27. feb. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Nýsköpun, Rekstur og eignir ríkisins, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Fundur um eflingu nýsköpunar hjá hinu opinbera: Nýsköpunarstefna Íslands lögð fram í vor
Á vormánuðum verður lögð fram nýsköpunarstefna Íslands, sem unnin er í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Fjármála- og efnahagsráðuneytið, í samvinnu við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, stóð í vikunni fyrir vinnufundi um nýsköpun hjá hinu opinbera þar sem m.a. var teiknað upp nýsköpunartré í því skyni að deila hugmyndum um hvernig hægt er að láta nýsköpun dafna hjá hinu opinbera.