Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Vísindi nýsköpun og rannsóknir
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 401–450 af 593
    Raða eftir:
    10. maí 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menntamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Vísindin geyma lausnirnar: Vísindamálaráðherrar funda um málefni norðurslóða

    „Það eru samvinnan og vísindin sem munu leiða okkur að lausnum við þeim flóknu áskorunum sem mæta okkur vegna loftslagsbreytinga og hlýnunar jarðar.“

    08. maí 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menntamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Samkomulag undirritað um samstarf Íslands og Japan: Menntun, vísindi, tækni og nýsköpun

    Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra átti í dag fund með Koichi Hagiuda, mennta- og vísindamálaráðherra Japan.

    04. maí 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menntamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Bætt aðgengi að háskólanámi á Austurlandi

    Frá og með næsta hausti mun Háskólinn í Reykjavík bjóða upp á undirbúningsnám fyrir háskólanám á Austurlandi, í samvinnu við Háskólann á Akureyri. Námið verður sveigjanlegt, blanda af hefðbundnu og stafrænu námi, með kennslu og aðstöðu í Fróðleiksmolanum á Reyðarfirði.

    16. apr. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ný lög um opinbert stuðningsumhverfi nýsköpunar

    Frumvarp Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, um opinberan stuðning við nýsköpun er orðið að lögum.

    14. apr. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Forsætisráðuneytið

    Ný lög um Vísinda- og nýsköpunarráð

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, mælti í gær fyrir frumvarpi til nýrra laga um Vísinda- og nýsköpunarráð. Markmið þess er að styrkja langtímastefnumótun í vísinda- og nýsköpunarmálum með heildrænni nálgun á málaflokkinn, skýrari hlutverkum helstu aðila og öflugri sjálfstæðri gagnagreiningu. Ætlunin er einnig að tryggja betri eftirfylgni og aukið samstarf og samhæfingu á milli ráðuneyta.

    14. apr. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    236 umsóknir um Lóu nýsköpunarstyrki

    Nýverið lauk umsóknarfresti um Lóu-nýsköpunarstyrki og bárust alls 236 umsóknir. Þessi mikli fjöldi umsókna er lýsandi fyrir fjölbreytt og öflugt nýsköpunarstarf um allt land en markmiðið með styrkjunum er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæðanna sjálfra.

    10. apr. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Forsætisráðuneytið

    Heilsa og velferð til umræðu á fundi Vísinda- og tækniráðs

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra stýrði í gær 42. fundi Vísinda- og tækniráðs en þar voru til umfjöllunar málefni tengd heilsu og velferð.

    09. apr. 2021Félags- og fjölskyldumál, Menntamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Sókn fyrir námsmenn: Sumarnám og sumarstörf 2021

    Fjölbreytt sumarnám og sumarstörf verða í boði fyrir ungt fólk og atvinnuleitendur í sumar, sem lið í aðgerðum stjórnvalda til þess að stuðla að virkni og framtíðarsókn fyrir íslenskt atvinnulíf.

    08. apr. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Kristján Þór opnaði Mælaborð landbúnaðarins

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, opnaði Mælaborð landbúnaðarins á opnum streymisfundi í dag. Mælaborðið er aðgengilegt á vefnum www.mælaborðlandbúnaðarins.is​​

    07. apr. 2021Atvinnuvegir, Auðlindir, Neytendamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fiskeldi, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Matvælasjóður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Margrét Hólm nýr formaður Matvælasjóðs

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað Margréti Hólm Valsdóttur nýjan formann Matvælasjóðs.

    31. mar. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fiskeldi, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Þorsteinn Sigurðsson nýr forstjóri Hafrannsóknastofnunar

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað Þorstein Sigurðsson í embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar – rannsóknar- og ráðgjafastofnunar hafs og vatna.

    22. mar. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Þórdís Kolbrún undirritaði samevrópska ráðherrayfirlýsingu um nýsköpun og sprotafyrirtæki

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur undirritað samevrópska ráðherrayfirlýsingu um Evrópusambandið sem öflugt samfélag frumkvöðla og sprotafyrirtækja (e. The EU Startup Nations Standard of Excellence). Yfirlýsingin er hluti af fundi framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og EES-þjóðanna um stafræna þróun (e. Digital Day).

    17. mar. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Forsætisráðuneytið

    Alþjóðaráðstefna um lýðræði og stafræna tækni

    Forsætisráðuneytið, í samvinnu við Rannsóknarsetrið EDDU við Háskóla Íslands, Alþingi og fjölmiðlanefnd, stendur fyrir alþjóðlegu ráðstefnunni Democracy in a Digital Future dagana 25. og 26. mars nk.

    17. mar. 2021Atvinnuvegir, Menntamál, Sveitarstjórnir og byggðamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menntun fyrir alla, Nýsköpun, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Smíðum framtíðina: Stafrænar smiðjur stórefldar

    Stafrænar smiðjur (e. Fab-Lab) hringinn í kringum landið fá stóraukinn fjárstuðning með samkomulagi sem ráðherrar ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar, mennta- og menningarmála, viðkomandi sveitarstjórnir og skólar undirrituðu í dag. Framlag ráðuneytanna til stafrænna smiðja verður alls 84 milljónir kr. á árinu 2021, þ.e. 38 milljónir frá mennta- og menningarmálaráðuneyti og 46 milljónir kr. frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

    12. mar. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menntamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Úttekt á gæðum náms við Háskólann á Bifröst

    Gæðaráð íslenskra háskóla hefur nú birt niðurstöður úttektar á gæðum náms við Háskólann á Bifröst.

    12. mar. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Klasastefna fyrir Ísland: Mikilvæg stoð fyrir samkeppnishæfni og verðmætasköpun

    Klasasamstarf gengur út á að skapa tengslanet og samstarf fyrirtækja í viðskiptalífinu sem byggir á mannauði, tækni, fjármagni og þekkingu og ekki síst að skapa umhverfi til nýsköpunar og þróunar. Klasar eru hreyfiafl nýsköpunar í þeim geira sem hann myndast um. Ég er sannfærð um að í framtíðinni muni hlutverk klasa í nýsköpunarvistkerfi atvinnulífsins verða enn fyrirferðameira og mikilvægara. Þeir þurfa að fá það súrefni, eldmóð og kraft sem nauðsynlegur er til að knýja áfram verðmætasköpun og toga íslenskt atvinnulíf áfram upp stigann í átt að aukinni samkeppnishæfni,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, sem í dag kynnti með kynningarfundi nýja Klasastefnu fyrir Ísland.

    12. mar. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Kynning á Klasastefnu fyrir Ísland: Í dag klukkan 10

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, býður til kynningarfundar (í streymi) um nýja Klasastefnu fyrir Ísland, í dag föstudaginn 12. mars kl 10:00.

    04. mar. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Kría hefur sig til flugs: Þórdís Kolbrún skipar fyrstu stjórn Kríu

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur skipað fyrstu stjórn Kríu – sprota- og nýsköpunarsjóðs og sett reglugerð svo sjóðurinn geti hafið störf.

    01. mar. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Forsætisráðuneytið

    Spurningar um gervigreindarstefnu fyrir Ísland í samráðsgátt

    Nefnd um ritun gervigreindarstefnu fyrir Ísland, sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra skipaði í október 2020, vinnur nú drög að stefnu Íslands um gervigreind. Lögð er áhersla á að lýðræðislegar reglur ráði því hvernig gervigreind er notuð og öllum sé tryggður jafn réttur til að móta þjóðfélag framtíðarinnar.

    16. feb. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Þórdís Kolbrún hefur lagt skýrslu um mótun klasastefnu fram á Alþingi

    „Með klasastefnu erum við komin með verkfæri til að takast á við alla þætti nýsköpunar á forsendum þeirra sem vinna að verkefnunum hvar sem er á landinu. Hún er veigamikill þáttur í þeirri heildarendurskoðun og samþættingu á umhverfi nýsköpunar sem nú stendur yfir. Hún er einnig mikilvæg stoð fyrir samkeppnishæfni, verðmætasköpun og áframhaldandi sókn íslensks atvinnulífs.“

    11. feb. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Nýir nýsköpunarstyrkir: 100 milljónir í Lóu - nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina

    Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra auglýsir eftir umsóknum um Lóu - nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina.

    28. jan. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Mikilvægi vísindasamstarfs við Dani

    Skipuð hefur verið verkefnisstjórn sem vinna á að því að efla vísindasamstarf Íslands og Danmerkur.

    22. jan. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fiskeldi, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Umsækjendur um stöðu forstjóra Hafrannsóknarstofnunar

    Alls bárust sex umsóknir um embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar sem auglýst var þann 19. desember 2020 en umsóknarfrestur rann út þann 19. janúar sl.

    21. jan. 2021Forsætisráðuneytið, Atvinnuvegir, Menntamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Nýsköpun, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Stærsta úthlutun Rannsóknasjóðs frá upphafi

    Tilkynnt hefur verið um úthlutun styrkja Rannsóknasjóðs fyrir árið 2021. Alls hljóta 82 ný verkefni styrk sem er mesti fjöldi frá upphafi og jafnframt hefur heildarupphæð sem úthlutað er aldrei verið hærri.

    16. des. 2020Atvinnuvegir, Auðlindir, Umhverfi og náttúruvernd, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Orka, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Orkusjóður, Innviðaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Orkuskipti 2020 – úthlutun styrkja úr Orkusjóði

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hafa ákveðið að fela Orkusjóði að veita 192 milljónir kr. til 55 verkefna í orkuskiptum af þeim fjárveitingum sem veittar eru til loftslagsmála í ár.

    15. des. 2020Húsnæðis- og mannvirkjamál, Skipulagsmál, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Byggingavettvangurinn útfærir tillögur sínar um langtímaætlun um fyrirkomulag rannsókna, þróunar og nýsköpunar

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur gert samkomulag við Byggingavettvanginn um útfærslu á tillögum um langtímaáætlun um fyrirkomulag rannsókna, þróunar og nýsköpunar í byggingariðnaði þar sem nú liggur fyrir að leggja á Nýsköpunarmiðstöð Íslands niður. Byggingavettvangurinn er samráðsvettvangur hagaðila í bygginga- og mannvirkjagerð.

    14. des. 2020Neytendamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Verkefni Efnagreininga flytjast til Hafrannsóknastofnunar

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar, og nýsköpunarráðherra hefur undirritað samkomulag við Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafastofnun hafs og vatna, um að flytja verkefni og tækjabúnað Efnagreininga Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands til stofnunarinnar. Starfsmönnum Efnagreininga voru boðin störf hjá Hafrannsóknastofnun og áætlað er að formlegri sameiningu verði lokið um áramót.

    11. des. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fiskeldi, Landbúnaður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Matvælasjóður, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Fyrsta úthlutun Matvælasjóðs: Beint streymi 16. desember

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Gréta María Grétarsdóttir, formaður Matvælasjóðs, kynna fyrstu úthlutun sjóðsins í beinu streymi þann 16. desember 2020 kl. 09:00.

    10. des. 2020Forsætisráðuneytið, Auðlindir, Líf og heilsa, Neytendamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fiskeldi, Landbúnaður, Loftslagsmál, Matvælasjóður, Nýsköpun, Ríkisstjórn, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Fyrsta matvælastefnan fyrir Ísland kynnt: Stefnan mörkuð til 2030

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynntu í dag Matvælastefnu fyrir Ísland til ársins 2030.

    02. des. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Myndband um hvers vegna erlendir sérfræðingar í hátækni- og hugverkaiðnaði velja Ísland sem atvinnusvæði

    Myndbandið sem nefnist Work in Iceland var frumsýnt í dag í beinu streymi þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, flutti ávarp.

    02. des. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Covid-19, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Miklar fjárfestingar í íslenskum nýsköpunar- og tæknifyrirtækjum á árinu 2020

    Á árinu 2020 jukust fjárfestingar í íslenskum nýsköpunar- og tæknifyrirtækjum talsvert og nema fjárfestingarnar alls 17 ma.kr. Þetta er hærri fjárhæð en fjárfest var fyrir allt árið 2019, þótt fjárfestingarnar séu færri.

    30. nóv. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Hvaða tækifæri felast í að fá erlenda sérfræðinga til Íslands?

    Samtök iðnaðarins og Íslandsstofa í samvinnu við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið standa fyrir opnum rafrænum fundi miðvikudaginn 2. desember kl. 12.00 um tækifærin sem felast í að fá fleiri erlenda sérfræðinga til landsins í hátæknistörf. Fundinum er streymt á Facebook.

    26. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Líf og heilsa, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Landbúnaður, Lýðheilsa og forvarnir, Heilbrigðisráðuneytið

    Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóður auglýsir eftir umsóknum

    Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóði.

    25. nóv. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Streymisfundur í dag: Nýsköpunarvistkerfi atvinnulífsins – Klasastefna í mótun

    Í dag, miðvikudaginn 25. nóvember kl. 9:00 verður haldinn opinn fjarfundur þar sem farið verður yfir stöðu vinnunnar og kallað eftir umræðu og athugasemdum.

    21. nóv. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Fræðsluátak um gervigreind

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær að ráðist verði í fræðsluátak fyrir almenning um gervigreind. Er það í samræmi við aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir Ísland í fjórðu iðnbyltingunni.

    20. nóv. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Kría í Samráðsgátt stjórnvalda

    Reglugerð um Kríu – sprota- og nýsköpunarsjóð er nú í Samráðsgátt stjórnvalda, en hlutverk Kríu er að fjárfesta í sérhæfðum fjárfestingarsjóðum, svokölluðum vísisjóðum (e. venture capital funds) sem sjálfir fjárfesta í nýskapandi sprotafyrirtækjum. Tilgangur með stofnun Kríu er að efla fjárfestingarumhverfi sprota- og nýsköpunarfyrirtækja á Íslandi og er liður í stefnumótun stjórnvalda í málefnum nýsköpunar og í samræmi við Nýsköpunarstefnu.

    20. nóv. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Nýsköpunarvistkerfi atvinnulífsins – Klasastefna í mótun

    Miðvikudaginn 25. nóvember kl. 9:00 verður haldinn opinn fjarfundur þar sem að farið verður yfir stöðu vinnunnar og kallað eftir umræðu og athugasemdum.

    18. nóv. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Controlant hlýtur Nýsköpunarverðlaun Íslands 2020

    Íslenska fyrirtækið Controlant hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun Íslands árið 2020 sem veitt voru við hátíðlega athöfn í Hörpu. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra afhenti verðlaunin sem veitt hafa verið framsæknum nýsköpunarfyrirtækjum frá 1994.

    18. nóv. 2020Efnahagsmál og opinber fjármál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Norrænt samstarf, Nýsköpun, Opinber innkaup, Rafræn viðskipti, Ríkisreikningar, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Nordic Smart Government: Verðmætasköpun með stafrænum lausnum

    Fjárfesting í stafrænni þróun og nýsköpun er brýn á tímum fjórðu iðnbyltingarinnar, faraldurs og samdráttar. Hvar liggja tækifærin?

    17. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Ársfundur Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins

    Ársfundur Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins (NEAFC), sá 39. í röðinni, var haldinn í gegnum fjarfundabúnað dagana 10.-13. nóvember. Ráðið fer með stjórn fiskveiða utan lögsagna ríkja á Norðaustur-Atlantshafi. Bretar gerðust nýlega aðilar að ráðinu eftir útgöngu sína úr Evrópusambandinu, en auk þeirra eru aðilar NEAFC Danmörk (varðandi Færeyjar og Grænland), Evrópusambandið, Ísland, Noregur og Rússland. Stefán Ásmundsson, skrifstofustjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu (ANR) fór fyrir íslensku sendinefndinni á fundinum. Í sendinefndinni voru, auk fulltrúa ANR, fulltrúar utanríkisráðuneytisins, Fiskistofu, Hafrannsóknastofnunar, og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.

    17. nóv. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Landbúnaður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ráðherra undirritaði nýjan þjónustusamning við Matís

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Matís hafa undirritað tvo nýja samninga, þjónustusamning til að tryggja öryggisþjónustu á sviði matvælarannsókna í þágu landsmanna og samning um eflingu starfsemi Matís á landsbyggðinni.

    15. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Umhverfi og náttúruvernd, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Náttúruvernd, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Unnið að hvítbók um vistkerfisbreytingar í hafinu við Ísland

    Hafrannsóknastofnun vinnur nú að hvítbók um umhverfis og vistkerfisbreytingar í hafinu við Ísland og mögulegar sviðsmyndir eða afleiðingar áhrifa loftslagsbreytinga. Vinnan er unnin að frumkvæði Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, en ráðherra gerði grein fyrir vinnunni í ávarpi á ársfundi Hafrannsóknastofnunar á föstudag. Áformað er að skýrslan liggi fyrir í apríl á næsta ári.

    13. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Atvinnuvegir

    Árétting vegna umfjöllunar um rannsóknir á rakaskemmdum

    Í tilefni af umfjöllun um rannsóknir á rakaskemmdum í mannvirkjum áréttar atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið að áhersla er lögð á að efla rannsóknir í byggingariðnaði og tryggja samfellu í samfélagslega mikilvægum rannsóknum á borð við þær sem snúa að rakaskemmdum og myglu í mannvirkjum.

    11. nóv. 2020Auðlindir, Neytendamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Ferðaþjónusta, Fiskeldi, Landbúnaður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Orka, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Styrkveitingar haustið 2020

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á málefnasviðum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

    11. nóv. 2020Auðlindir, Alþjóðamál, Sjávarútvegur, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Samkomulag við Breta um framtíðarsamstarf í sjávarútvegsmálum undirritað

    Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherrar Íslands og Bretlands, Kristján Þór Júlíusson og Victoria Prentis, undirrituðu í dag samkomulag um framtíðarsamstarf ríkjanna í sjávarútvegsmálum.

    09. nóv. 2020Rit og skýrslur, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Forsætisráðuneytið

    Kynning/samantekt á vísinda- og tæknistefnu 2020-2022

    september 2020 / Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið Forsætisráðuneytið Kynning/samantekt á vísinda- og tæknistefnu 2020-2022 Kynning/samantekt á vísinda- og tæknistefnu 2020-2022

    27. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Atvinnuvegir, Efnahagsmál og opinber fjármál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Nýsköpun, Dómsmálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Erlendir sérfræðingar geti unnið í fjarvinnu á Íslandi

    Ferðamála-, iðnaðar, og nýsköpunarráðherra, dómsmálaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra hafa lagt fram minnisblað fyrir ríkisstjórn um aðgerðir til þess að gera erlendum ríkisborgurum sem eru utan EES kleift að dvelja á Íslandi í allt að sex mánuði og stunda vinnu sína hjá erlendum fyrirtækjum í fjarvinnu. Með breytingunni verður þeim ríkisborgurum, sem eru undanþegnir áritunarskyldu, heimilt að sækja um langtímavegabréfsáritun á Íslandi fyrir starfsmenn í fjarvinnu og fjölskyldur þeirra án þess að þurfa að flytja lögheimili til landsins eða fá kennitölur.

    21. okt. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menntamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Mikilvægi vísindalegs frelsis aldrei meira

    Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra ávarpaði ráðstefnu evrópskra ráðherra vísindamála í gær.

    20. okt. 2020Líf og heilsa, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Heilbrigðismál, Landbúnaður, Nýsköpun, Heilbrigðisráðuneytið, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Þróa próf sem styttir greiningu á sýklalyfjaónæmum bakteríum niður í klukkustund

    Sýklalyfjaónæmis og súnusjóður úthlutar í fyrsta sinn. Tvö verkefni tengd grunnrannsóknum í sýklalyfjaónæmi fá hæstu styrkina úr Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóði sem nú úthlutar í fyrsta sinn. Tilgangur sjóðsins er að fjármagna verkefni undir formerkjum „Einnar heilsu“ (e. One Health) í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi. Verkefnin snúa annars vegar að framlínuforvörnum í heilsu manna og dýra með DNA hraðgreiningar á sýklalyfjaónæmum bakteríum og hins vegar að upprunateikningu á sýklalyfjaónæmum E.coli stofnum með raðgreiningum á erfðamengi þeirra. Sjóðnum bárust 14 umsóknir og alls hljóta níu verkefni og rannsóknir styrki fyrir alls 32.1 milljónir króna í þessari fyrstu úthlutun sjóðsins.

    13. okt. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menntamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    3 milljarða kr. aukning til háskóla- og rannsóknastarfsemi

    Framlög til háskóla og rannsóknastarfsemi aukast um 7% milli áranna 2020-21 samkvæmt nýkynntu fjárlagafrumvarpi ársins 2021.

    • First
    • Prev
    • 8
    • 9
    • 10
    • 11
    • 12
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband