03. jún. 2020Utanríkisráðuneytið, Covid-19, Utanríkismál
Utanríkisráðherra fundar með NB8 og Visegrad-ríkjum
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, tók í dag þátt í utanríkisráðherrafundi Norðurlanda, Eystrasaltsríkja og Visegrad-ríkja. Visegrad-ríkin eru Pólland, Tékkland, Slóvakía og Ungverjaland. Afleiðingar COVID-19 heimsfaraldursins, efnahagsmál og þróun í þeim efnum í Evrópu voru til umfjöllunar.