12. apr. 2005Rit og skýrslur, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið
Fjölgun öryrkja á Íslandi - orsakir og afleiðingar
<p>Sökum þess hve stór hluti tryggingamarkaðar og heilsugæslu er á ábyrgð hins opinbera hefur hátt hlutfall örorkubótaþega bein og ráðandi áhrif á umfang ríkisfjármála. Að sama skapi má ætla að vaxandi útgjöld til málaflokksins hafi áhrif á fjárhagslega velferð og tekjudreifingu þeirra heimila í landinu sem standa straum af þeim kostnaði sem til fellur við greiðslu bóta úr tryggingakerfinu.</p>