Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Heilbrigðismál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 301–350 af 547
    Raða eftir:
    09. ágú. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Leiðbeiningar um beitingu þvingunarúrræða samkvæmt lögræðislögum til skoðunar

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að meta hvort þörf sé á að setja frekari leiðbeiningar um útfærslu á þvingunarúrræðum en felast í lögræðislögum varðandi meðferð einstaklinga sem eru nauðungarvistaðir á sjúkrahúsi.

    07. ágú. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisstefna til ársins 2030 kynnt í heilbrigðisumdæmi Vesturlands

    Heilbrigðisráðherra, stendur fyrir opnum fundi um heilbrigðisstefnu til ársins 2030, í samvinnu við Heilbrigðisstofnun Vesturlands, þann 15 ágúst. Fundurinn verður haldinn í fundarsal Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi kl. 17 – 19.

    07. ágú. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Ný heilbrigðisstefna kynnt á opnum fundi á Selfossi 14. ágúst

    Heilbrigðisráðherra stendur fyrir opnum fundi um heilbrigðisstefnu til ársins 2030, í samvinnu við Heilbrigðisstofnun Suðurlands, þann 14. ágúst. Fjallað verður um hvað felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er líkleg til að hafa í för með sér og hvers vegna hún skiptir svo miklu máli, hvort heldur í þéttbýli eða í dreifðari byggðum landsins. Fundurinn verður haldinn í fundarsal Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi kl. 17 – 19.

    07. ágú. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Díana Óskarsdóttir skipuð forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Díönu Óskarsdóttur í embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands til næstu fimm ára. Ákvörðun ráðherra er tekin að undangengnu mati lögskipaðrar hæfnisnefndar sem metur hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana. Sex sóttu um stöðuna.

    22. júl. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra skrifar um forsendur forgangsröðunar í heilbrigðiskerfinu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallar um forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu í blaðagrein í dag. Kröfur um forgangsröðun fari vaxandi og þá sé mikilvægt að byggt sé á skýrum viðmiðum og siðferðilegum gildum sem sátt ríki um í samfélaginu. Þetta verður viðfangsefni Heilbrigðisþings 2019 sem haldið verður 15. nóvember. „Vonir mínar standa til þess að ég geti á vorþingi 2020 lagt fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um þau siðferðilegu gildi og viðmið sem leggja beri til grundvallar við forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu“ segir meðal annars í grein ráðherra. Umfjöllun um þessi mál er jafnframt liður í framkvæmd Heilbrigðisstefnu til ársins 2030 sem samþykkt var á Alþingi sem þingsályktun í júní síðastliðnum.

    20. júl. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Yfirlýsing um fyrirkomulag heilbrigðisþjónustu við börn með fíknivanda

    Eftirfarandi er sameiginleg yfirlýsing heilbrigðisráðuneytisins, Landspítala, SÁÁ og Sjúkratrygginga Íslands um bætta heilbrigðisþjónustu við börn að 18 ára aldri með neyslu- og fíknivanda. Er þá átt við bráðameðferð, afeitrun og aðra þá sjúkrahúsmeðferð sem nauðsynleg er og tengist vanda hlutaðeigandi barna.

    17. júl. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Opnun nýja hjúkrunarheimilisins Sólvangs í Hafnarfirði

    Nýtt og glæsilegt 60 rýma hjúkrunarheimili í Hafnarfirði, sem leysir af hólmi gamla Sólvang var formlega opnað í dag. Ráðgert er að fyrstu íbúarnir flytji inn í byrjun ágúst. Gamli Sólvangur mun áfram gegna hlutverki í þágu aldraðra og þegar upp er staðið fjölgar hjúkrunarrýmum á Sólvangi úr 59 í 93.

    11. júl. 2019Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál

    Úrskurður nr. 6/2019

    Kærð var ákvörðun Embættis landlæknis sem synjaði kæranda um starfsleyfi sem sálfræðingur. Ráðuneytið staðfesti ákvörðun embættisins en lagði það fyrir embættið að leiðbeina kæranda um til hvaða úrbóta hún geti gripið til svo henni sé unnt að sækja á ný um starfsleyfi sem sálfræðingur.

    11. júl. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Samkomulag um kaup og rekstur sjúkrabifreiða

    Sjúkratryggingar Íslands og Rauði krossinn á Íslandi hafa náð samkomulagi um framlengingu á samningi um kaup og rekstur sjúkrabifreiða. Heilbrigðisráðherra staðfesti samkomulagið við undirritun þess í dag. Tafarlaust verður ráðist í kaup á 25 nýjum sjúkrabifreiðum samkvæmt útboði sem nú stendur yfir og má vænta þess að fyrstu bílarnir verði teknir í notkun á árinu 2020.

    11. júl. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Rúmum 400 milljónum kr. úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur úthlutað rúmum 400 milljónum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra til uppbyggingar og endurbóta á hjúkrunarheimilum um land allt. Úthlutunin er í samræmi við tillögu stjórnar sjóðsins.

    10. júl. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Sendiráð Íslands í Brussel

    Bréf norrænna heilbrigðisráðherra um rafræna fylgiseðla með lyfjum afhent í Brussel

    Gunnar Pálsson, sendiherra Íslands í Brussel afhenti í dag, bréf til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að skoðað verði að opna heimild til að notast við rafræna fylgiseðla með lyfjum.

    10. júl. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Sendiráð Íslands í Brussel

    Bréf norrænna heilbrigðisráðherra um rafræna fylgiseðla með lyfjum afhent í Brussel

    Gunnar Pálsson, sendiherra Íslands í Brussel afhenti í dag, bréf til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að skoðað verði að opna heimild til að notast við rafræna fylgiseðla með lyfjum.

    02. júl. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Samningur um skipulagða leit að krabbameinum í leghálsi og brjóstum

    Sjúkratryggingar Íslands hafa gengið frá samkomulagi við Leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands um framlengingu á samningi um skipulagða leit að krabbameinum í leghálsi og brjóstum í þeim tilgangi að draga úr sjúkdómum og fækka dauðsföllum af þeirra völdum.

    28. jún. 2019Rit og skýrslur, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisstefnu 2019 - 2023

    Fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisstefnu 2019 - 2023

    28. jún. 2019Rit og skýrslur, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Heilbrigðisstefna - stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030

    Heilbrigðisstefna - stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030, ásamt fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisstefnu 2019 - 2023

    28. jún. 2019Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Heilbrigðisstefna til ársins 2030 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun

    Heilbrigðisstefna – stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 er nú aðgengileg sem skýrsla heilbrigðisráðuneytisins á vef Stjórnarráðsins. Heilbrigðisstefnan var samþykkt sem ályktun frá Alþingi 4. júní síðastliðinn. Fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisstefnu 2019 til 2023 hefur einnig verið birt á skýrsluformi á vefnum. Aðgerðaáætlunin var lögð fram sem þingskjal 149. löggjafarþingi 2018 – 2019 (Þingskjal 1704 — 961. mál.

    27. jún. 2019Heilbrigðismál, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Norrænt samstarf, Formennska Íslands 2019, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Norrænir ráðherrar vilja efla nýskapandi heilbrigðislausnir og hringrásarhagkerfi

    Norrænu atvinnumálaráðherrarnir vilja efla nýsköpun á sviði heilbrigðismála með því að auðvelda ýmsum aðilum innan geirans aðgengi að heilsufarsgögnum milli norrænu landanna. Einnig vilja ráðherrarnir styðja við umskipti til hringrásarhagkerfis í atvinnulífi Norðurlanda.

    27. jún. 2019Heilbrigðismál, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Norrænt samstarf, Formennska Íslands 2019, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Norrænir ráðherrar vilja efla nýskapandi heilbrigðislausnir og hringrásarhagkerfi

    Norrænu atvinnumálaráðherrarnir vilja efla nýsköpun á sviði heilbrigðismála með því að auðvelda ýmsum aðilum innan geirans aðgengi að heilsufarsgögnum milli norrænu landanna. Einnig vilja ráðherrarnir styðja við umskipti til hringrásarhagkerfis í atvinnulífi Norðurlanda.

    24. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Drög að stefnu í málefnum fólks með heilabilun

    Hér með eru birt til umsagnar drög að stefnu um málefni einstaklinga með heilabilum. Drögin vann Jón Snædal öldrunarlæknir að beiðni heilbrigðisráðherra. Umsagnarfrestur er til 15. ágúst næstkomandi.

    24. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Aðgerðaáætlun til að draga úr sykurneyslu landsmanna

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti fyrir ríkisstjórn síðastliðinn föstudag áætlun sem Embætti landlæknis hefur unnið um aðgerðir til að draga úr sykurneyslu landsmanna. Á fundi ríkisstjórnarinnar var ákveðið að skipa starfshóp sem falið verður að innleiða áætlunina. Heilbrigðisráðherra fjallar um málið í eftirfarandi blaðagrein í dag.

    21. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Umsækjendur um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands

    Sex sækja um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands sem heilbrigðisráðuneytið auglýsti laust til umsóknar í lok maí. Umsóknarfrestur rann út 18. júní síðastliðinn.

    21. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Viðmið fyrir umföllun um geðheilbrigðismál í fjölmiðlum

    Heilbrigðisráðherra skipaði í október á liðnu ári starfshóp sem falið var að setja fram ábendingar fyrir fjölmiðla um hvernig best megi fjalla um geðheilbrigðismál án þess að alið sé á fordómum. Starfshópurinn var skipaður í samræmi við ályktun Alþingis um stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára. Starfshópurinn hefur samið drög að viðmiðum fyrir fjölmiðla í þessu skyni og eru þau nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

    20. jún. 2019Innviðaráðuneytið, Heilbrigðismál, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Fundur um fjarheilbrigðisþjónustu í dreifbýli

    Fjarheilbrigðisþjónusta í dreifbýli er viðfangsefni fundar í næstu viku sem haldinn er í tilefni af formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni.

    19. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Vel heppnaðir kynningarfundir um nýja heilbrigðisstefnu fyrir norðan og vestan

    Opinn kynningarfundur sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra efndi til um heilbrigðisstefnu til ársins 2030 var haldinn á Ísafirði í gær og annar fundur á Akureyri fyrir viku. Ráðherra mun standa fyrir sambærilegum fundum í öllum heilbrigðisumdæmum landsins í samvinnu við heilbrigðisstofnanir umdæmanna. Umfjöllunin snýst um efni og innleiðingu stefnunnar og líkleg áhrif hennar á heilbrigðisþjónustu við íbúa í viðkomandi heilbrigðisumdæmum og á landsvísu.

    19. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Alþjóðleg könnun á viðhorfum fólks til bólusetninga

    Hér á landi telja 97% almennings að bólusetningar séu áhrifaríkar til að koma í veg fyrir sjúkdóma og 99% telja bólusetningar mikilvægar fyrir börn. Aftur á móti eru um 40% aðspurða í vafa um öryggi bóluefna. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri alþjóðlegri skoðanakönnun um ýmis heilbrigðismál þar sem meðal annars var spurt um afstöðu fólks til bólusetninga.

    13. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Ný heilbrigðisstefna kynnt á opnum fundi á Ísafirði 18. júní

    Heilbrigðisstefna til ársins 2030 kynnt 18. júní á hjúkrunarheimilinu Eyri á Ísafirði.

    12. jún. 2019Líf og heilsa, Neytendamál, Heilbrigðismál, Landbúnaður, Lýðheilsa og forvarnir, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Skimun fyrir sjúkdómsvaldandi bakteríum í kjöti á markaði 2018

    Skimunin sýnir að STEC E. coli finnst bæði í kjöti af íslensku sauðfé og nautgripum. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu Matvælastofnunar. Þetta er í fyrsta sinn sem skimað er fyrir þessari eiturmyndandi tegund E. coli í kjöti af sauðfé og nautgripum hérlendis. Salmonella og kampýlóbakter greindust ekki í svína- og alifuglakjöti að undanskilinni salmonellu sem fannst í einu sýni af svínakjöti. Ljóst er að mikill árangur hefur náðst með forvörnum og eftirliti í eldi og við slátrun alifugla og svína.

    12. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Heilbrigðismál

    Opinn kynningarfundur um heilbrigðisstefnu til ársins 2030

    Efnt var til opins kynningarfunda um nýsamþykkta heilbrigðisstefnu í Hofi á Akureyri 12. júní. Fjallað var um hvað felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er líkleg til að hafa í för með sér og hvers vegna hún skiptir svo miklu máli, hvort heldur í þéttbýli eða í dreifðari byggðum landsins.

    09. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Ný heilbrigðisstefna kynnt á opnum fundi á Akureyri 12. júní

    Efnt verður til opinna kynningarfunda um nýsamþykkta heilbrigðisstefnu til ársins 2030 í öllum heilbrigðisumdæmum landsins og verður fyrsti fundurinn haldinn í Hofi á Akureyri 12. júní næstkomandi. Fjallað verður um hvað felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er líkleg til að hafa í för með sér og hvers vegna hún skiptir svo miklu máli, hvort heldur í þéttbýli eða í dreifðari byggðum landsins.

    07. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Lýðheilsuvísar: Heilsa og líðan fólks eftir landshlutum

    Tæplega 30% fullorðinna og rúmlega 70% framhaldsskólanema ná ekki nægum svefni. – Dagleg neysla orkudrykkja meðal framhaldsskólanema hefur aukist úr 21,7% árið 2016 í 54,6% árið 2018. – Dregið hefur úr ávísunum sýklalyfja til barna. – Þátttaka í skimun fyrir leghálskrabbameini og brjóstakrabbameini hefur minnkað síðastliðin ár. – Um 60% landsmanna telja sig mjög hamingjusama. Þetta og margt fleira má lesa út úr nýjum lýðheilsuvísum Embættis landlæknis.

    05. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Minnt á samráðsferli um rafræna fylgiseðla

    Drög að stefnu um rafrænar lyfjaupplýsingar eru til umsagnar í samráðsgátt á vegum Lyfjastofnunar Evrópu o.fl. Stefnan fjallar um samræmingu upplýsinga um lyf á Evrópska efnahagssvæðinu og eru þar sett fram ýmis rök fyrir margvíslegum ávinningi af notkun rafrænna fylgiseðla. Hagsmunaaðilum og almenningi er gefinn kostur á að segja álit sitt á stefnudrögunum. Nánar er fjallað um málið á vef Lyfjastofnunar.

    04. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Þjónusta við fólk með ákominn heilaskaða

    Starfshópur sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skipaði til að fjalla um þjónustu við fólk með ákominn heilaskaða og leiðir til að bæta hana hefur skilað ráðherra skýrslu með tillögum sínum.

    04. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisstefna til ársins 2030 samþykkt á Alþingi

    Samþykkt var á Alþingi í gær tillaga Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Tillagan var samþykkt með 45 atkvæðum og án mótatkvæða. „Heilbrigðisstefnan er sameign okkar allra, lýðræðislega kjörið Alþingi stendur að baki henni. Þetta eru mikilvæg tímamót“ sagði heilbrigðisráðherra sem kynnti heilbrigðisstefnuna á blaðamannafundi í gær.

    28. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Greiðsluþátttaka vegna tæknifrjóvgunar aukin umtalsvert

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð sem kveður á um aukna greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í kostnaði þeirra sem fara í tæknifrjóvgun. Þegar reglugerðin tekur gildi verður greiðsluþátttaka sjúkratrygginga vegna tæknifrjóvgunar orðin meiri en hún hefur áður verið. „Það er ánægjulegt að geta gert þessa breytingu, því hún jafnar aðgengi fólks að mikilvægri þjónustu“ segir ráðherra.

    27. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Vel sótt vinnustofa um uppbyggingu árangursríkra geðheilsuteyma

    Heilbrigðisráðuneytið hélt fyrir helgi vinnustofu með fulltrúum geðheilsuteyma af öllu landinu og fulltrúum notenda geðheilbrigðisúrræða um uppbyggingu árangursríkra geðheilsuteyma á landsvísu. Mikill áhugi var fyrir vinnustofunni og komust færri að en vildu.

    27. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Reglugerð um tilkynningar til þátttakenda í vísindarannsóknum á heilbrigðissviði

    Birt hefur verið til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda reglugerð heilbrigðisráðherra sem kveður á um í hvaða tilfellum og hvernig eigi að tilkynna þátttakanda í vísindarannsókn um mikilvæga þætti sem koma fram við gerð rannsóknar og varðar heilsu hans.

    24. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Bið eftir aðgerðum: margþættur vandi sem kallar á fjölbreyttar úrlausnir

    Ný úttekt Embættis landlæknis með ýtarlegri greiningu á biðlistum vegna valinna aðgerða og ástæðum þess að ekki hefur náðst ásættanlegur árangur við að stytta biðtíma varpar ljósi á margþættan vanda sem þarf að takast á við eftir ólíkum leiðum. Eftirspurn eftir liðskipaaðgerðum hefur aukist verulega á liðnum árum og umfram spár. Þróunin er sambærileg hér og hjá öðrum þjóðum. ​ ​ ​ ​ ​ ​ ​ ​ ​

    24. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    InterRAI-mælitækin og framkvæmd færni- og heilsumats

    Vinnuhópur á vegum heilbrigðisráðherra hefur skilað skýrslu með ýtarlegum tillögum um úrbætur við notkun InterRAI- mælitækjanna í öldrunarþjónustu og ýmsum breytingum á framkvæmd færni- og heilsumats. Hópurinn skilaði ráðherra skýrslu sinni í gær.

    20. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Fastanefndir, Líf og heilsa, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Sendiskrifstofa

    72. þing Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar-innar

    Í dag hófst í Genf 72. þing Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Áhugasamir geta fylgst með beinni útsendingu frá þinginu á vefnum.

    16. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Þrjátíu ný dagdvalarrými fyrir fólk með heilabilun

    Opnuð hefur verið í Hrafnistu í Laugarási ný dagdvöl ætluð fólki með heilabilun, með aðstöðu fyrir 30 einstaklinga. Aðstöðunni var komið á fót með breytingum á húsnæði sem ekki var lengur unnt að nýta til reksturs hjúkrunarrýma. Heilbrigðisráðherra gerði nýsköpun og getuna til að sjá tækifæri í breyttum aðstæðum að umtalsefni í ávarpi sem hún flutti við vígslu deildarinnar.

    16. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Ráðherra hitti fulltrúa notenda geðheilbrigðisþjónustu á samráðsfundi

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hitti á fundi í heilbrigðisráðuneytinu í vikunni fulltrúa notenda geðheilbrigðisþjónustu. Þetta er í annað sinn sem slíkur samráðsfundur er haldinn en áformað er að halda þá tvisvar á ári. Verið er að ráða fulltrúa notenda inn í geðheilsuteymi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

    14. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Auglýst eftir veitendum geðheilbrigðisþjónustu í fangelsum

    Sjúkratryggingar Íslands hafa auglýst eftir áhugasömum aðila til að útfæra og veita geðheilbrigðisþjónustu við fanga í öllum fangelsum landsins. Auknir fjármunir til að efla geðheilbrigðisþjónustu við fanga eru tryggðir í fjárlögum þessa árs.

    14. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Heilbrigðismál

    Nýmæli í þjónustu Sjúkrahússins á Akureyri

    Bjarni Jónasson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri, fjallaði um ýmis nýmæli í þjónustu sjúkrahússins í ávarpi á ársfundi þess í liðinni viku. Hann sagði frá bættu vinnulagi sem hefur gert kleift að fjölga gerviliðaaðgerðum til muna og gerði einnig rafrænar lausnir og fjarþjónustu að umtalsefni. Elsa B. Friðfinnsdóttir, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu sótti fundinn og flutti ávarp fyrir hönd heilbrigðisráðherra.

    10. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Miklar breytingar með nýrri reglugerð um dvöl á sjúkrahóteli

    Heilbrigðisráðherra hefur undirritað nýja reglugerð um dvöl á sjúkrahóteli. Nýja sjúkrahótelið við Hringbraut er tekið til starfa og voru fyrstu gestirnir innritaðir í byrjun vikunnar. Reglugerðin felur í sér grundvallarbreytingar sem rýmka verulega rétt fólks til að dvelja á sjúkrahóteli frá því sem verið hefur.

    07. maí 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Heilbrigðismál, Landbúnaður, Lýðheilsa og forvarnir, Opinber innkaup, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Tillögum að innkaupastefnu matvæla fyrir ríkisaðila skilað til ráðherra

    Ríkið kaupir matvæli fyrir um 3 milljarða króna á ári og ljóst er að stórkaupandi eins og ríkið getur haft víðtæk áhrif á eftirspurn matvæla og eflingu nýsköpunar. Það er vilji stjórnvalda að ganga á undan með góðu fordæmi og stuðla að því að innkaup ríkisaðila á matvælum byggi á raunhæfum úrbótum í samvinnu við hagaðila og verði fyrirmynd annarra opinberra aðila eins og sveitarfélaga.

    07. maí 2019Rit og skýrslur, Atvinnuvegir, Heilbrigðismál, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið, Lýðheilsa og forvarnir

    Innkaupastefna matvæla fyrir ríkisaðila

    maí 2019 / Atvinnuvegaráðuneytið Innkaupastefna matvæla fyrir ríkisaðila Innkaupastefna matvæla fyrir ríkisaðila Kjarni stefnunnar er að innkaup ríkisaðila á matvælum byggi á markmiðum um sjálfbærni, góða lýðheilsu og umhverfisvitund. Íslenska ríkið kaupir matvæli fyrir um þrjá milljarða króna á ári og sem stórkaupandi getur það haft víðtæk áhrif á eftirspurn eftir matvælum, stuðlað að umhverfisvænum innkaupum, dregið úr kolefnisspori og eflt nýsköpun

    24. apr. 2019Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Lyfjamál, Heilbrigðisráðuneytið

    Tímamótasamstarf norrænna þjóða á sviði lyfjamála staðfest

    Samstarf Íslands, Danmerkur og Noregs á sviði lyfjamála var staðfest með undirritun samkomulags í Reykjavík í gær. Lægra lyfjaverð, öruggara framboð lyfja og þar með aukið öryggi sjúklinga er sá ávinningur sem stefnt er að með samstarfinu. Með þessu eru orðin að veruleika áform um samvinnu sem hafa verið á dagskrá í norrænu samstarfi um langt árabil.

    12. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Stuðningur við aldraða til sjálfstæðrar búsetu verði aukinn

    Efnt verður til samstarfsverkefnis með áherslu á heilsueflingu aldraða og markvissari þjónustu við þá sem þurfa stuðning til að geta búið á eigin heimili vegna heilsubrests. Ríkisstjórnin samþykkti tillögu heilbrigðisráðherra þessa efnis á fundi sínum í dag. Undirbúningur verkefnisins verður á hendi ráðuneyta heilbrigðis- forsætis- félags- og fjármála, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Embættis landlæknis og mun starfshópur þessara aðila skila tillögum um fyrirkomulag þess til heilbrigðisráðherra í júní næstkomandi.

    11. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Sameiginlegt norrænt útboð á lyfjum: Birting útboðsgagna

    Undirbúningi að fyrsta sameiginlega norræna lyfjaútboðinu er lokið og útboðsgögn hafa nú verið birt. Vonir standa til að samvinnan geti meðal annars aukið afhendingaröryggi lyfja sem skortur hefur verið á að undanförnu.

    09. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Samningur um göngudeildarþjónustu SÁÁ

    Heilbrigðisráðherra staðfesti nýlega samning milli Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ; sjúkrastofnunar um áfengis- og vímuefnameðferð, sem fjallar um þjónustu á göngudeildum SÁÁ í Reykjavík og á Akureyri.

    • First
    • Prev
    • 5
    • 6
    • 7
    • 8
    • 9
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband