16. ágú. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið
Forsætisráðherra opnar ráðstefnu gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi í Hörpu
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í dag opnunarávarp á Reykjavík Dialogue í Hörpu, viðburði sem helgaður er baráttunni gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi. Annars vegar er um að ræða alþjóðlega ráðstefnu 16.-17. ágúst og hins vegar heimsfund aðgerðasinna og kvennasamtaka 17.-18. ágúst.