31. okt. 2023Ræður og greinar, Dómsmálaráðuneytið
Afbrotavarnir í þágu öruggs samfélags
31 október 2023
/
Dómsmálaráðuneytið
Afbrotavarnir í þágu öruggs samfélags
Skýrar vísbendingar hafa komið fram á síðustu árum um að umfang og eðli skipulagðrar brotastarfsemi hafi tekið verulegum breytingum hér á landi til hins verra. Hópar innlendra jafnt sem erlendra aðila hafa það að atvinnu að fremja fjölda afbrota með skipulegum hætti, þar á meðal alvarleg ofbeldisbrot, þjófnað, fjársvik, fíkniefnabrot og peningaþvætti. Þetta er verulegt áhyggjuefni