Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2001–2050 af 3010
    Raða eftir:
    26. okt. 2017Sveitarstjórnir og byggðamál, Innviðaráðuneytið, Byggðamál

    Viðaukar gerðir við þrjá sóknaráætlunarsamninga

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur gert viðaukasamninga við sóknaráætlanir þriggja landshlutasamtaka sveitarfélaga, á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra. Markmiðið er að styrkja sóknaráætlanir framangreindra landshluta með sérstöku framlagi og treysta þannig byggð á tilteknum svæðum.

    25. okt. 2017Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Siglingar, Innviðaráðuneytið

    Bætt verði við ferðum í vetraráætlun Baldurs

    Jón Gunnarsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur beint þeim tilmælum til Vegagerðarinnar að ferðum Breiðafjarðarferjunnar Baldurs verði fjölgað í vetur í samræmi við óskir heimamanna á sunnanverðum Vestfjörðum. Jafnframt verður bætt við ferðum í flugáætlun milli Bíldudals og Reykjavíkur frá 1. febrúar á næsta ári. Er þetta gert til þess að bregðast við miklum vexti í atvinnulífinu á svæðinu og aukinnar þarfar fyrir almenningssamgöngur.

    23. okt. 2017Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Innviðaráðuneytið

    Heimild til flutnings á hergögnum um íslenskt yfirráðasvæði ekki veitt

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu barst hinn 20. október síðastliðinn erindi frá Samgöngustofu varðandi heimild til flutnings á hergögnum um íslenskt yfirráðasvæði. Sneri erindið að beiðni erlends flugrekanda um leyfi stofnunarinnar til að flytja 16 tonn af táragasi frá Kína til Venesúela með viðkomu á Keflavíkurflugvelli fyrir áhafnahvíld. Erindið var sent ráðuneytinu til samráðs í samræmi við 3. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 937/2005 um flutning hergagna.

    23. okt. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Hefja á endurskoðun regluverks um leigubifreiðaakstur

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur skipað starfshóp til að endurskoða regluverk um leigubifreiðaakstur. Hópurinn skili ráðherra rökstuddum tillögum eigi síðar en um miðjan janúar 2018.

    20. okt. 2017Úrskurðir á málefnasviði innviðaráðuneytisins, Úrskurðir, Innviðaráðuneytið

    Úrskurður í máli nr. SRN17050006

    Vegagerðin: Felld úr gildi ákvörðun um að synja beiðni um endurgreiðslu kostnaðar við nýja heimreið

    18. okt. 2017Úrskurðir á málefnasviði innviðaráðuneytisins, Úrskurðir, Innviðaráðuneytið

    Úrskurður í máli nr. SRN17050111

    Þjóðskrá Íslands: Staðfest ákvörðun um lögheimilisskráningu

    18. okt. 2017Rit og skýrslur, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið, Samgöngur

    Skýrsla starfshóps um fjármögnun framkvæmda við stofnleiðir út frá höfuðborgarsvæðinu

    Skýrsla starfshóps um fjármögnun framkvæmda við helstu stofnleiðir út frá höfuðborgarsvæðinu var kynnt á samgönguþingi í lok september. Þar eru verkáfangar skilgreindir, sett fram framkvæmdaáætlun og tillögur um fjármögnun. Talið er að kostnaður geti orðið um 56 milljarðar króna og að hægt sé að ljúka verkinu á um átta árum.

    14. okt. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Herða ber refsingar við ítrekuðum umferðarlagabrotum

    Samgönguþingi unga fólksins lauk á fjórða tímanum í dag en á síðari hluta þingsins störfuðu umræðuhópar og síðan var samþykkt ályktun þingsins sem beint er til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

    14. okt. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Umferðarlagabrot, almenningssamgöngur og bílprófsaldur meðal umræðuefna á samgönguþingi unga fólksins

    Á sjötta tug ungmenna frá flestum framhaldsskólum landsins situr nú samgönguþing unga fólksins í Reykjavík. Fjallað er um ýmsar hliðar samgöngumála og umferðar í erindum og umræðuhópum. Í lok þingsins verður samþykkt ályktun sem beint var til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

    13. okt. 2017Úrskurðir á málefnasviði innviðaráðuneytisins, Úrskurðir, Innviðaráðuneytið

    Úrskurður í máli nr. SRN17050104

    Samgöngustofa: Staðfest ákvörðun um bótaskyldu vegna flugs

    12. okt. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskiptasjóður, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Umsóknarferli vegna verkefnisins Ísland ljóstengt 2018 hafið

    Fjarskiptasjóður auglýsir nú umsóknarferli vegna verkefnisins Ísland ljóstengt sem er landsátak stjórnvalda í uppbyggingu ljósleiðarakerfa utan markaðssvæða í dreifbýli.

    10. okt. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Undirrituðu yfirlýsingu um rafræna stjórnsýslu

    Fulltrúar ríkja innan Evróusambandsins og ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins undirrituðu yfirlýsingu um rafræna stjórnsýslu í Tallinn í síðustu viku. Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins, undirritaði yfirlýsinguna fyrir hönd Íslands.

    10. okt. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskiptasjóður, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Sveitarfélög fá byggðastyrki til lagningar ljósleiðara

    Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur ákveðið að verja samtals 100 milljónum króna af fjárveitingu byggðaáætlunar árið 2018 til að gera strjálbýlum sveitarfélögum hægara um vik við lagningu ljósleiðarakerfa. Sambærilegur styrkur var veittur vegna slíkra framkvæmda árið 2017.

    06. okt. 2017Sveitarstjórnir og byggðamál, Jöfnunarsjóður, Innviðaráðuneytið

    Tillögur um breytingar á jöfnunarframlögum Jöfnunarsjóðs

    Nefnd sem innanríkisráðherra skipaði í september 2016 til að leggja fram tillögur um fyrirkomulag nýrra aðferða hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga við jöfnun á útgjaldaþörf og tekjumöguleikum sveitarfélaga hefur skilað samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skýrslu sinni.

    05. okt. 2017Sveitarstjórnir og byggðamál, Innviðaráðuneytið

    Flutti erindi á fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga

    Fjármálaráðstefna Sambands íslenskra sveitarfélaga stendur í dag og á morgun í Reykjavík þar sem fjallað er meðal annars um afkomu sveitarfélaga, stöðu og framtíð sveitarfélaga, sameiningar og fleira. Fjallað er um þessi efni í erindm og málstofum.

    05. okt. 2017Rit og skýrslur, Sveitarstjórnir og byggðamál, Jöfnunarsjóður, Innviðaráðuneytið

    Áfangaskýrsla nefndar um jöfnunarframlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga

    október 2017 / Innviðaráðuneytið Áfangaskýrsla nefndar um jöfnunarframlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga Áfangaskýrsla nefndar um jöfnunarframlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga Frétt frá ársfundi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 4. október 2017

    05. okt. 2017Rit og skýrslur, Sveitarstjórnir og byggðamál, Jöfnunarsjóður, Innviðaráðuneytið

    Ársskýrsla Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2016

    október 2017 / Innviðaráðuneytið Ársskýrsla Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2016 Ársskýrsla Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2016

    04. okt. 2017Sveitarstjórnir og byggðamál, Jöfnunarsjóður, Innviðaráðuneytið

    Frá ársfundi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga

    Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga fór fram í dag. Sóttu hann fulltrúar sveitarstjórna landsins, fulltrúar Jöfnunarsjóðs og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins auk gesta.

    04. okt. 2017Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Innviðaráðuneytið

    Innanlandsflug nauðsynlegur hlekkur í samgöngukerfinu

    Innanlandsflug sem almenningssamgöngur var yfirskrift málþings um innanlandsflug sem nokkur samtök sveitarfélaga, atvinnuþróunarfélög, Byggðastofnun, Austurbrú, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og fleiri aðilar stóðu að í dag.

    29. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Sveitarstjórnir og byggðamál, Innviðaráðuneytið

    Nefnd geri tillögur um jarðgangatengingu við Seyðisfjörð

    Jón Gunnarsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra tók í dag þátt í aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi sem haldinn er á Breiðdalsvík. Ráðherra hafði um morguninn flogið ásamt vegamálastjóra og forsætisráðherra yfir þau svæði á Suðausturlandi þar sem víða hefur orðið tjón á samgöngumannvirkjum og flætt yfir tún bæja vegna vatnavaxta og úrkomu. Er nú unnið að viðgerðum á Hringveginum þar sem vegasamband rofnaði.

    29. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Atvinnuleyfum leigubifreiða á höfuðborgarsvæðinu fjölgað um 20

    Breyting á reglugerð um leigubifreiðar tók gildi við birtingu í Stjórnartíðindum í gær og snýst hún um að fjölga atvinnuleyfum leigubifreiða um 20 á höfuðborgarsvæðinu. Fjöldi atvinnuleyfa á þessu svæði hefur verið óbreyttur frá 2003.

    28. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Samgönguáætlun, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Fjármögnun, ákvarðanataka, öryggi og innanlandsflug meðal umræðuefna á samgönguþingi

    Erindi um ýmsar hliðar samgöngumála voru flutt á samgönguþingi sem staðið hefur yfir í Hveragerði í dag. Á fyrsta hluta þingsins var fjallað um vinnu við samgönguáætlanir sem nú stendur og rætt um efnið í pallborði.

    28. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Samgönguáætlun, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Mikilvægt að finna fleiri leiðir til fjármögnunar samgönguframkvæmda

    Samgönguþing stendur nú yfir á Hótel Örk í Hveragerði en á fyrsta hluta þess er farið yfir stöðu við vinnslu samgönguáætlana. Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, flutti ávarp í upphafi og síðan var umfjöllun um samgönguáætlun.

    25. sep. 2017Úrskurðir á málefnasviði innviðaráðuneytisins, Úrskurðir, Innviðaráðuneytið

    Úrskurður í máli nr. SRN17041017

    Samgöngustofa: Staðfest ákvörðun um að bregðast ekki við erindi varðandi skoðanir og endurskoðanir

    25. sep. 2017Úrskurðir á málefnasviði innviðaráðuneytisins, Úrskurðir, Innviðaráðuneytið

    Úrskurður í máli nr. SRN17040961

    Samgöngustofa: Staðfest ákvörðun í tengslum við aflýsingu á flugi, greiðsla kostnaðar

    25. sep. 2017Sveitarstjórnir og byggðamál, Jöfnunarsjóður, Innviðaráðuneytið

    Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn 4. október

    Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn miðvikudaginn 4. október nk. á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Fundurinn verður í sal H-I á annarri hæð hótelsins og hefst kl. 16.

    22. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Ávarpaði hjólaráðstefnu í lok samgönguviku

    Samgönguviku sem hefur staðið yfir frá síðasta laugardegi lýkur í dag. Meðal dagskrárliða í dag var ráðstefnan Hjólum til framtíðar – ánægja og öryggi og flutti Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, ávarp og fjallaði meðal annars um fjölbreytta samgöngumtla og nýjar áherslur sem þeim tengjast.

    21. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Samgönguáætlun, Siglingar, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Skráning á samgönguþing stendur yfir

    Skráning stendur nú yfir á samgönguþing sem haldið verður fimmtudaginn 28. september. Á þinginu verður meðal annars fjallað um framtíðarsýn í samgöngum, flug sem almenningssamgöngur, orkuskipti í samgöngum og næstu samgönguáætlun.

    20. sep. 2017Sveitarstjórnir og byggðamál, Innviðaráðuneytið, Rit og skýrslur

    Skýrsla um stöðu og framtíð íslenskra sveitarfélaga

    Skýrsla um stöðu og framtíð íslenskra sveitarfélaga hefur verið afhent samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Skýrluna vann verkefnisstjórn sem þáverandi innanríkisráðherra skipaði í lok árs 2015. Var hlutverk hennar að greina sveitarstjórnarstigið og finna tækifæri og leiðir til að styrkja það.

    18. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Innviðaráðuneytið

    Drög að reglugerð um tilkynningu atvika í almenningsflugi til umsagnar

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir nú til umsagnar drög að reglugerð um tilkynningu atvika í almenningsflugi sem og greiningu á og eftirfylgni með þeim. Unnt er að senda ráðuneytinu umsagnir til 2. október næstkomandi á netfangið postur@srn.is.

    18. sep. 2017Sveitarstjórnir og byggðamál, Innviðaráðuneytið

    Ýmsar tillögur í skýrslu Byggðastofnunar um stöðu sauðfjárræktar haustið 2017

    Byggðastofnun hefur skilað samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra greiningu á stöðu sauðfjárræktar og sauðfjárbænda sem hann óskaði eftir í sumar. Óskaði ráðherra eftir mati á stöðunni á svæðum þar sem kinda- og lambakjötsframleiðsla er mikilvæg landsbyggðinni og mati á áhrifum mikillar lækkunar á afurðaverði sem fulltrúar bænda hafa spáð fyrir um.

    15. sep. 2017Annað, Innviðaráðuneytið

    Umsókn um styrk af ráðstöfunarfé innviðaráðherra

    / Innviðaráðuneytið Umsókn um styrk af ráðstöfunarfé innviðaráðherra Umsókn um styrk af ráðstöfunarfé innviðaráðherra er hægt að senda rafrænt í gegnum eyðublaðavef Stjórnarráðsins, minarsidur. stjr. is

    14. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Fyrsta sprenging í Dýrafjarðargöngum

    Jón Gunnarsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sprengdi í dag fyrstu sprengingu í jarðgöngum milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar. Framkvæmdir eru komnar vel af stað og er gert ráð fyrir að göngin verði tilbúin haustið 2020.

    14. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Brugðist við athugasemdum varðandi lög um farþega- og farmflutninga á landi

    Eftir gildistöku nýrra laga um farþegaflutninga og farmflutninga á landi 1. júní sl. hafa komið fram ábendingar frá Samgöngustofu og lögreglu um að kveða þyrfti skýrar á um tiltekin atriði í lögunum. Tilgangur frumvarpsins er að bregðast við þeim athugasemdum.

    13. sep. 2017Upplýsingatæknimál ríkisins, Netöryggi, Innviðaráðuneytið

    Úttekt á opinberum vefjum í sjöunda sinn

    Nú stendur yfir í sjöunda sinn úttekt á opinberum vefjum ráðuneyta, stofnana og sveitarfélaga. Úttektin er mikilvæg leið til að fylgjast með og stuðla að þróun opinberra vefja. Samhliða er nú jafnframt gerð úttekt á öryggi opinberra vefja.

    12. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Fjarskiptasjóður, Netöryggi, Innviðaráðuneytið

    Verkefnið Ísland ljóstengt heldur áfram og netöryggi eflt

    Fjárheimild til fjarskiptasjóðs verður alls 1.425 milljónir króna samkvæmt fjárlagafrumvarpinu sem kynnt var í dag.

    12. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Siglingar, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Rúmlega 34 milljarðar króna í samgönguverkefni

    Heildarframlag til samgöngumála verður 34,3 milljarðar króna samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs sem kynnt var í dag. Hækkar það um nálægt einum milljarði króna frá fjárlögum 2017. Við afgreiðslu fjárlaga 2017 hækkuðu framlög til samgöngumála um 4,5 milljarða króna og er sú hækkun í frumvarpinu nú.

    12. sep. 2017Sveitarstjórnir og byggðamál, Innviðaráðuneytið

    Breytingar á reglugerðum um fjármál sveitarfélaga

    Breytingar á tveimur reglugerðum um fjármál sveitarfélaga hafa tekið gildi: Annars vegar breyting á reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga og hins vegar breyting á reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga.

    11. sep. 2017Flug og flugvellir, Innviðaráðuneytið, Rit og skýrslur, Samgöngur

    Reykjavíkurflugvöllur talinn uppfylla afar vel hlutverk sitt sem alhliða öryggisflugvöllur

    Jón Gunnarsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra kynnti í dag skýrslu um öryggishlutverk Reykjavíkurflugvallar sem Þorgeir Pálsson, fyrrverandi flugmálastjóri og prófessor emeritus við HR, vann fyrir ráðuneytið. Einnig kynnti ráðherra skipan nefndar sem falið er að finna ásættanlega lausn á framtíð Reykjavíkurflugvallar.

    08. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Siglingar, Innviðaráðuneytið

    Ræddu möguleika uppbyggingar í Finnafirði

    Samráðshópur um svokallað Finnafjarðarverkefni átti nýverið fund með fulltrúum COSCO Shipping Specialized Carriers Co. Ltd. í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Verkefnið snýst um að kanna hvort unnt verður að koma upp hér á landi aðstöðu fyrir siglingar á norðurslóðum.

    07. sep. 2017Úrskurðir á málefnasviði innviðaráðuneytisins, Úrskurðir, Innviðaráðuneytið

    Úrskurður í máli nr. SRN17040689

    Þjóðskrá: Staðfest ákvörðun um að skrá sameiginlegt lögheimili hjóna

    06. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir, Siglingar, Innviðaráðuneytið

    Jón Gunnarsson tók þátt í ráðstefnu um ný tækifæri á Grænlandi

    Jón Gunnarsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra tók í gær þátt í ráðstefnu á Grænlandi þar um ný tækifæri í samskiptum ríkjanna. Ræddi hann við starfsbróður sinn um mál tengd samgöngum og var viðstaddur vígslu nýrrar hafnar í Nuuk.

    06. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Skilgreining á tjónaökutæki gerð ítarlegri í reglugerð

    Reglugerð um gerð og búnað ökutækja hefur verið breytt á þann veg að tjónaökutæki eru nú skilgreind með ítarlegri hætti en áður. Reglugerðin tók gildi 1. september síðastliðinn.

    05. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Fjarskiptasjóður, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Undirbúningur hafinn að landsátakinu Ísland ljóstengt vegna 2018

    Hafinn er undirbúningur fyrir næsta áfanga landsátaksins Ísland ljóstengt. Snýr hann bæði að fjármagni til einstakra byggða sem verður úthlutað í annað sinn og svonefndum samkeppnispotti sem verður úthlutað úr í þriðja sinn.

    02. sep. 2017Samgöngur og fjarskipti, Vegasamgöngur, Innviðaráðuneytið

    Tók fyrstu skóflustungu að hjólastíg í Eyjafjarðarsveit

    Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hélt í morgun 500. fund sinn og með því að hefja framkvæmdir við hjólastíg sem tengir sveitarfélagið við Akureyri. Jón Gunnarsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra tók fyrstu skóflustunguna.

    01. sep. 2017Atvinnuvegaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Atvinnuvegir

    Starfshópur skipaður um starfsumhverfi gagnavera

    Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra skipaði í dag, í samráði við samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, starfshóp til að greina og meta starfsumhverfi gagnavera.

    01. sep. 2017Innviðaráðuneytið

    Staða ritara ráðherra auglýst

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið óskar eftir að ráða ritara ráðherra. Starfið er mjög fjölþætt og felst í almennum ritarastörfum ásamt sérhæfðari verkefnum.

    31. ágú. 2017Flug og flugvellir, Innviðaráðuneytið

    Ráðstefna flugmálastjórna Evrópu haldin í Reykjavík

    Nú stendur yfir í Reykjavík ráðstefna flugmálastjórna Evrópu þar sem fjallað er um flugöryggismál og þróun á evrópsku og alþjóðlegu regluverki í flugi. Fundurinn stendur til laugardags.

    31. ágú. 2017Atvinnuvegir, Innviðaráðuneytið

    Ávarpaði ráðstefnu um stafræna tækniþróun í flutningageiranum

    Jón Gunnarsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra ávarpaði í dag ráðstefnu Samtaka verslunar og þjónustu um stafræna tækniþróun í flutningageiranum. Á ráðstefnunni voru flutt erindi um flutningatækni, aðfangastjórnun og mikilvægi skilvirks flutningakerfis.

    31. ágú. 2017Jöfnunarsjóður, Innviðaráðuneytið, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Framlög Jöfnunarsjóðs til eflingar tónlistarnámi

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitafélaga um úthlutun framlaga til eflingar tónlistarnámi og jöfnunar á aðstöðumun nemenda skólaárið 2017-2018.

    • First
    • Prev
    • 39
    • 40
    • 41
    • 42
    • 43
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband