20. nóv. 2025Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Innviðaráðuneytið
Árangursríkar samningaviðræður á ráðstefnu Alþjóðaflugmálastofnunarinnar
Talsverður árangur náðist um aukin flugréttindi við endurskoðun og uppfærslu tiltekinna loftferðasamninga á loftferðasamningaráðstefnu Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, ICAN 2025, sem samninganefnd Íslands sótti í bænum Punta Cana í Dóminíska lýðveldinu, 10. til 14. nóvember síðastliðinn. Afraksturinn er meðal annars einföldun ferðalaga Íslendinga til fjarlægra slóða með íslenskum flugfélögum, en samninganefndin átti jafnframt gagnlega fundi varðandi möguleika íslenskra flugrekenda á flutningi farms erlendis.