22. des. 2010Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir, Úrskurðir
Mál nr. 87/2010
Kæran barst að liðnum kærufresti en með tilliti til aðstæðna var litið svo á að það hafi verið afsakanlegt, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.
<p>Þegar lög nr. 37/2009 gengu í gildi gat kærandi vænst þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur samkvæmt bráðabirgðaákvæði VI með lögum um atvinnuleysistryggingar til ársloka 2009. Frekari væntingar gat hann ekki haft nema að því tilskildu að hann myndi stöðva rekstur sinn og skila vottorði þar að lútandi. Hin kærða ákvörðun var staðfest.</p>