent tilbúið til notkunar í byrjun mars. Heimilið er samstarfsverkefni ríkis og Sveitarfélagsins Árborgar og kemur m.a. í stað tveggja hjúkrunarheimila sem lögð voru af á Suðurlandi árið 2016. Heilbrigðisstofnun Suðurlands mun reka heimilið, ásamt 40 öðrum hjúkrunarrýmum sem eru við stofnunina á Selfossi.

    11. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Gildandi takmarkanir innanlands framlengdar til 2. febrúar

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja óbreyttar gildandi takmarkanir á samkomum innanlands til og með 2. febrúar næstkomandi. Ákvörðun ráðherra byggist á tillögum sóttvarnalæknis sem telur nauðsynlegt að takmarka áfram sem mest útbreiðslu Covid-19 til að verja heilbrigðiskerfið. Samhliða nýrri reglugerð um samkomutakmarkanir hefur ráðherra til hagræðis sett sérstaka reglugerð um skólastarf, líkt og gert hefur verið á fyrri stigum faraldursins.

    10. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið

    COVID-19: Bólusetning 5 til 11 ára skólabarna

    Sóttvarnalæknir hefur ákveðið að foreldrum barna 5-11 ára verði boðið að láta bólusetja börn sín gegn Covid-19. Bólusetning barna í þessum aldurshópi hefst á höfuðborgarsvæðinu í dag. Bólusett verður í Laugardalshöll dagana 10. til 13. janúar. Upplýsingar um bólusetningar barna eru á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og á vefsíðum heilbrigðisstofnana um allt land.

    08. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Tilkynning varðandi útskrift að lokinni einangrun

    Athygli er vakin á því að þeir sem lokið hafa sjö daga einangrun eftir staðfest smit af völdum Covid-19 geta nú og mega útskrifa sig sjálfir, að því tilskildu að þeir finni ekki fyrir sjúkdómseinkennum. Covid-göngudeild Landspítala hefur alla jafna samband við fólk fyrir útskrift, en vegna mikils álags er ekki skylt að bíða eftir skilaboðum frá Covid-göngudeildinni, að því gefnu að öll skilyrði fyrir útskrift séu uppfyllt. Einangrun hefst frá þeim tíma að telja sem fyrir liggur jákvætt PCR-próf um sýkingu viðkomandi. Hvorki jákvætt heimapróf né hraðpróf telst viðmið fyrir upphaf einangrunar.

    07. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Breyttar reglur um sóttkví

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að breyta reglum um sóttkví í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Breytingarnar byggja á faglegu mati og góðri bólusetningarstöðu þjóðarinnar. „Við þurfum að halda samfélaginu gangandi eins og framast er kostur, hvort sem við horfum til skólanna, velferðarþjónustu eða margvíslegrar atvinnustarfsemi og eins og staðan er núna eru þetta bráðnauðsynleg viðbrögð.“ segir Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra. Breytingarnar taka gildi á miðnætti.

    07. jan. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 1/2022

    Kæru A, sem laut að markaðsleyfis sem Lyfjastofnun hafði veitt tilteknu bóluefni, var vísað frá ráðuneytinu. Að mati ráðuneytisins var að hvorki til að dreifa stjórnvaldsákvörðun í máli sem væri kæranleg til ráðuneytisins né að A hefði hagsmuna að gæta í tengslum við ákvörðun um afturköllun markaðsleyfis á grundvelli 16. gr. lyfjalaga sem gæti leitt til þess að A gæti talist eiga kæruaðild.

    06. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Gjaldskrárbreytingar um áramót – óbreytt komugjöld í heilsugæslu

    Engar hækkanir verða á komugjöldum í heilsugæslu um áramótin. Almenn komugjöld lækkuðu 1. janúar 2021 úr 700 krónum í 500 krónur. Þessi gjöld eru óbreytt og sem fyrr greiða börn, öryrkjar og aldraðir ekkert komugjald. Gjöld sjúkratryggðra fyrir heilbrigðisþjónustu að öðru leyti hækka um 2,5% frá 1. janúar sl. í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Frá sama tíma hækka fjárhæðir bóta slysatrygginga almannatrygginga og sjúkradagpeningar um 4,6% og sömuleiðis viðmiðunarfjárhæðir vegna greiðsluþátttöku aldraðra fyrir stofnanaþjónustu.

    06. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tæplega 400 milljónum varið til að lækka greiðsluþátttöku vegna tannlæknaþjónustu

    Greiðsluþátttaka lífeyrisþega vegna tannlæknaþjónustu lækkaði 1. janúar síðastliðinn og sömuleiðis greiðsluþátttaka almennings vegna nauðsynlegra tannlækninga af völdum meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma. Þetta er hluti af gjaldskrárbreytingum vegna heilbrigðisþjónustu sem tóku gildi um áramótin.​ Áætlað er að fjármunir sem varið verður til þessara lækkana á greiðsluþátttöku nemi um 380 milljónum króna á ársgrundvelli.

    06. jan. 2022Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkir veittir vegna hjálpartækja fyrir fötluð börn með tvö heimili

    Sjúkratryggingum Íslands hafa verið veittar auknar heimildir til styrkja vegna kaupa á hjálpartækjum fyrir fötluð börn með tvö heimili. Markmiðið er að gera heimilin jafnsett þannig að börnin eigi hjálpartækin vís á báðum stöðum. Þetta er hluti af gjaldskrárbreytingum vegna heilbrigðisþjónustu sem tóku gildi um áramótin. Áður tóku styrkirnir til kaupa á sjúkrarúmum, dýnum, stuðningsbúnaði og hjálpartækjum tengdum salernisferðum. Nú er einnig heimilt að veita styrki til kaupa á sérstökum vinnustólum og sessum. Þann 1. júlí sl. hækkuðu fjárhæðir styrkja vegna kaupa á hjálpartækjum umtalsvert þegar styrkirnir voru færðir upp til verðlags en það hafði ekki verið gert frá árinu 2008.

    04. jan. 2022Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið

    Sóttvarnaaðgerðir á landamærum óbreyttar til 28. febrúar

    Á fundi ríkisstjórnar í morgun var ákveðið að framlengja óbreytta reglugerð um sóttvarnaráðstafanir á landamærum vegna COVID-19 til 28. febrúar nk. Þá var ákveðið að tillaga um fyrirkomulag á landamærum fyrir vorið verði kynnt fyrir 20. febrúar.

    30. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Einangrun stytt í 7 daga - reglur um styttri tíma

    Í samráði við sóttvarnalækni hefur heilbrigðisráðherra gert breytingu á reglugerð um sóttkví og einangrun og sóttvarnaráðstafanir á landamærum Íslands vegna COVID-19, nr. 1240/2021. Með reglugerðarbreytingunni er einangrun einstaklinga sem hafa greinst með COVID-19 þannig stytt í 7 daga. Telji læknar COVID-19 göngudeildar Landspítala hins vegar nauðsynlegt að framlengja einangrun einstaklings er þeim það heimilt.

    29. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fjárlög 2022: Framlög til hjúkrunarheimila aukin um 2,2 milljarða króna

    Rekstrargrunnur hjúkrunarheimila verður styrktur varanlega um 1,0 milljarð króna með fjárlögum næsta árs sem samþykkt voru á Alþingi í gær. Að auki er í fjárlögunum gert ráð fyrir 1,2 milljarða króna framlagi sem jafnframt er varanlegt, til að mæta auknum launakostnaði sem stafar af styttri vinnutíma vaktavinnufólks.

    29. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Ákvörðun sóttvarnalæknis um einangrun staðfest fyrir dómi

    Héraðsdómur Reykjavíkur hefur staðfest ákvörðun sóttvarnalæknis um einangrun fimm einstaklinga vegna smita af völdum Covid. Samkvæmt upplýsingum frá embætti landlæknis er þetta í þriðja sinn sem látið er reyna á lögmæti ákvörðunar sóttvarnalæknis um einangrun fyrir dómi. Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti einnig ákvörðun sóttvarnalæknis um einangrun einstaklings með úrskurði 22. október 2020 og sömuleiðis í sambærilegu máli með úrskurði 13. apríl síðastliðinn. Dómstólar hafa einnig fjallað um mál einstaklinga sem mótmælt hafa ákvörðun sóttvarnalæknis um sóttkví þeirra. Tíu slík mál hafa farið fyrir héraðsdóm, síðast var úrskurðað í gær, og í öllum tilvikum hafa ákvarðanir sóttvarnalæknis verið staðfestar.…

    28. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Heilbrigðisstofnanir taka á móti 30 sjúklingum til að létta álagi af LSH

    Stefnt er að því að flytja hátt í 30 sjúklinga frá Landspítala á aðrar heilbrigðisstofnanir víðsvegar um landið til að bregðast við erfiðum aðstæðum á spítalanum vegna Covid. Skortur er á legurýmum auk þess sem hátt í 200 starfsmenn sjúkrahússins eru frá vinnu, ýmist smitaðir af Covid eða í sóttkví.

    28. des. 2021Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 19/2021

    Í málinu var kærð ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um þátttöku kæranda í dvalarkostnaði á hjúkrunarheimili. Krafðist kærandi þess að stofnunin leiðrétti útreikning á hlutdeild hans í kostnaðinum, enda ættu lífeyrisgreiðslur hans frá Noregi ekki að teljast með sem tekjur í útreikningnum. Að mati ráðuneytisins hafði Tryggingastofnun reiknað þátttöku kæranda í dvalarkostnaði í samræmi við lög um almannatryggingar og lög um málefni aldraðra út frá þeirri tekjuáætlun sem lá fyrir, sem byggði á þeim staðfestu upplýsingum sem fyrir lægju hjá stofnuninni. Var ákvörðun Tryggingastofnunar því staðfest.

    22. des. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Undanþágur til veitingamanna 23. desember

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita veitingastöðum undanþágu frá fjöldatakmörkun nýrrar reglugerðar um takmarkanir á samkomum þann 23. desember. Veitingastöðum verður því heimilt að taka á móti 50 gestum í rými þann 23. desember í stað 20 líkt og kveðið er á um í reglugerð. Að fjöldatakmörkunum slepptum verður skylt að viðhafa allar þær sóttvarnaráðstafanir sem kveðið er á um í reglugerðinni. Veitingastöðum ber því að loka á þeim tíma sem kveðið er á um í reglugerðinni, þ.e. kl. 21.00.

    • First
    • Prev
    • 20
    • 21
    • 22
    • 23
    • 24
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband