Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1401–1450 af 3887
    Raða eftir:
    03. nóv. 2021Forsætisráðuneytið

    Fundir forsætisráðherra á COP26

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, átti fjölda tvíhliða funda með erlendum þjóðarleiðtogum á loftslagsráðstefnunni í Glasgow.

    03. nóv. 2021Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Opið fyrir umsóknir í ungmennaráð heimsmarkmiðanna

    Opnað hefur verið fyrir umsóknir í ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Forsætisráðherra fer með skipun ráðsins en óskað er eftir börnum sem eru tilbúin að sitja í ráðinu í tvö ár, frá og með janúar 2022. Átta meðlimir ungmennaráðsins verða kosnir á barnaþingi umboðsmanns barna sem haldið verður í Hörpu dagana 18.-19. nóvember. Þar verða saman komin um 150 börn allstaðar að af landinu og munu þau hljóta kjörlista með upplýsingum um hvern frambjóðenda og persónuupplýsingum. Fjórir meðlimir ráðsins verða svo valdir í kjölfarið, af valnefnd á vegum forsætisráðuneytisins. Val á þeim einstaklingum miðast við að tryggja fjölbreytileika barnanna í ráðinu.

    02. nóv. 2021Forsætisráðuneytið

    580 milljarðar í grænar fjárfestingar

    Þrettán íslenskir lífeyrissjóðir ætla að fjárfesta fyrir um 580 milljarða króna í verkefnum sem tengjast hreinni orku og öðrum umhverfisvænum lausnum fram til ársins 2030.

    02. nóv. 2021Forsætisráðuneytið

    Markmið og aðgerðir Íslands á loftslagsráðstefnunni í Glasgow

    Skilaboð Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, í ræðu sinni á loftslagsráðstefnunni í Glasgow voru skýr. Markmiðin frá París duga ekki til að hemja hlýnun jarðar. Gera þarf betur.

    01. nóv. 2021Forsætisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Utanríkisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hafin

    Tuttugasti og sjötti aðildaríkjafundur Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (COP26)stendur nú yfir í Glasgow.

    25. okt. 2021Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði alþjóðlega jarðhitaráðstefnu í Hörpu

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í morgun ávarp við opnun alþjóðlegu jarðhitaráðstefnunnar World Geothermal Congress sem fram fer í Hörpu. Um er að ræða stærstu alþjóðlegu jarðhitaráðstefnu heims en hún er haldin á fimm ára fresti.

    20. okt. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Nýtt mælaborð um stöðu aðgerða í forvarnaráætlun gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni

    Nýtt mælaborð aðgerða í samþykktri forvarnaráætlun meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi fyrir árin 2021 – 2025 var kynnt í dag í forsætisráðuneytinu. Markmiðið með mælaborðinu er að fylgja eftir þeim aðgerðum sem settar voru fram í þingsályktun um forvarnir sem eru 26 talsins og skipt niður í sex meginþætti.

    19. okt. 2021Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir uppsetningu á La Traviata

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita þremur milljónum króna af ráðstöfunarfé sínu til Menningarfélags Akureyrar og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands vegna uppsetningar á óperunni La Traviata.

    19. okt. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1043/2021. Úrskurður frá 19. október 2021.

    Kærð var ákvörðun dómsmálaráðuneytisins um að synja beiðni um aðgang að gögnum er varða spilakassarekstur. Ráðuneytið taldi óheimilt að afhenda innsend erindi Íslandsspila sf. og Happdrættis Háskóla Íslands enda hefðu þau að geyma upplýsingar um virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni aðilanna, sbr. 2. málsl. 9. gr. laganna. Að mati úrskurðarnefndarinnar vörðuðu gögnin ekki slíka hagsmuni. Var ákvörðunin því felld úr gildi og lagt fyrir ráðuneytið að afhenda kæranda gögnin.

    18. okt. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1042/2021. Úrskurður frá 18. október 2021.

    Deilt var um synjun Seðlabanka Íslands á beiðni blaðamanns um aðgang að gögnum um úthlutun LBI hf. á hlutabréfum í Landsbankanum hf. til starfsmanna árið 2013. Ákvörðun Seðlabankans byggði einkum á því að gögnin væru háð þagnarskyldu, sbr. 1. mgr. 41. gr. laga nr. 92/2019. Úrskurðarnefndin staðfesti synjunina og tók fram að þagnarskylduákvæðið gerði ekki ráð fyrir því að hagsmunamat færi fram við ákvörðun á því hvort almenningur ætti rétt til aðgangs að gögnunum heldur nægði að gögnin vörðuðu hagi viðskiptamanna bankans til að upplýsingaréttur almennings yrði takmarkaður á grundvelli ákvæðisins.

    18. okt. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1041/2021. Úrskurður frá 18. október 2021.

    Kærð var ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytisins um að synja beiðni um aðgang að greinargerð setts ríkisendurskoðanda um starfsemi Lindarhvols ehf. Ákvörðun ráðuneytisins byggði á því að umbeðin gögn væru háð sérstakri þagnarskyldu skv. 3. mgr. 15. gr. laga nr. 46/2016, sbr. fyrri úrskurði úrskurðarnefndarinnar. Kærandi taldi þagnarskylduákvæðið ekki eiga við í þessu tilviki enda hefði greinargerðin ekki verið send ráðuneytinu sem drög, á grundvelli lagaskyldu, heldur hefði verið um lokaskil hennar að ræða. Úrskurðarnefndin taldi ljóst af greinargerðinni að ekki væri um endanlega útgáfu að ræða. Greinargerðin væri þar með undirorpin sérstakri þagnarskyldu, sbr. 3. mgr. 15. gr. laga nr. 46/2016, sem gengi framar rétti almennings til aðgangs að upplýsingum samkvæmt upplýsingalögum, sbr.…

    18. okt. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1040/2021. Úrskurður frá 18. október 2021.

    Blaðamaður kærði afgreiðslu Barnaverndarstofu á beiðni hans um gögn sem varða meðferðarheimilið Laugaland. Kærandi fékk afhentan hluta umbeðinna gagna en var synjað um tvö skjöl á þeim grundvelli að þau vörðuðu einkamálefni einstaklinga, sbr. 9. gr. upplýsingalaga, og að þau væru vinnugögn í skilningi 8. gr. laganna. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál skoðaði gögnin og taldi engum vafa undirorpið að gögnin lytu að einkamálefnum einstaklinga sem sanngjarnt og eðlilegt væri að leynt færu. Nefndin taldi Barnaverndarstofu ekki unnt að fjarlægja allar persónugreinanlegar upplýsingar úr gögnunum og afhenda þau svo kæranda þar sem gögnin innihéldu nær eingöngu slíkar upplýsingar. Var ákvörðun Barnaverndarstofu því staðfest.

    18. okt. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1039/2021. Úrskurður frá 18. október 2021.

    Blaðamaður kærði synjun Barnaverndarstofu á beiðni hans um gögn sem varða meðferðarheimilið Laugaland. Synjunin byggði á því að afgreiðsla beiðninnar tæki svo mikinn tíma og krefðist svo mikillar vinnu að ekki væri af þeim sökum fært að verða við henni, sbr. 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga, enda þyrfti að yfirfara gögnin og afmá viðkvæmar persónugreinanlegar upplýsingar, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að í ljósi umfangs beiðninnar og viðkvæms eðlis gagnanna ætti undantekning 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga við í málinu og staðfesti ákvörðun Barnaverndarstofu.

    14. okt. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpar ráðstefnu Jafnvægisvogar FKA

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpaði í dag stafræna ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar FKA. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) og markmið hennar er að 2027 verði hlutfall kynja 40/60 í framkvæmdastjórnum fyrirtækja á Íslandi. ​

    14. okt. 2021Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði Hringborð norðurslóða

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í dag ávarp við opnun þings Hringborðs norðurslóða, Arctic Circle, sem fram fer í Hörpu.

    13. okt. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Styrkveitingar Jafnréttissjóðs Íslands frá 2016 til 2020

    Eitt hundrað milljónum króna af fjárlögum hefur verið varið ár hvert í Jafnréttissjóð Íslands á tímabilinu 2016 til 2020 og voru alls 132 verkefni styrkt á tímabilinu. Tryggt hefur verið fjármagn til sjóðsins sem felur í sér að um 60 milljónum króna verður úthlutað úr Jafnréttissjóði 2023 og 2025.

    05. okt. 2021Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Verkfærakista fyrir fyrirtæki um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

    Í dag gaf verkefnastjórn stjórnvalda um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna út verkfærakistu um innleiðingu fyrirtækja á markmiðunum. Verkfærakistunni er ætlað að vera fyrirtækjum til leiðbeiningar um hvernig þau geta lagt sitt af mörkum í þágu heimsmarkmiðanna en fyrr á þessu ári gaf verkefnastjórnin út sambærilega verkfærakistu fyrir sveitarfélög.

    24. sep. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra skipar aðgerðahóp um launajafnrétti og jafnrétti á vinnumarkaði

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur skipað aðgerðahóp stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um launajafnrétti og jafnrétti á vinnumarkaði.

    24. sep. 2021Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði Matvælaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti ávarp á Matvælaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem fram fór bæði rafrænt og í New York í gær. Ráðstefnan er haldin í tengslum við ráðherraviku allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna sem fram fer í þessari viku.

    23. sep. 2021Forsætisráðuneytið

    Hermann Sæmundsson skipaður skrifstofustjóri á skrifstofu stefnumála

    Forsætisráðherra hefur ákveðið að skipa Hermann Sæmundsson í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu stefnumála í forsætisráðuneytinu til fimm ára. Embættið var auglýst laust til umsóknar 5. ágúst sl. Alls bárust 22 umsóknir um embættið en þrír umsækjendur drógu umsókn sína til baka. Af þeim 19 sem eftir stóðu voru sjö konur og 12 karlar.

    22. sep. 2021Forsætisráðuneytið

    Ríkið og Landsvirkjun semja um endurgjald vegna nýtingar á réttindum á Þjórsársvæði

    Forsætisráðuneytið og Landsvirkjun hafa náð samningum um endurgjald vegna nýtingar Landsvirkjunar á vatns- og landsréttindum á Þjórsársvæði innan þjóðlendna.

    21. sep. 2021Umhverfi og náttúruvernd, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Loftslagsmál, Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Samið um starfsemi og fjármögnun Grænvangs til 2026

    Samkomulag um áframhaldandi starfsemi og fjármögnun Grænvangs til ársins 2026 var undirritað síðastliðinn föstudag. Grænvangur er samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir sem stofnaður var fyrir tveimur árum. Við þetta tilefni opnaði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fyrsta áfanga nýrrar margmiðlunarsýningar sem ber heitið Græn framtíð og staðsett er í Grósku-hugmyndahúsi í Vatnsmýrinni.

    17. sep. 2021Forsætisráðuneytið

    Viljayfirlýsing um undirbúning viðburða í tilefni 50 ára afmælis gosloka

    Í dag undirrituðu þær Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, viljayfirlýsingu um samvinnu og undirbúning viðburða í tilefni þess að árið 2023 verða 50 ár liðin frá eldgosinu á Heimaey og 60 ár liðin frá eldgosinu í Surtsey.

    16. sep. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Alþjóðlegi jafnlaunadagurinn haldinn í annað sinn

    Í tilefni af alþjóðlega jafnlaunadeginum sem nú er haldinn í annað sinn munu forsætisráðuneytið og Reykjavíkurborg sameina krafta sína á rafrænum morgunfundi milli kl. 08:30 og 09:30 í fyrramálið, föstudaginn 17. september.

    15. sep. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Nýtt miðlægt vefsvæði um jafnréttismál á vef Stjórnarráðsins

    Forsætisráðuneytið hefur sett í loftið nýtt og uppfært miðlægt vefsvæði um jafnréttismál á vef Stjórnarráðsins.

    14. sep. 2021Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Ríkisstjórnin kemur til móts við ófyrirséð útgjöld vegna aurskriða á Seyðisfirði

    Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að veita Múlaþingi og stofnunum fjárstyrk til að mæta óvæntum og ófyrirséðum útgjöldum vegna brýnustu viðbragða og framkvæmda í kjölfar aurskriðanna á Seyðisfirði í desember 2020.

    14. sep. 2021Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ráðherrar undirrita viljayfirlýsingu um þróunarverkefni til að draga úr losun koldíoxíðs

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um samstarf ráðuneytanna og fyrirtækjanna Ocean Geoloop AS og North Tech Energy ehf.

    14. sep. 2021Forsætisráðuneytið

    Nefnd undirbýr rannsókn á aðbúnaði og meðferð fullorðins fatlaðs fólks og fullorðinna með geðrænan vanda

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur skipað þriggja manna nefnd til að undirbúa rannsókn á aðbúnaði og meðferð fullorðins fatlaðs fólks og fullorðinna með geðrænan vanda. Er nefndin skipuð samkvæmt ályktun Alþingis frá 12. júní sl.

    11. sep. 2021Forsætisráðuneytið, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Elif Shafak handhafi Alþjóðlegra bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness 2021

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, afhenti í dag rithöfundinum Elif Shafak alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness á Bókmenntahátíðinni í Reykjavík. Að afhendingu lokinni flutti Elif Shafak fyrirlestur Halldórs Laxness.

    09. sep. 2021Forsætisráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs 2021

    Dr. Martin Ingi Sigurðsson, prófessor í svæfinga- og gjörgæslulækningum við Háskóla Íslands, og dr. Erna Sif Arnardóttir, lektor við verkfræði- og tölvunarfræðideildir Háskólans í Reykjavík og forstöðumaður Svefnseturs HR, fengu í dag hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs.

    08. sep. 2021Forsætisráðuneytið

    Tímamótaverkefni í loftslagsmálum

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpaði gesti við opnun á Orca, nýju loftsuguveri svissneska fyrirtækisins Climeworks á Hellisheiði í morgun. Um tímamótaverkefni er að ræða því loftsugurnar fanga koldíoxíð beint úr andrúmsloftinu sem kolefnisfargarar í Carbfix dæla svo niður í basaltberglög á svæðinu til varanlegrar steinrenningar.

    07. sep. 2021Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Skýrsla gefin út um störf án staðsetningar

    Skýrsla um stöðu og framtíðarhorfur verkefnisins Störf án staðsetningar hefur verið gefin út á vegum forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis.

    07. sep. 2021Heimsmarkmiðin, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Mælaborð um stöðu Íslands gagnvart heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna

    Í lok síðasta árs ákvað verkefnastjórn stjórnvalda um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna að meta stöðu Íslands gagnvart öllum 169 undirmarkmiðum heimsmarkmiðanna. Nú er þeirri stöðutöku lokið í formi mælaborðs sem á myndrænan hátt gerir grein fyrir stöðu markmiðanna á Íslandi.

    07. sep. 2021Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Skýrsla starfshóps um endurmat á störfum kvenna í Samráðsgátt

    Skýrsla starfshóps Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, um endurmat á störfum kvenna hefur verið lögð fram til opin samráðs í Samráðsgátt stjórnvalda. Hópurinn var skipaður 1. desember 2020 í kjölfar yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar í tengslum við gerð kjarasamninga milli ríkis og sveitarfélaga og aðildarfélaga BSRB í mars 2020.

    07. sep. 2021Rit og skýrslur, Sveitarstjórnir og byggðamál, Byggðamál, Innviðaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Skýrsla um störf án staðsetningar

    september 2021 / Innviðaráðuneytið Forsætisráðuneytið Fjármála- og efnahagsráðuneytið Skýrsla um störf án staðsetningar Skýrsla um stöðu og framtíðarhorfur verkefnisins Störf án staðsetningar hefur verið gefin út á vegum fjármála- og efnahagsráðuneytis, forsætisráðuneytis og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis. Verkefnið er hluti af byggðaáætlun 2018-2024 en í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að ráðuneytum og stofnunum þeirra verði falið að skilgreina störf og auglýsa þau án staðsetningar eins og kostur er, þannig að búseta hafi ekki áhrif við val á starfsfólki

    07. sep. 2021Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Kynbundinn launamunur fer minnkandi samkvæmt nýrri rannsókn

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, kynnti nýja rannsókn á launamun kynjanna á ríkisstjórnarfundi í morgun. Í rannsókninni sem Hagstofa Íslands framkvæmdi fyrir forsætisráðuneytið kemur fram að launamunur karla og kvenna hefur dregist saman ​frá 2008 til 2020 og á það jafnt við um atvinnutekjur, óleiðréttan og leiðréttan launamun.

    06. sep. 2021Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra afhendir yfirlýsingu um kynbundið ofbeldi á fundi norrænna ráðherra jafnréttismála

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sat rafrænan fund norrænna ráðherra jafnréttismála í dag. Forsætisráðherra afhenti yfirlýsingu frá ráðstefnunni Reykjavik Dialogue sem haldin var á Íslandi í ágúst sl. um kynbundið ofbeldi gagnvart stúlkum og konum.

    03. sep. 2021Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Skrifað undir samning um kaup á 3 björgunarskipum

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Þór Þorsteinsson, formaður Landsbjargar, skrifuðu í dag undir samning um kaup á þremur nýjum björgunarskipum. Undirritunin fór fram við setningu landsþings Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Hörpu í dag.

    03. sep. 2021Forsætisráðuneytið

    Ákall kvenleiðtoga vegna stöðu kvenna og stúlkna í Afganistan

    Hópur kvenleiðtoga í heiminum hefur sent frá sér ákall til valdhafa í Afganistan um að tryggja og bæta réttindi kvenna og stúlkna í landinu. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Zuzana Čaputová, forseti Slóvakíu, höfðu frumkvæði að ákallinu.

    02. sep. 2021Forsætisráðuneytið

    Rætt um réttlát umskipti á fundi þjóðhagsráðs

    Þjóðhagsráð kom saman til fundar í dag til að ræða um réttlát umskipti í vegferðinni í átt að kolefnishlutlausu samfélagi. Var þetta síðasti fundur ráðsins á þessu kjörtímabili.

    02. sep. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1038/2021. Úrskurður frá 27. ágúst 2021.

    A kærði afgreiðslu Hafnarfjarðarbæjar á beiðni um aðgang að gögnum hjá sveitarfélaginu sem tengjast breytingu á deiliskipulagi. Beiðni kæranda hafði ekki verið afgreidd af sveitarfélaginu um tíu mánuðum eftir að hún var lögð fram. Úrskurðarnefndin taldi hafið yfir allan vafa að tafir á afgreiðslu Hafnarfjarðarbæjar á beiðni kæranda teldust óréttlætanlegar og úrskurðaði því um rétt kæranda til aðgangs að umbeðnum gögnum samkvæmt 3. mgr. 17. gr. upplýsingalaga.

    02. sep. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1037/2021. Úrskurður frá 27. ágúst 2021.

    Kærð var synjun heilbrigðisráðuneytisins á beiðni um aðgang að samningum íslenska ríkisins um kaup á bóluefnum gegn COVID-19. Synjun ráðuneytisins byggðist annars vegar á því að samningarnir hefðu að geyma upplýsingar um mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni framleiðenda bóluefnanna, sbr. 2. málsl. 9. gr. upplýsingalaga, en hins vegar á því að mikilvægir almannahagsmunir krefðust þess að aðgangur kæranda yrði takmarkaður, sbr. 2. tölul. 10. gr. laganna. Úrskurðarnefndin féllst á það með ráðuneytinu að umbeðin gögn hefðu að geyma upplýsingar um samskipti við önnur ríki og fjölþjóðastofnanir sem mikilvægir almannahagsmunir stæðu til að fari leynt. Að fenginni þeirri niðurstöðu var að mati nefndarinnar óþarft að kanna hvort skilyrði 9. gr.…

    02. sep. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1036/2021. Úrskurður frá 27. ágúst 2021.

    A kærði synjun Garðabæjar á beiðni um aðgang að gögnum er vörðuðu störf starfsmanns sveitarfélagsins. Af hálfu sveitarfélagsins kom fram að erindi kæranda hefði ekki leitt til gagnagerðar eða söfnunar gagna af hálfu bæjarins. Úrskurðarnefndin taldi ekki forsendur til að rengja staðhæfingu sveitarfélagsins og vísaði kærunni frá.

    02. sep. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1035/2021. Úrskurður frá 27. ágúst 2021.

    Ritstjóri fréttaskýringarþáttar á RÚV kærði afgreiðslu Sjúkratrygginga Íslands á beiðni um aðgang að upplýsingum um nöfn lækna sem afmáð voru úr töflureikningskjali. Synjun stofnunarinnar var byggð á því að óheimilt væri að veita kæranda aðgang að umbeðnum upplýsingum með vísan til 9. gr. upplýsingalaga, þar sem hætta gæti skapast á því að unnt væri að persónugreina sjúklinga. Úrskurðarnefndin féllst ekki á að óheimilt væri að veita kæranda aðgang að umbeðnum upplýsingum á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga og lagði því fyrir Sjúkratryggingar Íslands að veita kæranda aðgang að þeim.

    02. sep. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1034/2021. Úrskurður frá 27. ágúst 2021.

    Deilt var um afgreiðslu sýslumannsins í Vestmannaeyjum á beiðni kæranda um aðgang að öllum fundagerðum, bréfasamskiptum og símtölum sýslumannsins við Vestmannaeyjabæ á grundvelli 7. gr. laga nr. 50/2014 um framkvæmdavald og stjórnsýslu ríkisins á ótilgreindu tímabili. Embætti sýslumannsins í Vestmannaeyjum taldi ómögulegt án verulegrar fyrirhafnar að afmarka beiðnina við tiltekin gögn eða tiltekið mál sbr. 3. mgr. 15. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi beiðni kæranda ekki uppfylla skilyrði 1. mgr. 15. gr. upplýsingalaga og vísaði kærunni frá.

    02. sep. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1033/2021. Úrskurður frá 27. ágúst 2021.

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að viðaukum við skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um eldsvoða að Bræðraborgarstíg. Synjun stofnunarinnar um hluta umbeðinna gagna var byggð á því að um vinnugögn væri að ræða samkvæmt. 5. tölul. 6. gr. upplýsingalaga, sbr. 8. gr. laganna. Úrskurðarnefndin fór yfir gögnin og staðfesti synjun stofnunarinnar að þessu leyti. Þá lagði úrskurðarnefndin fyrir Húsnæðis- og mannvirkjastofnun að taka beiðni kæranda um upplýsingar um nöfn þess starfsfólks sem kom að ritun skýrslunnar til efnislegrar meðferðar. Kærunni var að öðru leyti vísað frá.

    01. sep. 2021Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra styrkir Samtökin ’78 vegna húsnæðismála

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur ákveðið að veita Samtökunum ´78 fjögurra milljóna króna húsnæðisstyrk vegna vatnstjóns og mygluskemmda á húsnæði samtakanna.

    01. sep. 2021Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Samantekt um sögu Jafnréttisráðs 1976-2020 komin út

    Tekin hefur verið saman saga Jafnréttisráðs frá stofnun þess 1976 fram til árloka 2020 þegar ráðið var lagt niður með nýjum jafnréttislögum nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.

    31. ágú. 2021Covid-19, Forsætisráðuneytið

    Nefnd greinir áfallastjórnun stjórnvalda vegna COVID-19

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur ákveðið að skipa þriggja manna nefnd sem vinna á úttekt á viðbrögðum stjórnvalda við COVID-19. Meginverkefni nefndarinnar verður að greina áfallastjórnun vegna faraldursins.

    31. ágú. 2021Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Áframhaldandi samstarf um heimsþing kvenleiðtoga á Íslandi

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, og Silvana Koch-Mehrin, forseti og stofnandi Women Political Leaders (WPL), undirrituðu samstarfsyfirlýsingu í Stjórnarráðshúsinu í dag.

    • First
    • Prev
    • 27
    • 28
    • 29
    • 30
    • 31
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband