19. feb. 2021Dómsmálaráðuneytið, Löggæsla, Rafræn viðskipti, Dómstólar
Hönnunarsprettur í Réttarvörslugátt
Síðustu daga fór fram svokallaður hönnunarsprettur fyrir ákærur í sakamálum sem er hluti verkefnisins Réttarvörslugátt. Stafræn réttarvörslugátt er verkefni sem er leitt af Dómsmálaráðuneytinu og snýst um að útbúa samskiptagátt stofnana í réttarvörslukerfinu, m.a. lögreglu, ákæruvalds, dómstóla og fangelsa.