Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Öryggis- og varnarmál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 451–500 af 617
    Raða eftir:
    11. ágú. 2022Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Ísland hefur frumkvæði að sprengjueyðingarverkefni í Úkraínu

    Ísland stendur ásamt hinum norrænu ríkjunum fyrir verkefni sem er fyrirhugað á sviði þjálfunar í sprengjuleit og sprengjueyðingu í Úkraínu. Líklegt er að fleiri lönd muni taka þátt í verkefninu þegar fram í sækir. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra kynnti verkefnatillögu þess efnis á ráðstefnu um stuðning við öryggi og varnir Úkraínu í Kaupmannahöfn í dag.

    06. júl. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Öryggis- og varnarmál, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ísland staðfestir samninga um aðild Finnlands og Svíþjóðar að Atlantshafsbandalaginu

    Bergdís Ellertsdóttir, sendiherra Íslands gagnvart Bandaríkjunum, afhenti í dag bandaríska utanríkisráðuneytinu aðildarskjöl Íslands vegna viðbótarsamninga um aðild Finnlands og Svíþjóðar að Atlantshafsbandalaginu. Alþingi hafði áður með þingsályktun, hinn 7. júní síðastliðinn, heimilað ríkisstjórninni að staðfesta aðildarsamningana þegar þeir lægju fyrir.

    01. júl. 2022Utanríkisráðuneytið, Fjarskipti, Netöryggi, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Samið um hagnýtingu ljósleiðaraþráða

    Utanríkisráðherra hefur að tillögu nefndar um ráðstöfun ljósleiðaraþráða samið við Ljósleiðarann ehf. um hagnýtingu tveggja þráða í ljósleiðarastreng Atlantshafsbandalagsins. Ákveðið var að ganga til samninga við fyrirtækið að undangengnu auglýstu ferli þar sem óskað var eftir tillögum um samningsbundin afnot af einum eða tveimur þráðum.

    30. jún. 2022Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Mikilvægum leiðtogafundi lokið

    Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins lauk í Madrid í dag. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók þátt í fundinum ásamt Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra.

    28. jún. 2022Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Forsætisráðherra og utanríkisráðherra á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Madríd

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tekur þátt í leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem hefst í Madríd á morgun og stendur fram á fimmtudag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra mun einnig sitja fundinn.

    16. jún. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Varnarmálaráðherrarnir ræddu Úkraínu og styrkingu varnargetu NATO

    Varnarbarátta Úkraínu gegn grimmilegum stríðsrekstri Rússlands í 113 daga og áhrif þess á öryggisumhverfi Evró-Atlantshafssvæðisins, stuðningur bandalagsríkja við Úkraínu og efling fælingar og varnarstefnu Atlantshafsbandalagsins voru meginefni á fundi varnarmálaráðherra sem lauk í Brussel í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundinum fyrir hönd Íslands.

    15. jún. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Sameiginleg yfirlýsing varnarmálaráðherra þátttökuríkja í JEF

    Staða og horfur í öryggis- og varnarmálum í Evrópu vegna innrásar Rússlands í Úkraínu voru efst á baugi á tveggja daga fundi varnarmálaráðherra þátttökuríkja í Sameiginlegu viðbragðssveitinni (Joint Expeditionary Force, JEF) sem lauk í Ósló í dag.

    10. jún. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Öryggis- og varnarmál og vináttutengsl Íslands og Lettlands í forgrunni Íslandsheimsóknar

    Breytt staða öryggismála var meginefni fundar dr. Artis Pabriks, varaforsætisráðherra og varnarmálaráðherra Lettlands, með Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra í gær. Opinberri heimsókn varnarmálaráðherrans hingað til lands lauk í dag.

    10. jún. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Mannréttindi, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Þorri þjóðarinnar telur hagsæld hennar byggjast á alþjóðasamvinnu

    Rúm 77 prósent landsmanna telja hagsæld Íslands byggjast að miklu leyti á alþjóðlegri samvinnu og 80,5 prósent að hagsæld Íslands byggist að miklu leyti á alþjóðlegum viðskiptum. Þá telja 78,4 prósent að Ísland treysti að miklu leyti á alþjóðalög og alþjóðastofnanir til að tryggja að landamæri og lögsaga séu virt. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri könnun Maskínu um utanríkismál og alþjóðasamstarf.

    08. jún. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Varnarmálaráðherrar Norðurhópsins funduðu í Reykjavík

    Staða og horfur í öryggismálum Norður-Evrópu voru í forgrunni umræðna á ráðherrafundi Norðurhópsins sem lauk í Reykjavík í dag.

    08. jún. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Fastafloti Atlantshafsbandalagsins til Íslands

    Dynamic Mongoose 2022, kafbátaleitaræfing Atlantshafsbandalagsins fer fram dagana 13.-23. júní nk. Æfingin fer að mestu leyti fram á hafssvæðinu við Noreg en að hluta til innan þess loftrýmissvæðis sem Ísland annast. Von er á sex skipum úr fastaflota Atlantshafsbandalagsins hingað til lands af þessu tilefni.

    07. jún. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra fundaði með Ben Wallace

    Samstarf Íslands og Bretlands í öryggis- og varnarmálum og sameiginlegir öryggishagsmunir ríkjanna voru meginefni tvíhliða fundar Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Ben Wallace, varnarmálaráðherra Bretlands, sem fram fór í kvöld. Ráðherrarnir tóku fyrr í dag þátt í opinni málstofu um öryggis- og varnarmál.

    24. maí 2022Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Sameiginleg yfirlýsing varnarmálaráðherra Norðurlandanna um eflingu norræna varnarsamstarfsins

    Varnarmálaráðherrar Norðurlandanna hafa gefið frá sér sameiginlega yfirlýsingu um mikilvægi norræns samstarfs í öryggis- og varnarmálum. Í yfirlýsingunni fagna Danmörk, Ísland og Noregur ákvörðunum Finnlands og Svíþjóðar um að sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu og leggja áherslu á að fullgilding aðildar gangi hratt fyrir sig.

    19. maí 2022Innviðaráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Leit og björgun, Öryggis- og varnarmál, Almannaöryggi, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Samstarf Neyðarlínunnar og farsímafyrirtækjanna stuðlar að auknu öryggi

    Kynning á samstarfi Neyðarlínunnar og farsímafyrirtækjanna Nova, Vodafone og Símans fór fram í dag. Um er að ræða mikilvægt og tímabært verkefni þar sem viðeigandi aðilar hafa tekið höndum saman um tryggja gott farsímasamband á fáförnum og afskekktum stöðum á Íslands. Þetta skapar aukið öryggi þar sem víðar verður hægt að ná sambandi við neyðarnúmerið 112 sem og önnur símanúmer.

    16. maí 2022Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Sameiginleg yfirlýsing forsætisráðherra Íslands, Danmerkur og Noregs

    Forsætisráðherrar Íslands, Danmerkur og Noregs hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu þar sem þeir ítreka stuðning við ákvörðun Finnlands og Svíþjóðar að sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu, sem tilkynnt var um í gær og í dag.

    16. maí 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins funduðu í Berlín

    Líklegar aðildarumsóknir Finnlands og Svíþjóðar, staðan í Úkraínu og undirbúningur fyrir leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Madríd voru umfjöllunarefni á óformlegum fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins sem lauk í Berlín í gær. Afleiðingar innrásarinnar, meðal annars á matvælaöryggi í heiminum, voru jafnframt helsta umræðuefnið á tvíhliða fundum sem utanríksráðherra átti í tengslum við fund Atlantshafsbandalagsins.

    13. maí 2022Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Staða öryggismála og varnarsamstarf í deiglu varnarmálaráðherra í Kirkenes

    Varnarmálaráðherrar Norðurlandanna funduðu í Noregi þann 11. maí á vettvangi norræna varnarsamstarfsins (NORDEFCO). Staða öryggismála í Norður-Evrópu og samvinna ríkjanna á vettvangi norræna samstarfsins var í forgrunni á fundinum, sem fram fór í Kirkenes í Norður-Noregi.

    02. maí 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Þrjátíu ár frá upphafi stjórnmálasambands Íslands og Georgíu

    Innrás Rússlands í Úkraínu og áhrif átakanna á Georgíu voru á meðal umræðuefna á fundi sendiherra Georgíu gagnvart Íslandi á fundi utanríkisráðherra Íslands, utanríkismálanefnd georgíska þingsins og sendiherra Georgíu gagnvart Íslandi. Í ár eru þrír áratugir síðan Ísland og Georgía tóku upp stjórnmálasamband.

    28. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Netöryggi

    Ráðstefna um netöryggi á átakatímum haldin í Grósku

    Netöryggi og netvarnir lykilinnviða í breyttu öryggisumhverfi voru í brennidepli á ráðstefnu um netógnir á átakatímum sem utanríkisráðuneytið stóð fyrir í Grósku í gær, í samvinnu við Evrópska öndvegissetrið um fjölþáttaógnir. Sjónum var beint að þeim hættum og ógnum sem steðjað geta að samfélagslega mikilvægum innviðum, stofnunum og þjónustu, sem í æ ríkari mæli reiða sig á hugbúnað, stafrænar þjónustur og aðgengi að netinu til að geta sinnt hlutverki sínu.

    28. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Sendiráð Íslands í Washington DC, Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Árlegt samráð Íslands og Bandaríkjanna um öryggis- og varnarmál

    Árlegt samráð Íslands og Bandaríkjanna um öryggis- og varnarmál fór fram í Reykjavík þriðjudaginn 26. apríl.

    21. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Öryggis- og varnarmál í brennidepli í Washington

    Samstarf Íslands og Bandaríkjanna og áhrif innrásar Rússlands í Úkraínu á öryggis- og varnarmál í Evrópu voru til umræðu á fundum Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra með háttsettum embættismönnum í bandaríska stjórnkerfinu í gær og í dag.

    12. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Fulltrúar bandaríska sjóhersins og Atlantshafsbandalagsins funduðu með utanríkisráðherra

    Utanríkisráðherra fundaði í dag með Eugene Black aðmírál 6. flota bandaríska sjóhersins og Daniel W. Dwyer, yfirmanni herstjórnarmiðstöðvar Atlantshafsbandalagsins í Norfolk. Black er stjórnandi varnaræfingarinnar Norður-Víkings sem nú stendur yfir en Dwyer er þátttakandi í henni sem fulltrúi Atlantshafsbandalagsins.

    11. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Varnaræfingin Norður-Víkingur 2022 í Hvalfirði

    Varnaræfingin Norður-Víkingur 2022 náði hápunkti í dag með æfingu landgönguliða í Hvalfirði. Fjölmenni fylgdist með æfingunni, þar á meðal fulltrúar ríkisstjórnarinnar og yfirmenn í herafla Bandaríkjanna.

    07. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál, Fastanefnd Íslands hjá NATO

    Utanríkisráðherrar NATO funduðu í Brussel

    Stríðið í Úkraínu var í forgrunni tveggja daga fundar utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins sem lauk í dag. Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu, ávarpaði fundinn en auk hans tóku þátt utanríkisráðherrar frá öðrum ríkjum sem eiga í samstarfi við Atlantshafsbandalagið.

    30. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Nýsköpun og öryggismál efst á baugi í opinberri heimsókn til Finnlands

    Vinátta og samskipti Íslands og Finnlands, samvinna á sviði nýsköpunar og öryggismála og stríðið í Úkraínu voru í brennidepli í opinberri heimsókn Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra til Finnlands.

    25. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Norrænir ráðherrar á Cold Response-æfingunni

    Varnarmálaráðherrar Noregs, Finnlands, Svíþjóðar og utanríkisráðherra Íslands fylgdust í dag með varnaræfingunni Cold Response 2022 sem nú stendur yfir í Norður-Noregi. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segir einhug ríkja á meðal Norðurlanda um að efla samvinnu á sviði öryggis- og varnarmála enn frekar, í ljósi gerbreyttrar stöðu öryggismála. ​

    24. mar. 2022Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Forsætisráðherra tók þátt í leiðtogafundi NATO

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sat í dag leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Brussel, ásamt Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra. Tilefni fundarins var að ræða innrás Rússlands í Úkraínu og viðbrögð NATO í bráð og lengd. Eining var rætt um áframhaldandi stuðning við Úkraínu en Volodomír Zelenskí, forseti Úkraínu, ávarpaði fundinn í gegnum fjarfundabúnað.

    22. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Varnaræfingin Norður-Víkingur 2022 á Íslandi

    Varnaræfingin Norður-Víkingur 2022 fer fram á Íslandi og á hafinu í kringum landið dagana 2.-14. apríl næstkomandi. Megintilgangur æfingarinnar er að æfa varnir sjóleiða umhverfis Ísland og mikilvægra öryggisinnviða en einnig leit og björgun á sjó og landi. Um er að ræða reglubundna tvíhliða varnaræfingu Íslands og Bandaríkjanna með þátttöku fleiri vina- og bandalagsríkja.

    16. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Varnarmálaráðherrarnir ræddu viðbrögð vegna Úkraínu

    Stuðningur við Úkraínu og efling sameiginlegra varna Atlantshafsbandalagsins var meginefni fundar varnarmálaráðherra bandalagsins sem fram fór í Brussel í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sat fundinn fyrir hönd Íslands.

    04. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins funduðu um Úkraínu

    Viðbrögð Atlantshafsbandalagsins vegna innrásar Rússlands í Úkraínu voru í brennidepli á fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins í Brussel í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra, sem sat fundinn, segir samstöðu bandalagsþjóðanna eindregna.

    03. mar. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Þórir Guðmundsson til fjölþjóðaliðsins í Litáen

    Þórir Guðmundsson fréttamaður hefur verið ráðinn til starfa, sem upplýsingafulltrúi (e. Public Affairs Officer), á vegum utanríkisráðuneytisins, hjá fjölþjóðaliði Atlantshafsbandalagsins í Rukla í Litáen (NATO enhanced Forward Presence).

    28. feb. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Íslensk stjórnvöld lögðu til fraktflug til aðstoðar Úkraínu

    Fraktflutningavél á vegum íslenskra stjórnvalda flutti búnað til notkunar í Úkraínu í nótt. Flogið var frá Slóveníu í samvinnu við þarlend yfirvöld til áfangastaðar nálægt landamærum Úkraínu.

    25. feb. 2022Utanríkisráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Úkraína

    Utanríkisráðherra á fundi útflutnings- og markaðsráðs

    Ástandið í Úkraínu og mikilvægi friðar og alþjóðalaga voru helstu umfjöllunarefni í ávarpi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra á fundi útflutnings- og markaðsráðs í dag. Fundurinn fór fram í húsakynnum Íslandsstofu í Grósku.

    24. feb. 2022Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Sendiráð Íslands í Vín, Utanríkismál, Úkraína

    Árás Rússlands á Úkraínu fordæmd á vettvangi ÖSE og NORDEFCO

    Hernaður Rússlands gegn Úkraínu var umfjöllunarefni funda sem fram fóru í dag á vettvangi Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu og norræna varnarsamstarfsins NORDEFCO. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra lagði áherslu á að árásirnar væru brot á alþjóðalögum um leið og hún áréttaði samstöðu með úkraínsku þjóðinni.

    22. feb. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Varnarmálaráðherrar JEF ræddu stöðuna vegna Úkraínu

    Alvarleg staða í öryggismálum Evrópu var meginefni fundar varnarmálaráðherra Sameiginlegu viðbragðsveitarinnar (Joint Expeditionary Force, JEF) sem fram fór í Bretlandi í dag og í gær.

    17. feb. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Ástandið í og við Úkraínu efst á baugi varnarmálaráðherrafundar

    Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins komu saman til fundar í Brussel í gær og í dag. Öryggisáskoranir í tengslum við framferði Rússa gagnvart Úkraínu voru þar í brennidepli. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sótti fundinn sem lauk í dag.

    15. feb. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Fastanefnd Íslands hjá NATO, Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Óvissa í öryggismálum í Evrópu aðalumræðuefnið á fundi Þórdísar Kolbrúnar og Stoltenbergs

    Óvissa í öryggis- og varnarmálum Evrópu, framferði Rússlands gagnvart Úkraínu og spenna í samskiptum þess við Vesturlönd voru meðal umræðuefna á fundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, í Brussel í dag.

    15. feb. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Fastanefnd Íslands hjá NATO, Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Óvissa í öryggismálum í Evrópu aðalumræðuefnið á fundi Þórdísar Kolbrúnar og Stoltenbergs

    Óvissa í öryggis- og varnarmálum Evrópu, framferði Rússlands gagnvart Úkraínu og spenna í samskiptum þess við Vesturlönd voru meðal umræðuefna á fundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, í Brussel í dag.

    12. feb. 2022Dómsmálaráðuneytið, Utanríkismál, Löggæsla, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Almannaöryggi

    Mikilvægi norrænnar samvinnu um almannavarnir á ráðherrafundi Haga-samstarfsins í Reykjavík

    Breytt heimsmynd og nýjar áskoranir í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu

    03. feb. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Þórdís Kolbrún ræddi við utanríkisráðherra Eistlands

    Öryggismál í Evrópu voru meginefni símafundar Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur og Evu-Maríu Liimets utanríkisráðherra Eistlands í dag, en góð samskipti ríkjanna og samstarf á sviði mannréttinda og norðurslóðamála voru einnig til umræðu.

    03. feb. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál, Norrænt samstarf

    Norrænir varnarmálaráðherrar funduðu um Úkraínu

    Staða mála í og við Úkraínu var meginefni fjarfundar varnarmálaráðherra Norðurlandanna sem fram fór í dag á vettvangi norræna varnarsamstarfsins (NORDEFCO). Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundinum.

    21. jan. 2022Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Yfirlýsing varnarmálaráðherra Norðurlandanna um stöðuna í og við Úkraínu

    Versnandi staða öryggismála í og við Úkraínu var tilefni fjarfundar varnarmálaráðherra Norðurlandanna sem fram fór í dag á vettvangi norræna varnarsamstarfsins (NORDEFCO). Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, tók þátt í fundinum.

    13. jan. 2022Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Þórdís Kolbrún ræddi við Antony Blinken

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, átti í dag símafund með Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.

    12. jan. 2022Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrafundi ÖSE lokið

    Afleiðingar innrásarinnar í Úkraínu voru meginefni utanríkisráðherrafundar Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) sem haldinn var í pólsku borginni Łódź. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra áréttaði skuldbindingar aðildarríkjanna við alþjóðalög og alþjóðakerfið og brýndi þau til beita sér fyrir friði, frelsi og mannréttindum í ávarpi sínu á fundinum.

    07. jan. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins funduðu um hernaðaruppbyggingu Rússa

    Staða öryggismála í Evrópu og hernaðaruppbygging Rússlands í og við Úkraínu var tilefni sérstaks aukafundar utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins sem fór fram í dag. Á fundinum, sem haldinn var um öruggan fjarfundabúnað, var rædd sú alvarlega staða sem upp er komin vegna aðgerða Rússlands á þessu svæði og áhyggjur af því að hætta sé á hernaðarátökum. Á fundinum lögðu ráðherrar áherslu á að frekari brot myndu hafa í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir Rússland.

    21. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Yfirlýsing norrænna varnarmálaráðherra um stöðuna í Úkraínu

    Varnarmálaráðherrar Norðurlandanna hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu um málefni Úkraínu.. Þari lýsa þeir yfir áhyggjum af stöðu og þróun mála í Úkraínu, árétta stuðning Norðurlandanna við fullveldi og landamærahelgi landsins, og rétt úkraínsku þjóðarinnar til að ákvarða eigin framtíð án utanaðkomandi afskipta.

    21. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál

    Ástand og horfur í alþjóðamálum efst á baugi NB8-fundar

    Belarús, réttarríkið, og málefni Sameinuðu þjóðanna og Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) voru í brennidepli á fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna sem fram fór í dag.

    17. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Úkraína í brennidepli á varnarmálaráðherrafundi NB8

    Málefni Úkraínu voru til umfjöllunar á fjarfundi varnarmálaráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna (NB8) í dag. Ríkin eru sammála um að sú staða sem þar er komin upp ​vegna umfangsmikillar hernaðaruppbyggingar Rússlands sé verulegt áhyggjuefni, ekki síst í samhengi við pólitískar yfirlýsingar rússneskra stjórnvalda að undanförnu.

    10. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Sendiráð Íslands í Helsinki, Utanríkismál

    Ísland aðili að evrópsku öndvegissetri um fjölþáttaógnir

    Ísland gerðist í dag aðili að Evrópska öndvegissetrinu um fjölþáttaógnir í Helsinki. Öndvegissetrið var sett á fót árið 2017 með það að markmiði að efla getu ríkja til að mæta áskorunum á sviði fjölþáttaógna.

    03. des. 2021Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Þórdís Kolbrún áréttaði sameiginlegar skuldbindingar ÖSE-ríkjanna

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók þátt í ráðherrafundi Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) 1.-2. desember í Stokkhólmi. Öryggisáskoranir og staða mannréttinda á svæðinu voru meginviðfangsefni fundarins.

    • First
    • Prev
    • 9
    • 10
    • 11
    • 12
    • 13
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband