18. júl. 2023Utanríkisráðuneytið, Annað, Hjálparstarf, Íslensk frjáls félagasamtök, Malaví, Síerra Leóne, Þróunarsamvinna, V-Afríka, Afríka
Níu félagasamtök fá fjórtán styrki til þróunarsamvinnuverkefna
Utanríkisráðuneytið hefur gert samninga við níu íslensk félagasamtök um styrki vegna fjórtán þróunarsamvinnuverkefna, samtals að fjárhæð 77 milljónir. Tvenn samtök fá að þessu sinni úthlutað í fyrsta sinn, Íslenska barnahjálpin og Björt Sýn, en bæði samtökin starfa í þágu barna í Kenía. Alls bárust sextán umsóknir frá tíu félagasamtökum.