Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1751–1800 af 3013
    Raða eftir:
    24. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    Samkomubann: Aðeins fáar undanþágur með ströngum skilyrðum ef almannahagsmunir eru í húfi

    Margar umsóknir hafa borist heilbrigðisráðuneytinu um undanþágur frá takmörkun á samkomum sem heilbrigðisráðherra setti með auglýsingu 243/2020 til að sporna við útbreiðslu Covid-19. Flestum þeirra hefur verið hafnað. Undanþágur eru því aðeins veittar að afar brýnir hagsmunir liggi að baki sem varði velferð almennings og þjóðarhag.

    23. mar. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19

    Úrskurður nr. 15/2020

    Klassíski listdansskólinn ehf. sótti um undanþágu frá takmörkun á skólastarfi vegna starfsemi sinnar fyrir nemendur á leik- og grunnskólastigi og fyrir nemendur á listdansbraut til stúdentsprófs. Ráðuneytið hafnaði beiðninni.

    23. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Auglýsing um takmörkun á samkomum vegna farsóttar birt í Stjórnartíðindum

    Birt hefur verið í Stjórnartíðindum auglýsing heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Eins og fram kom í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins í gær ákvað heilbrigðisráðherra í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis að takmarka samkomur enn frekar en áður vegna hraðari útbreiðslu Covid-19 í samfélaginu. Viðburðir þar sem fólk kemur saman verða takmarkaðir við 20 manns í stað 100 áður. Ákvörðunin tekur gildi á miðnætti í kvöld.

    23. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    Fyrirmæli landlæknis um frestun valkvæðra skurðaðgerða

    Auglýsing heilbrigðisráðherra um frestun valkvæðra skurðaðgerða tímabundið frá 23. mars – 31. maí næstkomandi, ásamt fyrirmælum embættis landlæknis þess efnis, hefur verið birt á vef Stjórnartíðinda.

    23. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Spornað við lyfjahamstri með reglugerð

    Nokkuð hefur borið á því að undanförnu að einstaklingar hafi keypt tiltekin lausasölulyf í miklum mæli, eða að fólk með fjölnota lyfseðla hafi leyst út margar afgreiðslur samtímis eða með skömmu millibili. Mikilvægt er að fólk hamstri ekki lyf. Slík háttsemi getur valdið tjóni með því að skapa lyfjaskort og þannig stefnt heilsu og jafnvel lífi fólks í hættu að óþörfu. Til að sporna við þessu hefur heilbrigðisráðherra sett reglugerð sem felur í sér takmarkanir á afhendingu lyfja.

    23. mar. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 14/2020

    Skólaskrifstofa Sveitarfélagsins Hornarfjarðar sótti um undanþágu frá takmörkun á skólastarfi vegna fjölda nemenda á tveimur deildum. Ráðuneytið hafnaði beiðninni.

    23. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Covid-19

    Rafræn útgáfa vottorða til staðfestingar á sóttkví

    Þeir sem þurfa að sitja í sóttkví samkvæmt ákvörðun heilbrigðisyfirvalda geta nú sjálfir skráð upplýsingar um það inn á vefinn heilsuvera.is og fengið vottorð þar að lútandi. Vakin er athygli á því að skráning í heilsuveru krefst þess að notandi sé með rafræn skilríki.

    23. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Covid-19

    Fimm daga skoðun nýbura í heimahúsum vegna COVID-19

    Til að draga úr smithættu og létta á Landspítala hafa Sjúkratryggingar Íslands gert tímabundinn samning við ljósmæður um að auka vitjanaþjónustu sína í stað þess að svokölluð fimm daga skoðun fari fram á Landspítala. Vakthafandi nýburalæknir á Landspítala mun styðja við þessa þjónustu í gegnum síma eftir því sem þörf er á. Frá þessu er sagt á vef Sjúkratrygginga Íslands.

    22. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið

    Hertar takmarkanir á samkomum – mörkin sett við 20 manns

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis, að takmarka samkomur enn frekar en áður vegna hraðari útbreiðslu Covid-19 í samfélaginu. Viðburðir þar sem fólk kemur saman verða takmarkaðir við 20 manns í stað 100 áður. Við öll mannamót þarf auk þess að tryggja að nánd milli manna verði yfir tveimur metrum. Ákvörðunin tekur gildi á miðnætti annað kvöld (þ.e. aðfaranótt þriðjudags). Takmörkun á skólahaldi verður óbreytt.

    22. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Covid-19

    Frestun valkvæðra skurðaðgerða vegna Covid-19

    Heilbrigðisráðherra hefur fallist á erindi landlæknis og staðfest fyrirmæli embættisins um að öllum valkvæðum skurðaðgerðum og öðrum ífarandi aðgerðum, t.d. greiningarrannsóknum verði hætt frá 23. mars til 31. maí næstkomandi. Á þetta við hvort sem um ræðir aðgerðir framkvæmdar innan eða utan spítala, af opinberum aðila eða einkaaðila. Fyrirmælin verða birt í Stjórnartíðindum.

    20. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Covid-19, Líf og heilsa

    Leiðbeinandi viðmið um íþrótta- og æskulýðsstarf í ljósi takmörkunar á skólastarfi og samkomum

    Vegna fjölda fyrirspurna hefur heilbrigðisráðuneytið í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið tekið saman leiðbeinandi viðmið um hvernig beri að túlka auglýsingar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar og takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar þegar kemur að íþrótta og æskulýðsstarfi barna, ungmenna og fullorðinna. Leiðbeiningarnar eru eftirfarandi:

    20. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Covid-19

    Aukin áhersla á fjarheilbrigðisþjónustu

    Sjúkratryggingar Íslands vinna að því að auðvelda sjúklingum aðgengi að heilbrigðisþjónustu við þær aðstæður sem nú ríkja með því að bjóða upp á fleiri þjónustuform. Þannig munu SÍ greiða veitendum fyrir fjarheilbrigðisþjónustu, þ.e. símtöl og myndsímtöl, þegar það hentar sjúklingi og þegar skilyrði um slíka þjónustu eru uppfyllt. Þetta á bæði við um þjónustu heilsugæslu og sérgreinalækna og ef til vill fleiri. Um þetta er fjallað í tilkynningu á vef Sjúkratrygginga Íslands.

    18. mar. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    Heilsugæslan á tímum COVID-19

    18 mars 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Heilsugæslan á tímum COVID-19 Heilbrigðisráðuneytið Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Heilsugæslan gegnir mikilvægu hlutverki sem fyrsti viðkomustaður almennings í heilbrigðiskerfinu. Um þessar mundir stendur Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins í ströngu við að veita ráðgjöf, þjónustu og sinna sýnatöku vegna COVID19-veirunnar, en sú þjónusta bætist ofan á hefðbundin verkefni heilsugæslunnar. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur nú þegar breytt skipulagi á þjónustu sinni til þess að bregðast við aðstæðum

    18. mar. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19

    Úrskurður nr. 9/2020

    Hrafnagilsskóli óskaði eftir undanþágu frá takmörkun á skólastarfi í þremur liðum. Ráðuneytið samþykkti eina beiðni varðandi stærð bekkjar, hafnaði lið 2 og vísaði frá 3. lið.

    18. mar. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19

    Úrskurður nr. 12/2020

    Myndlistaskólinn í Reykjavík sótti um undanþágu frá takmörkun á skólastarfi vegna verklegs náms. Ráðuneytið hafnað beiðninni.

    18. mar. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19

    Úrskurður nr. 11/2020

    Námsflokkar Reykjavíkur sóttu um undanþágu frá takmörkun á skólastarfi vegna viðkvæmra nemendahópa. Ráðuneytið hafnaði beiðninni.

    18. mar. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19

    Úrskurður nr. 13/2020

    Verkmenntaskólinn á Akureyri sótti um undanþágu frá takmörkunum vegna verklegra áfanga. Ráðuneytið hafnaði beiðninni.

    17. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19

    Beiðnir um undanþágur frá takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar og meðferð þeirra

    Líkt og fram kemur í auglýsingu heilbrigðisráðuneytisins um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar, getur heilbrigðisráðherra veitt undanþágu ef ekki er talin hætta á að slíkt fari gegn markmiðum opinberra sóttvarnaráðstafana. Skólastjórnendur sem telja efni standa til að sækja um slíka undanþágu eiga að beina henni til heilbrigðisráðuneytisins til umfjöllunar og afgreiðslu. Þegar liggja fyrir úrskurðir í þremur slíkum málum og hafa þeir verið birtir á vef Stjórnarráðsins.

    17. mar. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    Samkomubann

    17 mars 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Samkomubann Heilbrigðisráðuneytið SVandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Í lok síðustu viku kynnti ég ákvörðun mína um að virkja heimildir sóttvarnalaga til að takmarka samkomur í fjórar vikur, frá og með 16. mars. Tilgangurinn er að hefta útbreiðslu COVID19-sjúkdómsins, verja heilsu fólks og viðhalda starfsgetu heilbrigðiskerfisins meðan á faraldri stendur og er ákvörðunin tekin að tillögu sóttvarnarlæknis

    16. mar. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19

    Úrskurður nr. 6/2020

    Menntaskólinn í Kópavogi sótti um undanþágu frá takmörkun á skólastarfi fyrir viðkvæma hópa, annars vegar fyrir nemendur með einhverfu á starfsbraut og hins vegar fyrir kennslu í Krýsuvík. Ráðuneytið samþykkti beiðnirnar með skilyrðum.

    16. mar. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19

    Úrskurður nr. 7/2020

    Svalbarðsstrandarhreppur óskaði eftir undanþágu frá takmörkun á skólastarfi vegna leik- og grunnskóla sveitarfélagsins. Ráðuneytið samþykkti beiðnina með skilyrðum.

    16. mar. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19

    Úrskurður nr. 8/2020

    Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra óskaði eftir undanþágu frá takmörkunum á skólastarfi vegna verklegrar kennslu. Ráðuneytið hafnaði beiðni skólans.

    16. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    Sjúkraflutningamenn bætast í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar

    Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) hefur boðið fram aðstoð sína um að biðla til félagsmanna sinna um að skrá sig í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Alls hafa nú um 350 heilbrigðisstarfsmenn skráð sig í bakvarðasveitina.

    14. mar. 2020Utanríkisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Almannaöryggi, Covid-19, Utanríkismál

    Ráðleggingar íslenskra stjórnvalda til Íslendinga vegna ferðalaga

    Íslensk stjórnvöld ráða Íslendingum frá ferðalögum og hvetja Íslendinga á ferðalagi erlendis til að íhuga að flýta heimför. Er þetta gert í ljósi þeirra yfirgripsmiklu ráðstafana sem erlend ríki hafa gripið til til að hefta útbreiðslu COVID-19 og kunna að hafa áhrif á Íslendinga erlendis.

    13. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Covid-19

    Takmarkanir á samkomu- og skólahaldi til að hægja á útbreiðslu Covid – 19

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur að tillögu sóttvarnalæknis ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga til að takmarka samkomur í fjórar vikur frá miðnætti 15. mars næstkomandi. Með takmörkun er átt við viðburði þar sem fleiri en 100 manns koma saman og verða þeir óheimilir. Samhliða verður skólahald takmarkað, einnig í fjórar vikur. Ákvörðun heilbrigðisráðherra var kynnt á fundi ríkisstjórnar í morgun. Markmiðið er að hægja á útbreiðslu Covid – 19 svo að heilbrigðisþjónustan muni eiga auðveldara með að takast á álag í tengslum við veirusjúkdóminn.

    12. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    Lyfjafræðingar bætast í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar

    Um 180 heilbrigðisstarfsmenn voru búnir að skrá sig í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar um hádegisbil í dag. Lyfjafræðingafélag Íslands hefur boðið fram aðstoð sína um að biðla til sinna félagsmanna um að skrá sig í bakvarðasveitina og eru lyfjafræðingar þegar farnir að skrá sig í grunninn.

    11. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    Bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar - óskað eftir heilbrigðisstarfsfólki á útkallslista

    Heilbrigðisyfirvöld óska eftir liðsinni heilbrigðisstarfsfólks úr hópi lækna, hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða í svokallaða bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Leitað er að fólki sem hefur aðstæður og er reiðubúið að koma tímabundið til starfa í heilbrigðisþjónustunni með skömmum fyrirvara, hvort heldur í fullt starf, hlutastarf eða í tímavinnu, eftir því sem aðstæður leyfa.

    10. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins eflir fjarþjónustu

    Í ljósi neyðarstigs almannavarna vegna COVID-19 mun Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins efla fjarþjónustu á öllum heilsugæslustöðvum sínum. Vakin er athygli á tilkynningu stofnunarinnar um þetta. Eins og þar kemur fram verður símaþjónusta aukin til muna og símatímum lækna fjölgað. Einnig er áhersla lögð á aukna þjónustu í gegnum vefinn heilsuvera.is m.a. með skilaboðoum á mínum síðum og netspjall heilsuveru verður opið alla daga frá kl. 08.00 – 22.00.

    09. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    Breyttu fyrirkomulagi um afhendingu lyfja (skriflegt umboð) frestað til 30. mars

    Breyttu fyrirkomulagi um afhendingu lyfja, sem taka átti að gildi þriðjudaginn 10. mars 2020, hefur verið frestað til 30. mars næstkomandi. Í tilkynningu Lyfjastofnunar um frestunina segir að í ljósi örrar fjölgunar COVID-19 smita sé mikilvægt að hægja á eða stöðva ferla sem geti haft aukna smithættu í för með sér. Skriflegt umboð sé þess eðlis að það auki hættu á að veirur berist manna á milli. Því hafi Lyfjastofnun ákveðið að fresta kröfu um skriflegt umboð til 30. mars nk.

    09. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Nýr samningur um þjónustu Reykjalundar

    Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samning við Reykjalund, endurhæfingarmiðstöð SÍBS, um endurhæfingarþjónustu stofnunarinnar. Samningurinn tekur gildi 1. apríl næstkomandi og er til tveggja ára, með möguleika á framlengingu um tvö ár til viðbótar. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur staðfest samninginn sem forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og stjórnendur Reykjalundar undirrituðu í heilbrigðisráðuneytinu fyrir helgi. Aðilar segja samninginn marka þáttaskil og muni efla og styrkja í sessi þá mikilvægu endurhæfingarþjónustu sem Reykjalundur annast á landsvísu.

    06. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Almannaöryggi, Líf og heilsa, Dómsmálaráðuneytið, Covid-19

    Viðbragðsáætlun almannavarna: Heimsfaraldur – Landsáætlun

    Ríkislögreglustjórinn og sóttvarnalæknir hafa gefið út viðbragðsáætlun sem ætlað er að segja fyrir um skipulag og stjórn aðgerða vegna hvers kyns heimsfaraldurs. Áætlunin styðst við lög um almannavarnir nr. 82/2008 og sóttvarnalög nr. 19/1997. Fyrri útgáfa þessarar áætlunar bar heitið Landsáætlun vegna heimsfaraldurs inflúensu og hefur hlutverk hennar nú verið víkkað og nær yfir heimsfaraldra veikinda af hvaða toga sem er. Kjartan Þorkelsson settur ríkislögreglustjóri og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir undirrituðu áætlunina í morgun og hefur hún verið birt á vefjum embættis landlæknis og almannavarna.

    06. mar. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Umhverfi og náttúruvernd, Heilbrigðismál, Vopn sprengiefni og skoteldar, Dómsmálaráðuneytið, Lýðheilsa og forvarnir

    Dregið verði úr flugeldamengun

    Skýrsla starfshóps dómsmálaráðherra, heilbrigðisráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra um hvernig draga megi úr neikvæðum áhrifum mengunar frá flugeldum er komin út.

    06. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið

    Breytt fyrirkomulag við afhendingu lyfja í apóteki

    Þann 30. mars næstkomandi ganga í gildi breytingar sem varða afhendingu lyfja í apótekum. Eftir það verður einungis heimilt að afhenda lyf eiganda lyfjaávísunar, eða þeim sem hefur ótvírætt umboð hans til að fá þau afhent. Framvísa þarf persónuskilríkjum hvort sem um ræðir eiganda eða umboðsmann. Vakin er athygli á tilkynningu með nánari upplýsingum á vef Lyfjastofnunar.

    06. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Göngudeildarþjónusta SÁÁ mikilvægur hluti af meðferð og endurhæfingu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti sér starfsemi göngudeildarþjónustu SÁÁ þegar hún heimsótti starfsstöð samtakanna í Efstaleiti í gær. Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga, segir göngudeildarþjónustuna mjög mikilvægan hluta af meðferð og endurhæfingu vegna neyslu- og fíknivanda og hluta af heilsteyptri meðferð á mismunandi stigum. ​Þá sé unnið að því að tryggja samfellu og samstarf þeirra sem veita heilbrigðisþjónustu og félagsþjónustu á þessu sviði.

    06. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Þjónusta á heilsueflandi móttökum í heilsugæslu verði samræmd um allt land

    Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu mun gegna mikilvægu hlutverki við innleiðingu á heilsueflandi móttökum í heilsugæslu á landsvísu. Ráðinn verður verkefnisstjóri í þessu skyni og hefur heilbrigðisráðherra veitt þróunarmiðstöðinni 15 milljónir króna til verkefnisins á þessu ári og því næsta.

    05. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Tillögur um menntun sjúkraliða

    Starfshópur sem heilbrigðisráðherra skipaði í desember sl. til að gera tillögur um menntun og viðbótarmenntun sem leitt geta til fjölgunar útskrifaðra sjúkraliða hefur skilað ráðherra niðurstöðum sínum. Auk tillagna um menntun og viðbótarmenntun eru einnig lagðar til leiðir sem eiga að styrkja störf sjúkraliða, gera störf þeirra áhugaverðari og gefa þeim færi á framgangi í starfi.

    05. mar. 2020Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Tillögur starfshóps um menntun og viðbótarmenntun sem leitt geta til fjölgunar útskrifaðra sjúkraliða

    mars 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Tillögur starfshóps um menntun og viðbótarmenntun sem leitt geta til fjölgunar útskrifaðra sjúkraliða Tillögur starfshóps um menntun og viðbótarmenntun sem leitt geta til fjölgunar útskrifaðra sjúkraliða

    03. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa, Covid-19

    Lög til að sporna við lyfjaskorti

    Lyfjastofnun fær heimild til að leggja bann við því að tilteknar birgðir lyfja séu fluttar úr landi ef nauðsyn krefur til að tryggja framboð tiltekinna lyfja sem stofnunin telur mikilvæg. Frumvarp til breytinga á lyfjalögum þessa efnis hefur verið samþykkt á Alþingi. Um varúðarráðstöfun er að ræða og eru sambærileg ákvæði liður í löggjöf margra þjóða.

    03. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Hjúkrunarheimili fyrir 99 manns við Sléttuveg tekið í notkun

    Stór áfangi í uppbyggingu hjúkrunarrýma á höfuðborgarsvæðinu var innsiglaður þegar nýtt hjúkrunarheimili fyrir 99 manns við Sléttuveg var vígt síðastliðinn föstudag að viðstöddu fjölmenni. Fyrstu íbúar heimilisins eru fluttir inn og er kappkostað að því að koma heimilinu í fullan rekstur sem fyrst.

    28. feb. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 4/2020

    Kærð var ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að krefja kæranda um endurgreiðslu vegna ofnotkunar á gjaldliðnum þung meðferð í starfi sem sjúkraþjálfari. Ráðuneytið staðfesti ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að endurkrefja kæranda um 1.356.115 kr. vegna ofnotkunar á gjaldliðnum þung meðferð. Viðvörun sú sem Sjúkratryggingar Íslands veittu kæranda var einnig staðfest sem og ákvörðun stofnunarinnar að senda tilkynningu til Embættis landlæknis vegna ófullnægjandi skráningar í sjúkraskrá.

    28. feb. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 3/2020

    Kærð var ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að krefja kæranda um endurgreiðslu vegna ofnotkunar á gjaldliðnum þung meðferð í starfi sem sjúkraþjálfari. Ráðuneytið staðfesti ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að endurkrefja kæranda um 2.509.945 kr. vegna ofnotkunar á gjaldliðnum þung meðferð sem og ákvörðun stofnunarinnar um að senda tilkynningu til Embættis landlæknis vegna ófullnægjandi skráningar í sjúkraskrá.

    27. feb. 2020Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Krabbameinsskimanir - Tillögur verkefnisstjórnar um framkvæmd tillagna og ákvarðana landlæknis og heilbrigðisráðherra

    febrúar 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Krabbameinsskimanir - Tillögur verkefnisstjórnar um framkvæmd tillagna og ákvarðana landlæknis og heilbrigðisráðherra Krabbameinsskimanir - Tillögur verkefnisstjórnar um framkvæmd tillagna og ákvarðana landlæknis og heilbrigðisráðherra

    27. feb. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Samið um hjúkrunarheimili fyrir 60 íbúa í Reykjanesbæ

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, undirrituðu í dag samning um nýtt 60 rýma hjúkrunarheimili í Reykjanesbæ. Gert er ráð fyrir að heimilið verði tekið í notkun um mitt ár 2023. Ákvörðun um að ráðast í þessa uppbyggingu er í samræmi við niðurstöður frumathugunar Framkvæmdasýslu ríkisins á liðnu ári.

    26. feb. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Nýir tímar í starfs- og tækninámi

    Markmið aðgerðaáætlunar mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Samtaka iðnaðarins og Sambands íslenskra sveitarfélaga er að auka áhuga ungmenna á starfs- og tæknimenntun og þar með fjölga einstaklingum með slíka menntun á vinnumarkaði.

    25. feb. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Tillögur átakshóps til að leysa úr vanda bráðamóttöku Landspítala

    Átakshópur sem fjallað hefur um lausnir á þeim vanda sem birtist á bráðamóttöku Landspítalans leggur fram ellefu tillögur um aðgerðir sem forgangsraðað er eftir mikilvægi. Tillögurnar og fyrstu viðbrögð við þeim voru kynnt á fréttamannafundi sem haldinn var á Landspítalanum í Fossvogi í dag.

    25. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir gerð heimildarmyndar um geðhvörf

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita eina milljóna króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til gerðar heimildarmyndar um geðhvörf.

    22. feb. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sjúklingar borga minna

    22 febrúar 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Sjúklingar borga minna Heilbrigðisráðuneytið Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Lækkun greiðsluþátttöku sjúklinga er afgerandi þáttur í því að tryggja jafnt aðgengi fólks að heilbrigðisþjónustu. Gögn frá Evrópsku tölfræðistofnuninni, Eurostat, sýna að um um það bil 3,5 prósent Íslendinga þurftu að neita sér um læknisþjónustu vegna kostnaðar, fjarlægðar eða biðtíma árið 2016. Um 5% allra tekjuhópa þurftu að neita sér um tannlæknaþjónustu á sama tíma

    20. feb. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Jóhanna Fjóla skipuð forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Jóhönnu Fjólu Jóhannesdóttur forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands til næstu fimm ára. Ákvörðun ráðherra um skipun hennar í embættið er tekin að undangengnu mati lögskipaðrar hæfnisnefndar sem metur hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana.

    20. feb. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Úttekt embættis landlæknis á Heilbrigðisstofnun Austurlands

    Embætti landlæknis hefur birt niðurstöður úttektar á starfsemi Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Úttektin var unnin að frumkvæði embættisins og tók til atriða er varða stefnumörkun, stjórnun, vinnubrögð starfsfólks, gæðastarf og öryggismenningu, mönnun, húsnæði og aðbúnað.

    19. feb. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Níutíu milljónum úthlutað úr lýðheilsusjóði til 144 verkefna

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra úthlutaði í gær styrkjum úr Lýðheilsusjóði til fjölbreyttra verkefna á svið i geðræktar, næringar, hreyfingar og tannverndar, auk áfengis-, vímu- og tóbaksvarna. Alls bárust 247 umsóknir í sjóðinn. Upphæðir styrkja til einstakra verkefna nema á bilinu 125.000 krónum upp í þrjár milljónir króna til þeirra verkefna sem hlutu hæstu styrkina.

    • First
    • Prev
    • 34
    • 35
    • 36
    • 37
    • 38
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband