Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Atvinnuvegir
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1301–1350 af 1950
    Raða eftir:
    26. júl. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Auglýsingar tollkvóta, Landbúnaður

    Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins

    Með vísan til samnings milli Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins nr. 600/2021, er hér með auglýst eftir umsóknum um eftirfarandi tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum, upprunnum í ríkjum Evrópusambandsins og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 16. september – 31. desember 2021.

    23. júl. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir

    Benedikt Árnason er nýr ráðuneytisstjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað Benedikt Árnason í embætti ráðuneytisstjóra í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Benedikt tekur við af Kristjáni Skarphéðinssyni fráfarandi ráðuneytisstjóra.

    20. júl. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Auknar heimildir til strandveiða

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um auknar heimildir til strandveiða. Alls verður 1.171 tonnum af þorski bætt við en um er að ræða óráðstafað magn sem kom til á skiptimarkaði í skiptum fyrir makríl og fleiri tegundir. Með þessari aukningu verður því heildarmagn í þorski á strandveiðum alls 11.171 tonn og samtals 12.271 tonn af óslægðum botnfiski.

    12. júl. 2021Covid-19, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ferðatryggingasjóður: Umsókn um aðild til 1. ágúst

    Með Ferðatryggingasjóði er komið á fót nýju tryggingakerfi fyrir pakkaferðir í stað eldra tryggingakerfis sem sætt hefur mikilli gagnrýni undanfarin ár. Sjóðurinn er sameiginlegur tryggingasjóður ferðaskrifstofa sem tryggir endurgreiðslur til ferðamanna við ógjaldfærni eða gjaldþrot seljenda pakkaferða. Ferðatryggingasjóður er sjálfseignarstofnun sem tryggir réttindi neytenda með betri hætti en verið hefur og felur jafnframt í sér umtalsvert hagræði fyrir ferðaskrifstofur hér á landi.

    06. júl. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Tilboðsmarkaður 1. september 2021 með greiðslumark í mjólk

    Markaður fyrir greiðslumark mjólkur verður haldinn þann 1. september næstkomandi.

    04. júl. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Uppfærsla á AFURÐ, greiðslukerfi landbúnaðarins

    Vegna uppfærslu liggur AFURÐ, greiðslukerfi landbúnaðarins, niðri. Búist er við að henni verði lokið á hádegi á mánudag (5.7). Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

    30. jún. 2021Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Aðferðir við mat á sjálfbærni ferðaþjónustu á Norðurlöndunum

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið leiddi verkefnið „Monitoring Sustainability in Nordic Tourism“ sem var unnið í samstarfi allra Norðurlandanna með styrk frá Norrænu ráðherranefndinni.

    30. jún. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Loftslagsmál

    Loftslagsverkefni í nautgriparækt

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað samning um að efla og stækka loftslagsverkefni í landbúnaði á árinu 2021, einkum í nautgriparækt. Samningurinn felur í sér tvö verkefni sem unnin verða á árinu 2021 og eru hluti af aðgerðum tengdum landbúnaði í aðgerðaráætlun stjórnvalda í loftlagsmálum. Annars vegar er um að ræða stækkun og eflingu á verkefninu Loftlagsvænn landbúnaður og hins vegar framkvæmd á könnun á geymslurými búfjáráburðar. Að samningnum koma atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, Landgræðslan og Skógræktin.

    25. jún. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Kristján Þór fylgir ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur gefið út reglugerð um leyfilegan heildarafla í íslenskri fiskveiðilögsögu fyrir næsta fiskveiðiár. Reglugerðin fylgir vísindalegri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Ráðgjöf stofnunarinnar byggir á því að nýta stofna miðað við hámarksafrakstur að teknu tilliti til vistkerfis- og varúðarnálgunar.

    23. jún. 2021Auðlindir, Loftslagsmál, Nýsköpun, Orka, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Skýrsla um fýsileika þess að framleiða rafeldsneyti á Íslandi

    Notkun jarðefnaeldsneytis í samgöngum veldur um helming af CO2 losun sem er á beinni ábyrgð Íslands. Því er mikilvægt að meta þá kosti sem við höfum og þær fjárfestingar sem þarf til að skipta út jarðefnaeldsneyti fyrir aðra orkugjafa í samgöngum á landi, á sjó og í lofti.

    22. jún. 2021Atvinnuvegir, Menntamál, Covid-19, Ferðaþjónusta, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Starfshópur um leiðsögumenn skilar skýrslu til ráðherra

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra skipaði sl. haust starfshóp um menntun og starfsþjálfun leiðsögumanna. Starfshópnum var ætlað að skoða hvort og þá hvernig hægt væri að efla menntun og starfsþjálfun leiðsögumanna með áherslu á neytendavernd, náttúruvernd og öryggi. Hópnum var ætlað að líta til erlendra fyrirmynda, s.s. frá Nýja-Sjálandi, við mótun mögulegra tillagna um mismunandi kröfur til mismunandi gerðar leiðsagnar og leggja til grundvallar evrópska staðla um leiðsögunám og hæfi í tungumálum, sem og reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa.…

    21. jún. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Byggðamál, Covid-19, Fiskeldi, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Ráðstefna 22.júní: Framtíð íslensks sjávarútvegs og fiskeldis: Tækifæri og áskoranir

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðar til ráðstefnu þriðjudaginn 22. júní kl. 13 um framtíð íslensks sjávarútvegs og fiskeldis. Ráðstefnan fer fram í Kaldalóni í Hörpu og er öllum opin. Á ráðstefnunni verður gerð grein fyrir nýlegri skýrslu um stöðu og horfur í íslenskum sjávarútvegi og fiskeldi og rætt um þau tækifæri og áskoranir sem blasa við.

    16. jún. 2021Auðlindir, Byggðamál, Nýsköpun, Orka, Orkusjóður, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Þórdís Kolbrún skipar starfshóp sem skoðar orkumál og tækifæri til nýrrar atvinnusköpunar á Vestfjörðum

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur skipað starfshóp sem falið er að skoða stöðu orkumála á Vestfjörðum og tengsl þeirra við nýsköpun og atvinnutækifæri á svæðinu. Starfshópurinn skal skoða orkumál á Vestfjörðum heildstætt, jafnt út frá stöðu mála í flutningskerfi raforku, dreifikerfi raforku, möguleikum til orkuvinnslu á svæðinu og áherslum úr orkustefnu um orkuskipti og afhendingaröryggi raforku á landsvísu. Markmið vinnunnar er að rýna samspil framangreindra þátta og finna leiðir til að efla stöðu orkumála í þessum landshluta með hliðsjón af vaxandi tækifærum til nýrrar atvinnusköpunar, jöfnun búsetuskilyrða og styðja við orkuskipti á svæðinu.

    15. jún. 2021Auðlindir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Orka, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Þórdís Kolbrún undirritaði viljayfirlýsingu um stofnsetningu rannsóknar, vinnslu- og afurðarmiðstöðvar þangs í Stykkishólmi

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra undirritaði í dag viljayfirlýsingu Stykkishólmsbæjar, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, Veitna og Acadian Seaplants um samstarf um sjálfbæra atvinnu- og innviðauppbyggingu í Stykkishólmi í tengslum við fyrirhugaða nýtingu þangs í Breiðafirði. Með viljayfirlýsingunni er stoðum rennt undir rannsóknir og vinnslu þangs í Stykkishólmi og verður unnið að því að nýta fyrirliggjandi tækifæri til atvinnu- og verðmætasköpunar á grunni sjálfbærrar nýtingar auðlinda.

    15. jún. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Tæknisetur formlega stofnað: Þórdís Kolbrún skipaði stjórn

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra fundaði með stjórn Tækniseturs á fyrsta fundi stjórnar en undirbúningur við stofnun Tækniseturs gengur vel.

    14. jún. 2021Atvinnuvegir, Niðurstöður útboða, Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður

    Niðurstöður um úthlutun á WTO tollkvóta á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið 1. júlí 2021 til 30. júní 2022

    Þriðjudaginn 25. maí 2021 rann út umsóknarfrestur um tollkvóta vegna innflutnings á nauta-, svína-, kinda-, geita- og alifuglakjöti, unnum kjötvörum, smjöri og ostum og eggjum fyrir tímabilið 1. júlí 2021 til 30. júní 2022.

    14. jún. 2021Atvinnuvegir, Niðurstöður útboða, Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður

    Niðurstöður um úthlutun á EFTA tollkvóta 2021-2022

    Föstudaginn 25. maí 2021 rann út umsóknarfrestur um EFTA tollkvótum á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss, vegna innflutnings á nautakjöti. Samtals bárust fjórar umsóknir frá aðilum um tollkvótann.

    11. jún. 2021Covid-19, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Hringferð um Ræktum Ísland! Skráning á fjarfund og næstu fundir

    „Þetta er lykilatriði við mótun landbúnaðarstefnu; náið samráð við fólkið í landinu. Ég hvet alla til að mæta til þessara funda, hlusta eftir þeim hugmyndum sem liggja fyrir og láta í sér heyra varðandi framhaldið enda er tilgangurinn með þessum fundum fyrst og að hlusta eftir viðhorfi fólks, hugmyndum og ábendingum,“ segir Kristján Þór.

    11. jún. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Loftslagsmál, Nýsköpun, Orka, Orkusjóður, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Samstarf um að skoða framleiðslu á rafeldsneyti á Grundartanga

    Landsvirkjun, Carbon Recycling International, Elkem á Íslandi og Þróunarfélag Grundartanga áforma samstarf um skoðun á framleiðslu á grænu metanóli. Framleiðslan myndi nýta endurnýjanlega raforku Landsvirkjunar, framleiðslutækni Carbon Recycling International og glatvarma ásamt koldíoxíði sem fangað yrði úr kísilveri Elkem á Grundartanga.

    11. jún. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Samningur um tækifæri til hagræðingar í sauðfjárbúskap

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, undirritaði í dag samning um verkefnið „Betri gögn, bætt afkoma“ við Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) og Landssamtök sauðfjárbænda.

    10. jún. 2021Auðlindir, Loftslagsmál, Nýsköpun, Orka, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ráðherra lætur vinna Vegvísi fyrir vetni og rafeldsneyti

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur ákveðið að láta vinna Vegvísi fyrir vetni og rafeldsneyti.

    10. jún. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Norrænt samstarf, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Þórdís Kolbrún á norrænum ráðherrafundi um aukið samstarf í tengslum við COVID-19 heimsfaraldurinn

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sat norrænan ráðherrafund um aukið samstarf Norðurlandanna í tengslum við COVID-19 heimsfaraldurinn. Ráðherrarnir ræddu þar um rannsóknir og nýsköpun á heilbrigðissviði, m.a. möguleikana á samstarfi um þróun og framleiðslu bóluefna og líftæknilyfja.

    09. jún. 2021Auðlindir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Loftslagsmál, Nýsköpun, Orka, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Samstarf um föngun kolefnis og nýtingu glatvarma (1. áfangi)

    „Hér er stefnan tekin á tvö spennandi og góð verkefni sem samrýmast fullkomlega nýrri Orkustefnu fyrir Ísland: fjölnýtingu dýrmætra orkustrauma á borð við glatvarma, og hins vegar kolefnisföngun ýmist til niðurdælingar eða framleiðslu á rafeldsneyti. Þessi nýsköpunarverkefni stuðla ekki bara að markmiðum okkar Íslendinga um bætta orkunýtingu, orkuskipti og samdrátt í kolefnislosun heldur styrkja þau atvinnusvæðið á Grundartanga og þá miklu verðmætasköpun sem þar fer fram. Þetta er því gleðilegur áfangi og ég vil þakka Elkem, Veitum og CarbFix fyrir að setja stefnuna á þessi verkefni og Þróunarfelaginu fyrir að þjóna vel hagsmunum og tækifærum svæðisins,“ segir Þórdís Kolbrún.

    09. jún. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Matvælasjóður, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    272 umsóknir í Matvælasjóð

    Alls bárust 272 umsóknir um styrki úr Matvælasjóði, en umsóknarfrestur var til 6. júní. Sjóðurinn hefur 630 milljónir til úthlutunar og næstu skref eru þau að umsóknirnar fara til fagráða sjóðsins sem munu veita umsögn um þær og í kjölfarið mun stjórn sjóðsins gera tillögu til Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um úthlutun úr sjóðnum.

    09. jún. 2021Auðlindir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Loftslagsmál, Nýsköpun, Orka, Orkusjóður, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Vefviðburður í dag: Landtenging hafna og notkun á umhverfisvænni orkugjöfum fyrir skip

    Skýrsla um landtengingar í höfnum verður til umræðu á vefviðburði Grænu orkunnar, Verkís og Orkustofnunar í hádeginu í dag, en atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið fól Verkís að vinna skýrsluna. ​

    08. jún. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir, Niðurstöður útboða

    Tollkvótum framvegis úthlutað með rafrænum hætti

    Tollkvótum verður framvegis úthlutað með rafrænum hætti. Markmiðið er að einfalda stjórnsýslu og gera hana stafræna til hagræðis fyrir ráðuneytið, stofnanir og ekki síst atvinnulífið. Vefkerfið mun flýta ferlum, auka aðgengi og öryggi gagna og einfalda úthlutunarferli til muna. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði grein fyrir málinu á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.

    03. jún. 2021Auðlindir, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Nýsköpun, Orka, Orkusjóður, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Markmiðinu náð: Rúmlega 10% hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa í samgöngum á Íslandi

    Ísland hefur náð þeim markverða árangri að markmið ársins 2020 um 10% hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa í samgöngum er í höfn og rúmlega það.

    01. jún. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Varúðarráðstöfunum gegn fuglaflensu aflétt

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur fellt úr gildi varúðarráðstöfunum gegn fuglaflensu, að fengnum tillögum Matvælastofnunar. Stofnunin hefur lækkað viðbúnaðarstig þar sem hún metur smithættu núna lága. Það þýðir að leyfilegt er á ný að hleypa alifuglum út úr húsi eða út fyrir yfirbyggð gerði. Leyfilegt er að halda sýningar og aðrar samkomur með fugla. Stofnunin hvetur þó fuglaeigendur til að vera áfram á varðbergi gagnvart fuglaflensu og gæta fyllstu varúðar áður en fuglum er hleypt út.

    01. jún. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Undirbúningur Tækniseturs á miklu skriði: Þórdís Kolbrún skipar stjórn

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur skipað stjórn Tækniseturs og stendur undirbúningur fyrir stofnun þess yfir. ​

    01. jún. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Hringferð um Ræktum Ísland! hefst í kvöld

    Fyrsti fundur í hringferð um Ræktum Ísland!, umræðuskjal um landbúnaðarstefnu fyrir Ísland, fer fram í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri kl. 20 í kvöld. Á morgun fer fram fundur á Ísafirði en alls er boðað til 10 opinna funda um allt land á næstu 16 dögum.

    01. jún. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Kristján Þór undirritar reglugerð um ákvörðun makrílafla

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um ákvörðun makrílafla íslenskra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands og á samningssvæði Norðaustur-Atlanthshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) utan lögsögu ríkja árið 2021.

    31. maí 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Þórdís Kolbrún tilkynnir úthlutun Lóu - styrkja til nýsköpunarverkefna á landsbyggðinni

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir kynnti í dag um 29 verkefni sem fá úthlutun úr Lóu-nýsköpunarstyrkjum fyrir landsbyggðina. Hlutverk styrkjanna er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæðanna sjálfra. Verkefni í öllum landshlutum hljóta styrk og nemahæstu styrkir 10 milljónum króna. Verkefnin sem hljóta styrk eru af margvíslegum toga og til marks um fjölbreytt atvinnulíf um land allt. Sem dæmi má nefna styrk til uppbyggingar velferðartæknimiðstöðvar á Norðurlandi eystra, þróunvettvangs sjávarlíftækni í Vestmannaeyjum, nýsköpun í vinnslu skógarafurða á Austurlandi oguppbyggingu vistkerfis orkuskipta á Vestfjörðum,

    31. maí 2021Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Úthlutun úr Lóu- Nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina: Mánudag kl. 14:00

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra kynnir úthlutun úr Lóu - nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina, mánudaginn 31. maí kl. 14:00. Viðburðurinn er liður í Nýsköpunarviku en alls verður úthlutað tæplega 150 milljónum króna.

    27. maí 2021Auðlindir, Orka, Orkusjóður, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Fundað með Höllu Hrund, verðandi orkumálastjóra

    ​Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra orkumála, fundaði í dag með Höllu Hrund Logadóttur, sem skipuð hefur verið í embætti orkumálastjóra frá og með 19. júní næstkomandi.

    26. maí 2021Atvinnuvegir, Niðurstöður útboða, Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður

    Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið júlí – desember 2021

    Föstudaginn 21. maí 2021, rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna seinni hluta ársins 2021, sbr. reglugerð nr. 1324/2020.

    26. maí 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Kristján Þór og BÍ semja um nýtt íslenskt búvörumerki

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, undirritaði í dag samning við Bændasamtök Íslands um gerð íslensks búvörumerkis. Um er að ræða nýtt valfrjálst upprunamerki fyrir íslenskar landbúnaðarvörur. Því er ætlað að afmarka með skýrari hætti innlenda landbúnaðarframleiðslu á heimamarkaði og bæta þar með upplýsingagjöf til neytenda. . Með því verður sérstaða íslenskra búvara betur tryggð en sambærileg merki eru til í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi.

    20. maí 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Hönnun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Þórdís Kolbrún opnaði Hönnunarmars

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra opnaði Hönnunarmars formlega í gær, en hátíðin stendur til 23 maí. Á dagskrá Hönnunarmars eru yfir 90 sýningar og yfir 100 viðburðir á öllu höfuðborgarsvæðinu en þetta er í þrettánda sinn sem hátíðin fer fram.

    20. maí 2021Atvinnuvegir, Auðlindir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Framkvæmd búvörusamninga, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Nýsköpun, Orka, Orkusjóður, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Hæsti styrkur Orkusjóðs um árabil: 320 milljónir í styrki til orkuskipta

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hafa ákveðið að auglýstir verðir styrkir til orkuskipta að upphæð 320 milljónir kr. af þeim fjárveitingum sem veittar eru til loftslagsmála í ár. Um er að ræða hæstu upphæð sem sjóðurinn hefur úthlutað um árabil og eru megin áherslur nú á ný svið, svo sem þungaflutninga og vinnuvélar. Að auki býður sjóðurinn nú í fyrsta sinn stuðning til líf- og rafeldsneytisframleiðslu og orkugeymslna. Áframhaldandi stuðningur er við uppbyggingu hleðslunets fyrir rafbíla.

    20. maí 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir

    Umsækjendur um stöðu ráðuneytisstjóra í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu

    Alls bárust þrettán umsóknir um embætti ráðuneytisstjóra atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis sem auglýst var þann 30.apríl 2021 en umsóknarfrestur rann út þann 18. maí sl.

    19. maí 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Margvísleg tækifæri til bættrar afkomu í sauðfjárrækt

    Tækifæri íslenskra sauðfjárbænda til bættrar afkomu liggja í áframhaldandi hagræðingu í búrekstri, hagræðingu í rekstri sláturhúsa og hagkvæmara fyrirkomulagi útflutnings. Þetta eru helstu niðurstöður skýrslu Landbúnaðarháskóla Íslands um um afkomu sauðfjárbænda á Íslandi og leiðir til að bæta hana. Skýrslan var unnin að beiðni Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og var kynnt í dag á opnum streymisfundi.

    19. maí 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Streymisfundur kl. 9:30: Kristján Þór kynnir skýrslu um afkomu sauðfjárbænda á Íslandi og leiðir til að bæta hana

    Landbúnaðarháskóli Íslands hefur skilað atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu skýrslu um afkomu sauðfjárbænda á Íslandi og leiðir til að bæta hana. Skýrslan var unnin að beiðni Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og er hluti af samningi ráðuneytisins við skólann fyrir árin 2020-2023.

    14. maí 2021Byggðamál, Covid-19, Fiskeldi, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Matvælasjóður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Matvælasjóður auglýsir úthlutun í annað sinn: 630 milljónir til úthlutunar

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Margrét Hólm Valsdóttir, formaður Matvælasjóðs, opnuðu í dag fyrir umsóknir í Matvælasjóð. Þetta er í annað sinn sem sjóðurinn auglýsir úthlutun. Matvælasjóður mun fá 250 milljón króna viðbótarframlag á þessu ári og er heildarúthlutunarfé sjóðsins alls 630 milljónir króna. Hlutverk sjóðsins að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu íslenskra matvæla og hliðarafurða þeirra úr landbúnaðar- og sjávarafurðum á landsvísu.

    14. maí 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auglýsingar tollkvóta, Atvinnuvegir, Landbúnaður

    Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss

    Með vísan til 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og til reglugerðar nr. 542/2021 er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir innflutning á kjöti úr dýrum af nautgripakyni og osti og ystingi, fyrir tímabilið 1. júlí 2021 til 30. júní 2022:

    14. maí 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auglýsingar tollkvóta, Atvinnuvegir, Landbúnaður

    Auglýsing um WTO-tollkvóta vegna innflutnings á nauta-, svína-, kinda-, geita- og alifuglakjöti, smjöri, ostum, fuglseggjum og afurðum þeirra og unnum kjötvörum

    Með vísan til 65. gr. búvörulaga nr. 99/1993 og með vísan til reglugerðar nr. 541/2021 er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir innflutning á nauta-, svína- kinda-, geita- og alifuglakjöti, smjöri, ostum, fuglseggjum og afuðum þeirra og unnum kjötvörum fyrir tímabilið 1. júlí 2021 til 30. júní 2022.

    12. maí 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Efnahagsmál og opinber fjármál, Byggðamál, Covid-19, Fiskeldi, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Mögulegt að auka útflutningsverðmæti sjávarútvegs og fiskeldis verulega

    Mikil tækifæri eru til vaxtar í sjávarútvegi, fiskeldi og tengdum greinum og mögulegt að auka útflutningsverðmæti þessara atvinnugreina verulega á næstu árum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um stöður og horfur í íslenskum sjávarútvegi og fiskeldi. Að gefnum forsendum, sem lýst er nánar í skýrslunni, gæti virði framleiðslu allra þessara greina aukist í um 440 milljarða kr. árið 2025 og í 615 milljarða kr. árið 2030. Virði framleiðslunnar árið 2030 yrði þannig 85% meira en virði framleiðslunnar árið 2019.

    12. maí 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Fiskeldi, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Streymisfundur kl 14:00: Staða og horfur í sjávarútvegi og fiskeldi

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra, boðar til opins streymisfundar þar sem kynnt verður skýrsla um stöðu og horfur í íslenskum sjávarútvegi og fiskeldi, sem tekin var saman að beiðni ráðherra. Skýrslan inniheldur ítarlega umfjöllun um núverandi stöðu sjávarútvegs- og fiskeldis og áskoranir og tækifæri til framtíðar. Sveinn Agnarsson, prófessor við viðskiptafræðideild HÍ og ritstjóri skýrslunnar, gerir grein fyrir helstu niðurstöðum hennar.

    11. maí 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Siglingar, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Átta aðilar lýstu yfir áhuga á smíði hafrannsóknaskips

    Miðvikudaginn 5. maí sl. var opnað hjá Ríkiskaupum forútboð vegna smíði á nýju rannsóknaskipi sem mun koma í stað rs. Bjarna Sæmundssonar. Alls lýstu átta skipasmíðastöðvar áhuga að taka þátt í útboðinu. Gert er ráð fyrir að samið verði um smíði skipsins fyrir 1. nóvember nk. og smíði þess geti hafist í kjölfarið. Smíðatíminn er áætlaður tvö ár og því er gert ráð fyrir að skipið komi til landsins síðla árs 2023. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði grein fyrir málinu á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.

    07. maí 2021Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    53,7 milljónir í bætt aðgengi fyrir alla að ferðamannastöðum

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamálaráðherra, hefur ákveðið að veita viðbótarstyrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til verkefna tengdum bættu aðgengi á ferðamannastöðum með áherslu á aðgengi fólks með skerta hreyfigetu og vegna eldgossins í Geldingadölum. Einnig hljóta nokkur önnur verkefni styrk að þessu sinni. Við leggjum sérstaka áherslu á aðgengismálin að þessu sinni og ég þakka bæði Sjálfsbjörg og Öryrkjabandalaginu fyrir þeirra framlag við mótun tillagnanna. Það er von mín að þessi áhersla nú skili sér í aukinni meðvitund fyrir mikilvægi þess að hugað sé að aðgengismálum í öllum verkefnum. Þá er einnig gott að geta styrkt enn fleiri staði til framfara og styrkt innviði þeirra,“ segir Þórdís Kolbrún.

    05. maí 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir

    Málefni afurðastöðva í kjötiðnaði

    Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 29. september 2020 sem birt var í tengslum við mat á forsendum fyrir áframhaldandi gildi Lífskjarasamninga aðila vinnumarkaðarins, er kveðið á um skoðun á leiðum til að auka hagkvæmni og skilvirkni í matvælaframleiðslu. Í framhaldi sendu formenn Samtaka atvinnulífsins, Samtaka iðnaðarins og Bændasamtaka Íslands formönnum ríkisstjórnarflokkanna erindi þar sem óskað var eftir því, með vísan til óviðunandi stöðu bænda og afurðastöðva, að leitað yrði leiða til að auka möguleika til samruna, aukins samstarfs og verkaskiptingar í kjötafurðavinnslu.

    05. maí 2021Umhverfi og náttúruvernd, Covid-19, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Nýsköpun, Loftslagsmál, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Umræðuskjal um Landbúnaðarstefnu fyrir Ísland kynnt

    Landnýting, loftslagsmál og umhverfisvernd, nýsköpun og tækni eru þrjár lykilbreytur sem munu marka landbúnaðarstefnu fyrir Ísland til framtíðar. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, stóð í dag fyrir fjarfundi þar sem kynntvar Ræktum Ísland! umræðuskjal um landbúnaðarstefnu fyrir Ísland.

    • First
    • Prev
    • 25
    • 26
    • 27
    • 28
    • 29
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband