Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Líf og heilsa
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1751–1800 af 2497
    Raða eftir:
    11. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Styrkir til félagasamtaka vegna verkefna á sviði heilbrigðismála lausir til umsóknar

    Auglýst er eftir umsóknum um styrki frá íslenskum félagasamtökum vegna verkefna sem falla undir verkefnasvið ráðuneytisins á sviði heilbrigðismála. Heilbrigðisráðherra mun leggja áherslu á að styrkja verkefni sem lúta að heilsueflingu aldraðra og kvennaheilsu. Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 11. nóvember nætkomandi.

    10. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Alþjóðageðheilbrigðisdagurinn – áhersla á forvarnir gegn sjálfsvígum

    Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) helgar alþjóðageðheilbrigðisdaginn sem er í dag, 10. október, forvörnum gegn sjálfsvígum. Á vef stofnunarinnar má m.a. finna fræðslumyndband fyrir kennara ásamt einblöðungum með upplýsingum fyrir ólíka markhópa, t.d. kennara, blaðamenn, heilbrigðisstarfsfólk, lögreglu og marga fleiri þar sem fjallað er um forvarnir gegn sjálfsvígum.

    09. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Auglýst eftir umsóknum um styrki úr lýðheilsusjóði

    Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr lýðheilsusjóði. Hlutverk sjóðsins er að styrkja lýðheilsustarf í landinu og stuðla að heilsueflingu og forvörnum. Umsóknarfrestur rennur út 4. nóvember næstkomandi.

    07. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Landspítali fær styrk til að þróa skilvirkari sérfræðiþjónustu við landsbyggðina

    Verkefni sem Landspítali vinnur að og felst í þróun tæknilausna til að stuðla að bættu aðgengi landsbyggðarinnar að sérfræðiþjónustu hlaut nýverið 5. milljóna króna styrk af byggðaáætlun Alþingis. Verkefnið snýr annars vegar að beinum samskiptum sjúklinga við sérfræðinga sjúkrahússins og hins vegar að þróun tæknilegra leiða til að skapa skilvirkan og öruggan farveg fyrir ráðgjöf sérfræðinga Landspítala við heilbrigðisstarfsfólk á landsbyggðinni.

    05. okt. 2019Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Gildi og forgangsröðun

    05 október 2019 / Heilbrigðisráðuneytið Gildi og forgangsröðun Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Stjórnendur og starfsfólk heilbrigðiskerfisins standa daglega frammi fyrir fjölda erfiðra ákvarðana sem varða líf og heilsu fólks og forgangsröðun er því liður í daglegum störfum þess. Auknir möguleikar við greiningu og meðferð sjúkdóma með sívaxandi kostnaði gera auknar kröfur um að ríkið sem greiðandi heilbrigðisþjónustunnar forgangsraði því fjármagni sem er til umráða. Mikilvægt er að forgangsröðun af hálfu stjórnvalda byggi á skýrum viðmiðum og siðferðilegum gildum sem öllum eru kunn og ljós þegar erfiðar ákvarðanir eru teknar, hvort sem um er að ræða heilbrigðisstarfsfólkið eða sjúklingana

    04. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Til umsagnar: frumvarp til breytinga á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga

    Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018 sem varðar stofnanir á málefnasviði heilbrigðisráðherra hefur verið birt til umsagnar í samráðsgátt. Umsagnarfrestur er til 18. október.

    04. okt. 2019Atvinnuvegir, Auðlindir, Líf og heilsa, Neytendamál, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið

    Fundur um framgang aðgerðaáætlunar um matvælaöryggi o.fl.

    Í kynningunni ráðuneytisins kom fram að vinna við framgang aðgerðaáætlunar gangi vel og sé í forgangi í ráðuneytinu.

    04. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Landskönnun á mataræði Íslendinga að hefjast

    Embætti landlæknis í samvinnu við Rannsóknastofu í næringarfræði við Háskóla Íslands eru um þessar mundir að hefja landskönnun á mataræði og neysluvenjum landsmanna. Tilgangur könnunarinnar er að fylgjast með mataræði þjóðarinnar, þróun þess og breytingum. Hliðstæð könnun var síðast framkvæmd 2010-2011 en ástæða er til að ætla að breytingar hafi átt sér stað á mataræðinu frá þeim tíma.

    03. okt. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Skýrsla starfshóps um hjálpartæki afhent heilbrigðisráðherra

    Hópur sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skipaði til að skoða fyrirkomulag varðandi hjálpartæki hér á landi og koma með tillögur til úrbóta, skilaði henni skýrslu með niðurstöðum sínum í dag. Tillögur hópsins eru í sex liðum og snúa meðal annars að greiðsluþátttöku, afgreiðslu og úthlutun hjálpartækja, mati á þörf fólks fyrir hjálpartæki, innleiðingu nýjunga og upplýsingamiðlun til notenda hjálpartækja.

    03. okt. 2019Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Hjálpartæki - skýrsla starfshóps

    október 2019 / Heilbrigðisráðuneytið Hjálpartæki - skýrsla starfshóps Hjálpartæki - skýrsla starfshóps

    30. sep. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fjallað um þvingunarúrræði lögræðislaga - áhersla á samráð

    Starfshópur heilbrigðisráðherra um þvingunarúrræði lögræðislaga hefur tekið til starfa. Hópurinn óskar eftir ábendingum frá þeim sem hafa reynslu eða þekkingu á þessu sviði um hvað betur má fara og hefur útbúið netfang í þessu skyni. Hópurinn boðar einnig til sameiginlegs vinnufundar með starfshópnum, notendum, aðstandendum og öðrum sem hafa áhuga, fimmtudagin 17. október.

    27. sep. 2019Líf og heilsa, Neytendamál, Landbúnaður, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Vottorð verður skilyrði fyrir dreifingu alifuglakjöts

    Í því skyni að efla matvælaöryggi enn frekar og standa vörð um lýðheilsu hefur Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, undirritað nýja reglugerð um vöktun á kampýlóbakter í alifuglum og alifuglakjöti. Í reglugerðinni eru settar nákvæmar reglur um vöktun á kampýlóbakter í því skyni að draga úr þeirri hættu sem kampýlóbakter getur valdið.

    26. sep. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Þingmál heilbrigðisráðherra

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallar um þingmál síðasta þings, verkefnin framundan og frumvörp sem hún mun leggja fram á því þingi sem nýlega er hafið í blaðagrein í dag: „Frumvörpin hafa öll það að markmiði að styrkja núverandi heilbrigðiskerfi og stuðla að heildstæðri og betri heilbrigðisþjónustu“ skrifar ráðherra.

    25. sep. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Aukin þjónusta við fólk með heilaskaða

    Hópmeðferð fyrir fólk sem hlotið hefur heilaskaða verður efld á Reykjalundi með aukinni aðkomu sérhæfðra starfsmanna. Heilbrigðisráðherra hefur falið Sjúkratryggingum Íslands að ganga til samninga við Reykjalund um þessa þjónustu.

    25. sep. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Forstjóri Lyfjastofnunar leiðir evrópskan faghóp um úrbætur á lagaumhverfi lyfja

    Rúna Hauksdóttir Hvannberg hefur verið kjörin formaður þverfaglegs vinnuhóps Regulatory Optimisation Group (ROG), sem starfar á vegum samtaka forstjóra lyfjastofnana á Evrópska efnahagssvæðinu (HMA). Hópurinn vinnur að því að yfirfara og leggja til úrbætur á gildandi lagaumhverfi, m.a. til að gera það skýrara og skilvirkara.

    25. sep. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Staða áætlunar um uppbyggingu hjúkrunarrýma

    Heilbrigðisráðherra hefur sett á áætlun framkvæmdir við gagngerar endurbætur á hjúkrunarheimilunum á Patreksfirði, Ísafirði, í Neskaupsstað og í Hveragerði þar sem brýnt er orðið að bæta aðstæður og aðbúnað íbúa. Ráðuneytið hefur unnið samantekt um stöðu framkvæmdaáætlunar um uppbyggingu hjúkrunarrýma og framhald þeirrar áætlunar til ársins 2024 og er hún birt hér.

    23. sep. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Sérhæfðum dagdvalarrýmum í MS-Setrinu fjölgað

    Heilbrigðisráðherra hefur falið Sjúkratryggingum Íslands að semja við MS-Setrið um aukna þjónustu við fólk með Parkinsonsjúkdóm. Miðað er við að dagdvalarrýmum með endurhæfingu fyrir þessa sjúklinga verði fjölgað um fimm til sex hjá Setrinu en þar er fyrir hendi mikil sérþekking í meðferð fólks með ýmsa taugasjúkdóma.

    23. sep. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Lýðheilsa og forvarnir, Líf og heilsa

    Tilkynning frá landlækni vegna gruns um veikindi tengd rafrettunotkun

    Nýverið greindist lungnasjúkdómur hjá unglingi þar sem grunur leikur á að veikindin tengist notkun á rafrettum. Birtingarmynd sjúkdómsins svipar til þess sem lýst hefur verið í Bandaríkjunum. Viðkomandi er á batavegi. Frá þessu er greint í tilkynningu frá landlækni þar sem birtar eru ábendingar til almennings, skólastjórnenda og lækna vegna gruns um skaðleg áhrif rafrettunotkunar. Tilkynning landlæknis er eftirfarandi:

    19. sep. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Belgíumaðurinn Hans Kluge kjörinn framkvæmdastjóri Evrópuskrifstofu WHO

    Dr. Hans Kluge frá Belgíu hefur verið kjörinn framkvæmdastjóri Evrópuskrifstofu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Kluge tekur við embættinu 1. febrúar 2020 þegar fráfarandi framkvæmdastjóri Zsuzsanna Jakab lætur af störfum.

    19. sep. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Siðferðileg gildi og forgangsröðun rædd á heilbrigðisþingi 15. nóvember

    Heilbrigðisráðherra boðar til heilbrigðisþings 15. nóvember næstkomandi undir yfirskriftinni „Siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu.“ Þingið er liður í vinnu sem framundan er við gerð þingsályktunartillögu um þessi mál sem ráðherra hyggst leggja fyrir Alþingi næsta vor. ​

    19. sep. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Breyting á lögum um heilbrigðisþjónustu

    Drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu hafa verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Markmið áformaðra breytinga er að samræma lög um heilbrigðisþjónustu við áherslur heilbrigðisstefnu til ársins 2030 sem samþykkt var á Alþingi í júní síðastliðnum.

    18. sep. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu ― ávinningur að ári liðnu

    Verkefni á vegum Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu (ÞÍH) um skynsamlega notkun sýklalyfja hefur skilað miklum árangri á höfuðborgarsvæðinu og nú er innleiðing verkefnisins á landsvísu að hefjast. Þetta er eitt fjölmargra verkefna sem unnið er að hjá þróunarmiðstöðinni sem sett var á fót fyrir réttu ári samkvæmt ákvörðun heilbrigðisráðherra. Vegna tímamótanna var í dag efnt til kynningarfundar þar sem fjallað var um helstu verkefni þróunarmiðstöðvarinnar, ávinning að ári liðnu og verkefnin framundan.

    18. sep. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Tilkynningar til þátttakenda í vísindarannsóknum á heilbrigðissviði

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð þar sem mælt er fyrir um tilkynningar til þátttakenda í vísindarannsóknum um mikilvæga þætti sem koma fram við framkvæmd rannsóknar og varða heilsu viðkomandi. Með mikilvægum þáttum er átt við upplýsingar, þar með taldar erfðaupplýsingar sem sýna fram á verulega aukna áhættu á alvarlegum sjúkdómi sem unnt er að meðhöndla.

    16. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Líf og heilsa, Velsæld

    Forsætisráðherra fjallar um velsældarmarkmið á alþjóðlegri ráðstefnu um velsældarhagkerfi

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um uppbyggingu velsældarhagkerfa ásamt Bjarna Benediktssyni fjármála- og efnahagsráðherra, Derek Mackay fjármála- og efnahagsráðherra Skotlands, Angel Gurría, framkvæmdastjóra Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) og Kristínu Völu Ragnarsdóttur prófessor við Háskóla Íslands í Háskóla Íslands í morgun.

    16. sep. 2019Rit og skýrslur, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Vísindastefna - Stefna heilbrigðisráðherra í vísindarannsóknum á heilbrigðissviði til ársins 2030

    september 2019 / Heilbrigðisráðuneytið Vísindastefna - Stefna heilbrigðisráðherra í vísindarannsóknum á heilbrigðissviði til ársins 2030 Vísindastefna - Stefna heilbrigðisráðherra í vísindarannsóknum á heilbrigðissviði til ársins 2030

    16. sep. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    220 milljónir króna merktar rekstri Ljóssins í fjárlagafrumvarpi næsta árs

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fela Sjúkratryggingum Íslands að gera þriggja ára þjónustusamning við Ljósið um endurhæfingarþjónustu við fólk sem greinst hefur með krabbamein. Í fjárlagafrumvarpi næsta árs eru 220 milljónir króna merktar Ljósinu sem til þessa hefur verið rekið fyrir söfnunarfé og styrki frá ári til árs.

    13. sep. 2019Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Líf og heilsa, Almannatryggingar og lífeyrir

    Ingibjörg Isaksen leiðir vinnu í málefnum aldraðra

    Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, skipaði fyrr í mánuðinum starfshóp sem ætlað er að fjalla um málefni aldraðra á breiðum grundvelli og var fyrsti fundur hópsins haldinn í dag.

    13. sep. 2019Dómsmálaráðuneytið, Líf og heilsa, Mannréttindi og jafnrétti, Félags- og fjölskyldumál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Afhending skýrslu: Valdbeiting á vinnustað – rannsókn á algengi og eðli eineltis og áreitni á íslenskum vinnumarkaði

    Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, tók í dag á móti og kynnti fyrir ríkisstjórn skýrsluna Valdbeiting á vinnustað – rannsókn á algengi og eðli eineltis og áreitni á íslenskum vinnumarkaði.

    13. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Líf og heilsa, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Velsæld

    Tillögur um 39 mælikvarða um hagsæld og lífsgæði kynntar

    Heilsa skiptir fólk mestu máli þegar það metur lífsgæði sín

    11. sep. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fjárlagafrumvarpið: Helstu áherslur í heilbrigðismálum

    Stóraukin framlög til þjónustu við aldraða, styrking heilsugæslunnar, auknir fjármunir til að lækka greiðsluþátttöku sjúklinga, efling geðheilbrigðisþjónustu og aukið fé til að innleiða ný lyf.

    06. sep. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Átta kynningarfundir um heilbrigðisstefnu að baki

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, í samvinnu við forstjóra heilbrigðisstofnana um allt land, hefur nú lokið kynningarfundum um heilbrigðisstefnu til ársins 2030 í öllum sjö heilbrigðisumdæmum landsins. Áttundi fundurinn um heilbrigðisstefnuna var haldinn í gær undir yfirskriftinni Horft til framtíðar en þar var sérstaklega rætt um mönnun og menntun, vísindi og forystu til árangurs.

    06. sep. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Greiðsluþátttaka vegna neyðarhnappa

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur gert breytingu á reglugerð um styrki vegna hjálpartækja sem tryggir íbúum í leiguíbúðum á vegum sveitarfélaga sama rétt til greiðsluþátttöku sjúkratrygginga vegna kaupa á neyðarhnappi og aðrir.

    06. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Líf og heilsa

    Alþjóðleg ráðstefna um uppbyggingu velsældarhagkerfa

    Á ráðstefnunni verður fjallað um samstarf Íslands, Skotlands og Nýja Sjálands um mótun velsældarhagkerfa undir yfirskriftinni Wellbeing Economy Governments (WEGo). Samstarfið felur í sér mótun sameiginlegrar sýnar á hvernig ríki geta aukið vellíðan, jöfnuð og sjálfbæran vöxt.

    05. sep. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Horft til framtíðar – Bein útsending kl. 17

    Horft til framtíðar – málþing um menntakerfið og heilbrigðisþjónustuna verður haldið í Veröld, húsi Vigdísar í dag kl. 17.00. Menntun og mönnun í heilbrigðisþjónustunni, staða rannsókna og vísindastarfs og forysta til árangurs eru viðfangsefni fundarins. Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Einnig verður streymt beint frá fundinum og verður útsendingin aðgengileg hér.

    04. sep. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Útsending frá kynningarfundi um heilbrigðisstefnu kl. 17.00

    Kynningarfundur um heilbrigðisstefnu til ársins 2030 sem heilbrigðisráðherra stendur fyrir í samvinnu við Landspítala og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins verður haldinn á Hótel Natura kl. 17.00. Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Fundinum verður streymt á vefnum og geta áhugasamir fylgst með útsendingu hér.

    30. ágú. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Norrænn fundur um heilabilun

    Málefni ungs fólks með heilabilun í víðu samhengi voru til umfjöllunar á fundi sérfræðinga og embættismanna frá öllum Norðurlandaþjóðunum sem lauk í Reykjavík í gær. Hópurinn er formlegur samráðsvettvangur Norðurlandaþjóðanna á þessu málefnasviði og hittist tvisvar á ári.

    30. ágú. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Horft til framtíðar – málþing um menntakerfið og heilbrigðisþjónustuna 5. september

    Menntun og mönnun í heilbrigðisþjónustunni, staða rannsókna og vísindastarfs og forysta til árangurs. Þetta verða viðfangsefni fundar sem heilbrigðisráðherra boðar til 5. september nk. Markmiðið er að fjalla um þessar mikilvægu stoðir heilbrigðiskerfisins í ljósi nýrrar heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Fundurinn verður haldinn í Veröld, húsi Vigdísar kl. 17. – 19. Umræðustjórar verða Ævar Kjartansson og Magnús Karl Magnússon sem fá til sín í sófaspjall marga góða gesti með víðtæka þekkingu og reynslu á þessum sviðum. Fundarstjóri verður Björg Magnúsdóttir. Fundurinn er öllum opinn meðan húsrúm leyfir og aðgangur ókeypis.

    29. ágú. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Mönnun heilbrigðisþjónustunnar til umfjöllunar í ríkisstjórn

    Ríkisstjórnin samþykkti í gær að setja á fót starfshópa þar sem heilbrigðis-, mennta- og menningarmálaráðuneytið og fjármálaráðuneytið munu koma saman að því að finna leiðir til að bæta mönnun í heilbrigðisþjónustunni. Menntun heilbrigðisstarfsfólks og mönnun heilbrigðisþjónustunnar verður meðal annars til umfjöllunar á opnum fundi sem ber yfirskriftina Horft til framtíðar og haldinn verður í Veröld, húsi Vigdísar 5. september nk.

    28. ágú. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Ráðist í stefnumótun á sviði endurhæfingar

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að ráðast í stefnumótun á sviði endurhæfingar. Verkefnið felst meðal annars í því að greina þá endurhæfingarþjónustu sem er fyrir hendi hér á landi, umfang hennar, skipulag og árangur, auk samanburðar við fyrirkomulag endurhæfingar hjá öðrum þjóðum.

    28. ágú. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisstefnan kynnt á opnum fundi í Reykjavík, 4. september kl. 17 - 19

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra boðar til kynningarfundar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030 í heilbrigðisumdæmi höfuðborgarsvæðisins 4. september. Fundurinn er haldinn í samvinnu við Landspítalann og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Að þeim fundi loknum hefur heilbrigðisstefnan verið kynnt í öllum heilbrigðisumdæmum landsins.

    21. ágú. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Mikilvægt að kynna heilbrigðisstefnuna í hverju umdæmi

    Heilbrigðisráðherra í samvinnu við stjórnendur stjórnendur Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og Vesturlands kynnti heilbrigðisstefnu til ársins 2030 í heilbrigðisumdæmum stofnananna í liðinni viku. Búið er að kynna heilbrigðisstefnuna í fimm heilbrigðisumdæmum af sjö. Næsti fundur verður á Egilsstöðum á morgun, 22. ágúst og loks er fundur í Reykjavík 4. september.

    20. ágú. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisstefnan kynnt í Valaskjálf á Egilsstöðum 22. ágúst

    Heilbrigðisráðherra í samvinnu við Heilbrigðisstofnun Austurlands boðar til opins kynningarfundar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030 í Valaskjálf á Egilsstöðum, fimmtudaginn 22. ágúst kl. 17.00 –19.00. Frummælendur auk ráðherra eru Guðjón Hauksson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands og María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands.

    20. ágú. 2019Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilsugæsla í sókn

    20 ágúst 2019 / Heilbrigðisráðuneytið Heilsugæsla í sókn Heilbrigðisráðuneytið Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Heilbrigðiskerfið er flókið og margþætt og þjónustuveitendur margir. Verkefni heilbrigðisyfirvalda í samstarfi við stofnanir heilbrigðiskerfisins, er að skapa heildrænt kerfi sem tryggir sjúklingum samfellda þjónustu á réttu þjónustustigi þar sem saman fara gæði, öryggi, skilvirkni og hagkvæmni. Um það fjallar ný samþykkt heilbrigðisstefna til 2030 meðal annars

    19. ágú. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Framkvæmdir við Landspítala: „Risavaxið verkefni sem mun valda straumhvörfum“

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skoðaði í dag framkvæmdasvæði nýs Landspítala við Hringbraut þar sem standa yfir jarðvegsframkvæmdir og gatnagerð vegna nýja meðferðarkjarnans. Stefnt er að því að ljúka jarðvegsframkvæmdum á næsta ári og hefja uppsteypu meðferðarkjarnans næsta vor.

    15. ágú. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Bein útsending frá kynningarfundi um heilbrigðisstefnu á Vesturlandi

    Opinn kynningarfundur um heilbrigðisstefnu til ársins 2030 er haldinn á Akranesi kl. 17 – 19 í dag. Bein útsending frá fundinum er aðgengileg hér ásamt dagskrá.

    15. ágú. 2019Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Heilbrigðisstefna til ársins 2030 kynnt á opnum fundi á Suðurnesjum 19. ágúst

    Heilbrigðisráðherra í samvinnu við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja boðar til opins kynningarfundar um heilbriðgisstefnu til ársins 2030 í fundarsal heilbrigðisstofnunarinnar í Reykjanesbæ 19. ágúst næstkomandi kl. 17.00 - 19.00.

    10. ágú. 2019Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aukin áhersla á endurhæfingu

    10 ágúst 2019 / Heilbrigðisráðuneytið Aukin áhersla á endurhæfingu Heilbrigðisráðuneytið Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Á undanförnum áratugum hafa ævilíkur landsmanna aukist verulega og þjóðin verið að eldast. Hefur það í för með sér áskoranir vegna ýmissa lífsstílstengdra og langvinnra sjúkdóma með tilheyrandi álagi á heilbrigðiskerfið. Til að bregðast við þeirri þróun er nauðsynlegt að leggja aukna áherslu á forvarnir og endurhæfingu fyrir alla aldurshópa svo draga megi úr tíðni og alvarleika lífsstílssjúkdóma og bæta lífsgæði

    09. ágú. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Leiðbeiningar um beitingu þvingunarúrræða samkvæmt lögræðislögum til skoðunar

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að meta hvort þörf sé á að setja frekari leiðbeiningar um útfærslu á þvingunarúrræðum en felast í lögræðislögum varðandi meðferð einstaklinga sem eru nauðungarvistaðir á sjúkrahúsi.

    07. ágú. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisstefna til ársins 2030 kynnt í heilbrigðisumdæmi Vesturlands

    Heilbrigðisráðherra, stendur fyrir opnum fundi um heilbrigðisstefnu til ársins 2030, í samvinnu við Heilbrigðisstofnun Vesturlands, þann 15 ágúst. Fundurinn verður haldinn í fundarsal Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi kl. 17 – 19.

    07. ágú. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Ný heilbrigðisstefna kynnt á opnum fundi á Selfossi 14. ágúst

    Heilbrigðisráðherra stendur fyrir opnum fundi um heilbrigðisstefnu til ársins 2030, í samvinnu við Heilbrigðisstofnun Suðurlands, þann 14. ágúst. Fjallað verður um hvað felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er líkleg til að hafa í för með sér og hvers vegna hún skiptir svo miklu máli, hvort heldur í þéttbýli eða í dreifðari byggðum landsins. Fundurinn verður haldinn í fundarsal Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi kl. 17 – 19.

    • First
    • Prev
    • 34
    • 35
    • 36
    • 37
    • 38
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband