Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1501–1550 af 3887
    Raða eftir:
    29. jún. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1015/2021. Úrskurður frá 26. maí 2021.

    A fréttamaður, kærði synjun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins á beiðni hans um aðgang að gögnum sem tengdust samskiptum ráðuneytisins og ríkisskattstjóra varðandi rétt almennings til aðgangs að upplýsingum um raunverulegt eignarhald. Að mati úrskurðarnefndarinnar uppfylltu gögnin ekki skilyrði upplýsingalaga fyrir því að teljast vinnugögn, sbr. 8. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál komst að þeirri niðurstöðu að kærandi ætti rétt til aðgangs að gögnunum enda fengi nefndin ekki séð að aðrar takmarkanir upplýsingalaga ættu við um gögnin. Lagt var fyrir ráðuneytið að veita kæranda aðgang að tölvupóstssamskiptum ráðuneytisins við ríkisskattstjóra, dags. 6. nóvember til 10. nóvember 2020.

    29. jún. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1014/2021. Úrskurður frá 26. maí 2021.

    Deilt var um afgreiðslu Dalvíkurbyggðar á beiðni kærenda um aðgang að útgefnu byggingarleyfi og mæliblaði vegna hæðakvóta tveggja lóða. Að mati úrskurðarnefndarinnar skorti að tekin hefði verið rökstudd afstaða til gagnabeiðni kærenda á grundvelli upplýsingalaga og beiðnin því ekki hlotið þá efnislegu meðferð á lægra stjórnsýslustigi sem nefndinni væri fært að endurskoða. Ákvörðunin var því felld úr gildi og lagt fyrir Dalvíkurbyggð að taka málið til nýrrar meðferðar en kærunni vísað frá að öðru leyti.

    29. jún. 2021Forsætisráðuneytið

    Alþingi kemur saman í næstu viku

    Alþingi samþykkti nýverið frumvarp til laga um breytinga á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra. Við þinglega meðferð málsins urðu þau mistök að ákvæði um listabókstaf stjórnmálasamtaka í lögum um kosningar til Alþingis féll brott, þ.á. m. nýsamþykkt breyting sem heimilar rafræna söfnun meðmæla með heiti og listabókstaf samtaka.

    29. jún. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1013/2021. Úrskurður frá 26. maí 2021.

    A blaðamaður, kærði ákvörðun ríkislögmanns um að synja beiðni hans um aðgang að stefnu. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á það með ríkislögmanni að ákvæði laga um meðferð einkamála giltu um stefnur í dómsmálum í vörslu embættisins. Var komist að þeirri niðurstöðu að upplýsingalög giltu um afgreiðslu embættisins á beiðninni. Synjun ríkislögmanns byggðist fyrst og fremst á því að upplýsingar í stefnunum væru undanþegnar upplýsingarétti þar sem þær vörðuðu mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni stefnanda, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi að gögnin geymdu ekki slíkar upplýsingar og var því lagt fyrir ríkislögmann að veita aðgang að stefnunum.

    25. jún. 2021Forsætisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið

    Staða í bólusetningum með besta móti á Íslandi

    Þann 24. júní höfðu 258.120 Íslendingar fengið að minnsta kosti fyrri bólusetningu. Þar af höfðu 174.732 fengið fulla bólusetningu. Staðan hér á landi er nú með besta móti í alþjóðlegu samhengi ef litið er til fjölda sem fengið hefur að minnsta kosti einn skammt bóluefnis.

    24. jún. 2021Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra undirritar samstarfsamning við FKA

    Forsætisráðuneytið og Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA) hafa endurnýjað samning um þróun og kynningu Jafnvægisvogarinnar.

    23. jún. 2021Forsætisráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Forsætisráðherra hélt ávarp í tilefni af útgáfu loftlagsvegvísis atvinnulífsins

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hélt í dag ávarp í tilefni af útgáfu loftslagsvegvísis atvinnulífsins sem nú er gefinn út í fyrsta sinn.

    22. jún. 2021Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra heimsótti Vestmannaeyjar

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, heimsótti Vestmannaeyjar í dag. Hún heimsótti m.a. þekkingarsetur Vestmannaeyja, þar sem hún kynnti sér margháttaða starfsemi ýmissa stofnana og fyrirtækja, og Sjóvarmadælustöðina þar sem sjór er hitaður með rafmagni. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, tók á móti Katrínu og fylgdi henni í heimsókninni.

    18. jún. 2021Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra veitir styrki úr Jafnréttissjóði Íslands

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, veitti styrki úr Jafnréttissjóði Íslands við hátíðlega athöfn í Hörpu í dag. Alls hlutu átta verkefni og rannsóknir styrki.

    17. jún. 2021Forsætisráðuneytið

    Sigur þekkingarleitar, verkvits og samstöðu

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ræddi hvað það merkir að vera þjóð og hvaða merkingu þjóðhátíðardagur Íslands hefur í samtímanum í ávarpi sínu á Austurvelli í morgun. Hún velti því upp að faraldurinn hafi mögulega gert okkur að meiri þjóð en við höfum lengi verið og hvernig við sem búum í þessu samfélagi tengdumst áþreifanlegum böndum og sérhver þráður hafi skipt máli fyrir okkar daglega líf.

    17. jún. 2021Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Sýning um forsetatíð og störf Vigdísar Finnbogadóttur verður opnuð í Loftskeytastöðinni

    Sýning sem helguð verður forsetatíð og störfum Vigdísar Finnbogadóttur verður opnuð í Loftskeytastöðinni við hlið Veraldar - húss Vigdísar á næsta ári samkvæmt viljayfirlýsingu stjórnvalda og Háskóla Íslands. Viljayfirlýsingin var undirrituð á hátíðarsamkomu í Hátíðarsal Háskóla Íslands í morgun sem haldin var í tilefni af 110 ára afmæli háskólans. Við athöfnina afhenti Vigdís Finnbogadóttir Háskóla Íslands muni frá forsetatíð sinni sem verða m.a. grundvöllur sýningarinnar.

    15. jún. 2021Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Tímabundið leyfi frá störfum

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, mun að læknisráði fara í tímabundið veikindaleyfi.

    14. jún. 2021Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Leiðtogar Atlantshafsbandalagsins funduðu í Brussel

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sótti í dag leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem fram fór í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra sótti einnig fundinn.

    14. jún. 2021Forsætisráðuneytið

    Katrín ávarpaði ráðherrafund Sameinuðu þjóðanna um landgræðslumál

    Ráðherrafundur um landgræðslumál fer fram í dag á vettvangi Sameinuðu þjóðanna í New York. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpaði fundinn á myndbandi ásamt stórum hópi annarra leiðtoga og ráðherra hvaðanæva úr heiminum.

    13. jún. 2021Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Forsætisráðherra og utanríkisráðherra á leiðtogafundi NATO

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sækir á morgun fund leiðtoga Atlantshafsbandalagsins í Brussel. Þetta er fyrsti fundur forsætisráðherra erlendis í meira en ár. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra situr einnig fundinn.

    13. jún. 2021Forsætisráðuneytið

    Svanni úthlutar lánum til fjögurra frumkvöðlafyrirtækja

    Fjögur verkefni fengu lán frá Svanna - lánatryggingasjóði kvenna í vorúthlutun sjóðsins; Fæðingarheimili Reykjavíkur, Justikal, Eylíf og FÓLK. Forsvarskonur þessara ólíku og áhugaverðu fyrirtækja eru á einu máli um það að liðsinni Svanna sé þeim afar mikilvægt og gerir fyrirtækjunum kleift að vaxa og dafna.

    11. jún. 2021Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Nýr samráðsvettvangur um jafnréttismál

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra boðaði til fyrsta fundar nýs samráðsvettvangs um jafnrétti kynjanna í Hannesarholti í dag.

    10. jún. 2021Forsætisráðuneytið

    Þrír sérfræðingar gera úttekt á reynslunni af starfi nefnda Seðlabanka Íslands

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur skipað nefnd þriggja óháðra sérfræðinga til að gera úttekt á reynslunni af starfi nefnda Seðlabanka Íslands.

    07. jún. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1012/2021. Úrskurður frá 11. maí 2021.

    Deilt var um afgreiðslu kærunefndar útlendingamála á beiðni blaðamanns um aðgang að úrskurðum kærunefndarinnar á tilgreindu tímabili. Kærunefndin brást við beiðni kæranda með því að vísa á heimasíðu kærunefndarinnar þar sem eingungis hluti þeirra úrskurða sem óskað var eftir var birtur. Úrskurðarnefndin tók fram að við slíkar aðstæður bæri kærunefndinni að taka rökstudda afstöðu til þeirra gagna sem út af stæðu með hliðsjón af ákvæðum upplýsingalaga. Þar sem slíkt mat hafði ekki farið fram skorti að mati úrskurðarnefndarinnar á að tekin hafi verið rökstudd afstaða til gagnabeiðni kæranda. Ákvörðun kærunefndar útlendingamála var því felld úr gildi og lagt fyrir kærunefndina að taka beiðnina til nýrrar meðferðar.

    07. jún. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1011/2021. Úrskurður frá 11. maí 2021.

    A kærði synjun Herjólfs ohf. á beiðni um nöfn umsækjenda um sumar- og framtíðarstörf háseta og þerna á Herjólfi. Úrskurðarnefndin staðfesti synjun félagsins með vísan til þess að ekki væri skylt að veita aðgang að upplýsingum um nöfn umsækjenda um starf hjá lögaðilum sem falla undir upplýsingalög, ólíkt því sem gildir um umsækjendur um starf hjá hinu opinbera.

    07. jún. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1010/2021. Úrskurður frá 11. maí 2021.

    Beiðni kæranda um endurupptöku úrskurðar nr. 979/2021 var hafnað. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga um endurupptöku ekki uppfyllt og að ekki væru rökstuddar vísbendingar um að á úrskurðinum væru verulegir annmarkar að lögum.

    07. jún. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1009/2021. Úrskurður frá 11. maí 2021.

    A fréttamaður, kærði afgreiðslu ríkisskattstjóra á beiðni hans um aðgang að gögnum um skráningu raunverulegra eigenda tveggja lögaðila. Úrskurðarnefndin staðfesti þá niðurstöðu ríkisskattstjóra að afmá tilteknar upplýsingar varðandi annað félaganna. Nefndin vísaði öðrum þætti kærunnar frá með vísan til þess að ekki hafi legið fyrir synjun um beiðni gagnanna. Þá vísaði nefndin frá þeim þætti kærunnar er sneri að upplýsingum í tengslum við gjaldþrot annars félaganna þar sem upplýsingarnar féllu undir sérstakt þagnarskylduákvæði laga nr. 150/2019. Loks taldi úrskurðarnefndin ríkisskattstjóra skylt að verða við beiðni kæranda um afhendingu umbeðinna gagna á því formi sem þau væru varðveitt hjá embættinu í samræmi við fyrirmæli 1. mgr. 18. gr. upplýsingalaga.…

    07. jún. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1008/2021. Úrskurður frá 11. maí 2021.

    Deilt var um afgreiðslu Vestmannaeyjabæjar á beiðni kæranda um upplýsingar. Kæran laut að því að sveitarfélagið hafi ekki brugðist við erindi kæranda. Af kæru kæranda sem var afar óljós, mátti hvorki ráða að hvaða beiðni kæranda til sveitarfélagsins hún laut né hvenær hún var lögð fram. Með hliðsjón af fjölda beiðna kæranda til sveitarfélagsins og þess að kærandi brást ekki við beiðni úrskurðarnefndarinnar um frekari upplýsingar að hvaða ákvörðun stjórnsýslukæra kæranda beindist í þessu máli, taldi úrskurðarnefndin sér ekki fært að úrskurða hvort um óhæfilegan drátt á afgreiðslu beiðninnar hafi verið að ræða. Var kærunni því vísað frá nefndinni.

    07. jún. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1007/2021. Úrskurður frá 11. maí 2021.

    A, fréttamaður kærði ákvörðun ríkislögmanns um að synja beiðni hans um aðgang að stefnu. Úrskurðarnfendin taldi að þar sem stefnan var ekki hluti af gögnum sem lágu til grundvallar ákvörðun um skipun í embætti yrði synjun um aðgang að henni ekki með beinum hætti reist á 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga. Þá taldi nefndin þær upplýsingar sem fram komu í stefnunni og þegar höfðu verið birtar opinberlega í samræmi við ákvæði 5. mgr. 8. gr. laga nr. 10/2008, ekki verða felldar undir 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin lagði fyrir ríkislögmann að veita kæranda aðgang að umræddri stefnu, en þó skyldi afmá ákveðnar upplýsingar.

    07. jún. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1006/2021. Úrskurður frá 11. maí 2021.

    A, fréttamaður, kærði synjun forsætisráðuneytisins á beiðni hans um aðgang að fundargerð ríkisráðs frá 31. desember 2012, á þeim grundvelli að takmarkanir á aðgangi gagnsins skv. 1. tölul. 6. gr. upplýsingalaga hefðu fallið niður að átta árum liðnum frá því að það varð til, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 12. gr. laganna. Forsætisráðuneytið synjaði beiðni kæranda með vísan til þess að skv. lokamálsl. 3. mgr. 36. gr. laganna taki umrætt ákvæði aðeins til gagna sem verða til eftir gildistöku upplýsingalaga, þ.e. frá og með 1. janúar 2013. Úrskurðarnefndin taldi ljóst að ákvæði 1. tölul. 1. mgr. 12. gr. upplýsingalaga tæki ekki til umbeðins gagns og staðfesti synjun forsætisráðuneytisins á beiðni kæranda.

    02. jún. 2021Covid-19, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    500 milljóna viðbótarframlag til COVAX

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tilkynnti í dag um 500 milljón króna viðbótarframlag Íslands til alþjóðlegs samstarfs um bættan aðgang að bóluefnum við COVID-19 (COVAX). Ísland hefur nú varið rúmum milljarði króna til að bæta aðgang þróunarríkja að bóluefnum gegn COVID-19. Forsætisráðherra tilkynnti um framlag Íslands á áheitaráðstefnu bólusetningarbandalagsins Gavi.

    01. jún. 2021Forsætisráðuneytið

    Karlar kæra frekar

    268 mál komu til umfjöllunar úrskurðarnefndar um upplýsingamál á síðasta ári og voru langflest þeirra frá einstaklingum eða 162. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu forsætisráðherra til Alþingis um framkvæmd upplýsingalaga sem lögð hefur verið fram í sjötta sinn.

    28. maí 2021Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    90 milljónum úthlutað úr Barnamenningarsjóði Íslands

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, tilkynntu í Hörpu í dag um úthlutun úr Barnamenningarsjóði Íslands. Alls fengu 37 verkefni styrk og nemur heildarfjárhæð styrkjanna 90 milljónum króna en alls bárust 113 umsóknir.

    28. maí 2021Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

    Skýrsla stýrihóps um heildstæða löggjöf og stjórnsýslu varðandi jarðir, land og aðrar fasteignir

    maí 2021 / Forsætisráðuneytið Skýrsla stýrihóps um heildstæða löggjöf og stjórnsýslu varðandi jarðir, land og aðrar fasteignir Skýrsla stýrihóps um heildstæða löggjöf og stjórnsýslu varðandi jarðir, land og aðrar fasteignir

    28. maí 2021Forsætisráðuneytið

    Skýrsla um heildstæða löggjöf og stjórnsýslu varðandi jarðir, land og aðrar fasteignir lögð fram

    Stýrihópur um heildstæða löggjöf og stjórnsýslu varðandi jarðir, land og aðrar fasteignir sem forsætisráðherra skipaði í júní 2020 hefur skilað lokaskýrslu sinni og lagði ráðherra hana fram á fundi ríkisstjórnar í morgun. Markmið með starfi hópsins var að stuðla að því að nýting lands og réttinda sem því tengjast sé hagað í samræmi við landkosti og með hagsmuni samfélagsins og komandi kynslóða að leiðarljósi, að teknu tillit til efnahagslegra, félagslegra og menningarlegra sjónarmiða.

    21. maí 2021Sveitarstjórnir og byggðamál, Heimsmarkmiðin, Forsætisráðuneytið

    Katrín flutti ávarp á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpaði í dag Landsþing Samband íslenskra sveitarfélaga. Í ávarpi sínu ræddi forsætisráðherra heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og aukna áherslu á virka þátttöku sveitarfélaga í innleiðingu þeirra.

    21. maí 2021Covid-19, Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Reglugerð um landamæri framlengd til 15. júní

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja reglugerð um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19 til 15. júní nk. Á þeim tíma er gert ráð fyrir að a.m.k. 60% þjóðarinnar, sem jafngildir 75% af þeim sem áætlað er að bjóða í bólusetningu, hafi fengið a.m.k. fyrri skammt bólusetningar. Með þessu er tekið undir sjónarmið sóttvarnalæknis um að skynsamlegt sé að halda sýnatöku á landamærum óbreyttri um sinn í því skyni að geta hafið afléttingu sýnatöku á landamærum um miðjan júní.

    20. maí 2021Forsætisráðuneytið

    Katrín fundaði með Lavrov

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra átti fund með Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands í Hörpu í dag. Lavrov er staddur á Íslandi vegna fundar Norðurskautsráðsins.

    20. maí 2021Forsætisráðuneytið

    Katrín ávarpaði ársfund Iceland SIF

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpaði í morgun ársfund samtakanna Iceland SIF sem eru samtök fjárfesta um ábyrgar og sjálfbærar fjárfestingar. Í ávarpi sínu fór forsætisráðherra m.a. yfir áherslur ríkisstjórnarinnar í sjálfbærni- og loftslagsmálum.

    18. maí 2021Forsætisráðuneytið

    Katrín og Blinken áttu fund

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra átti í dag fund með Anthony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna sem er staddur á Íslandi í tilefni fundar Norðurskautsráðsins.

    18. maí 2021Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Varnargarðar fyrir ofan Nátthaga hækkaðir

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að verja allt að 20 milljónum króna til þess að hækka varnargarða fyrir ofan Nátthaga. Nú þegar hafa verið reistir tveir fjögurra metra háir varnargarðar og verða þeir hækkaðir í allt að átta metra.

    15. maí 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1005/2021. Úrskurður frá 28. apríl 2021.

    Beiðni kæranda um endurupptöku úrskurðar nr. 973/2021 var hafnað. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga um endurupptöku ekki uppfyllt og að ekki væru rökstuddar vísbendingar um að á úrskurðinum væru verulegir annmarkar að lögum.

    15. maí 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1004/2021. Úrskurður frá 28. apríl 2021.

    Deilt var um þá ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytisins að synja beiðni kæranda um aðgang að bréfi sem settur ríkisendurskoðandi sendi ráðuneytinu í tengslum við athugun á starfsemi Lindarhvols ehf. Ákvörðun ráðuneytisins var byggð á ákvæði 3. mgr. 15. gr., sbr. 14. gr. laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Úrskurðarnefnd taldi ákvæðið fela í sér sérstaka þagnarskyldureglu sem takmarkaði upplýsingarétt almennings, sbr. 3. mgr. 4. gr. upplýsingalaga. Nefndin taldi óumdeilt að bréfið hefði verið sent í tengslum við athugun ríkisendurskoðanda á starfsemi félagsins og það merkt sem trúnaðarmál. Bréfið væri því undirorpið sérstakri þagnarskyldu, sbr. 3. mgr. 15. gr. laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga.…

    15. maí 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1003/2021. Úrskurður frá 28. apríl 2021.

    Deilt var um afgreiðslu ríkisskattstjóra á beiðni kæranda um aðgang að verklagsreglum. Úrskurðarnefndin féllst ekki á með ríkisskattstjóra að í þeim öllum væri greint frá fyrirhuguðum ráðstöfunum, t.d. rannsóknarathöfnum eða öðrum eftirlitsráðstöfunum í tengslum við almennt skatteftirlit ríkisskattstjóra sem yrðu þýðingarlausar ef þær yrðu opinberaðar í skilningi 5. tölul. 10. gr. Ríkisskattstjóra var gert að afhenda verklagsreglurnar að undanskildum hluta þeirra.

    15. maí 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1002/2021. Úrskurður frá 28. apríl 2021.

    Deilt var um afgreiðslu Hafnarfjarðar á beiðni kæranda um gögn i tengslum við byggingu fasteignar. Úrskurðarnefndin taldi ekki forsendur til að rengja fullyrðingu sveitarfélagsins að kæranda hefðu verið afhent öll fyrirliggjandi gögn hjá sveitarfélaginu varðandi umrædda fasteign. Var kærunni því vísað frá úrskurðarnefndinni.

    15. maí 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1001/2021. Úrskurður frá 28. apríl 2021.

    Deilt var um afgreiðslu Menntamálastofnunar á beiðni A um upplýsingar um forsendur ráðningar tiltekins starfsmanns stofnunarinnar. Að mati úrskurðarnefndarinnar sneri beiðni kæranda að upplýsingum sem undanþegnar eru aðgangi á grundvelli 4. tölul. 6. gr., sbr. 7. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi því heimilt að synja beiðni kæranda um umbeðnar upplýsingar.

    15. maí 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1000/2021. Úrskurður frá 28. apríl 2021.

    Beiðni kæranda um endurupptöku allra úrskurða í málum sem varða Herjólf ohf. var hafnað. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga um endurupptöku ekki uppfyllt.

    14. maí 2021Forsætisráðuneytið

    Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í tengslum við kynbundið og kynferðislegt ofbeldi og áreitni

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnti samantekt á ríkisstjórnarfundi í morgun um þau lagafrumvörp, þingsályktanir, aðgerðir og verkefni sem tengjast aðgerðum ríkisstjórnarinnar gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi og áreitni á yfirstandandi kjörtímabili.

    13. maí 2021Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Harpa fær nýjan flygil og Vindhörpu í 10 ára afmælisgjöf

    Í dag eru 10 ár liðin frá formlegri opnun Hörpu og af því tilefni hafa íslenska ríkið og Reykjavíkurborg fært Hörpu gjafir sem báðar endurspegla mikilvægt hlutverk hússins til framtíðar.

    11. maí 2021Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

    Verkfærakista um heimsmarkmiðin fyrir sveitarfélög

    Hagnýt skref við innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

    11. maí 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Atvinnuvegaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Samstarfsvettvangur um European Digital Innovation Hub á Íslandi

    Íslensk stjórnvöld vinna nú að undirbúningi á þátttöku Íslands í áætlun Evrópusambandsins um stafræna Evrópu (DIGITAL Europe). Áætlunin varir frá 2021 til 2027 og er gert ráð fyrir að aðild Íslands verði staðfest um mitt árið 2021.

    07. maí 2021Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Verkfærakista fyrir sveitarfélög um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

    Verkfærakista um innleiðingu sveitarfélaga á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna var gefin út í dag, en henni er ætlað að vera þeim til leiðbeiningar um hvernig þau geta lagt sitt af mörkum til að vinna að heimsmarkmiðunum. Verkfærakistan var unnin fyrir hönd verkefnastjórnar stjórnvalda um heimsmarkmiðin í nánu samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga og samstarfssvettvang ríkis og sveitarfélaga um heimsmarkmiðin.

    04. maí 2021Norðurslóðir, Forsætisráðuneytið

    Tíu milljónir til undirbúnings stofnunar Ólafs Ragnars Grímssonar um norðurslóðir

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum sl. föstudag tillögu Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra um stuðning við að setja á fót sjálfseignarstofnun Ólafs Ragnars Grímssonar um málefni norðurslóða í Reykjavík. Hringborði Norðurslóða – Arctic Circle verða lagðar til 10 milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé ríkisstjórnar til að standa straum af frekari undirbúningi verkefnisins.

    30. apr. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Auglýsing um þátttöku í samráðsvettvangi um jafnrétti kynja – Jafnréttisráð

    Í 24. grein laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna er gert ráð fyrir að ráðuneyti sem fer með jafnréttismál kalli saman samráðsvettvang um jafnrétti kynjanna, Jafnréttisráð og gefi aðilum tækifæri á að óska eftir þátttöku.

    30. apr. 2021Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ný úrræði vegna Covid-19

    Á annan tug úrræða verða framlengd eða innleidd á næstu dögum til að mæta afleiðingum heimsfaraldurs Covid-19. Þeirra á meðal er sérstakur 30 þúsund króna barnabótaauki til þeirra sem fá tekjutengdar barnabætur, ný ferðagjöf, ​framlengd úttekt séreignasparnaðar, framlenging og útvíkkun viðspyrnustyrkja og lokunarstyrkja, hliðrun á endurgreiðslutíma stuðningslána, eingreiðsla til langtímaatvinnulausra og aukin framlög til geðheilbrigðismála barna og ungmenna.

    • First
    • Prev
    • 29
    • 30
    • 31
    • 32
    • 33
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband