07. okt. 2025Utanríkismál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Sendiráð Íslands í Helsinki, Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Alþjóðamál
Undirrituðu tvíhliða samstarfsyfirlýsingu um varnarmál
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Antti Häkkänen, varnarmálaráðherra Finnlands, undirrituðu í dag tvíhliða samstarfsyfirlýsingu um varnarmál í Helsinki. Undirritunin fór fram í tengslum við opinbera heimsókn Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, til Finnlands.