Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Covid-19
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 451–500 af 908
    Raða eftir:
    27. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Um fjórðungur allra skatttekna og tryggingagjalda fer til almannatrygginga

    Sífellt aukinn hluti verðmætasköpunar hagkerfisins rennur til tilfærslukerfa og fjárframlaga ríkissjóðs sem hafa verið í stöðugum vexti síðustu ár. Í minnisblaði sem fjármála- og efnahagsráðherra kynnti í dag í ríkisstjórn um framlög til almannatrygginga (að frátöldum atvinnuleysisbótum) kemur fram að þau hafa nær tvöfaldast frá árinu 2013 miðað við verðlag hvers árs og nema nú 642 þúsund krónum á hvern landsmann aldrinum 18-67 ára.

    27. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Atvinnuvegir, Efnahagsmál og opinber fjármál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Nýsköpun, Dómsmálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Erlendir sérfræðingar geti unnið í fjarvinnu á Íslandi

    Ferðamála-, iðnaðar, og nýsköpunarráðherra, dómsmálaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra hafa lagt fram minnisblað fyrir ríkisstjórn um aðgerðir til þess að gera erlendum ríkisborgurum sem eru utan EES kleift að dvelja á Íslandi í allt að sex mánuði og stunda vinnu sína hjá erlendum fyrirtækjum í fjarvinnu. Með breytingunni verður þeim ríkisborgurum, sem eru undanþegnir áritunarskyldu, heimilt að sækja um langtímavegabréfsáritun á Íslandi fyrir starfsmenn í fjarvinnu og fjölskyldur þeirra án þess að þurfa að flytja lögheimili til landsins eða fá kennitölur.

    26. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Valkvæðum og ífarandi aðgerðum frestað tímabundið

    Heilbrigðisráðherra hefur staðfest fyrirmæli landlæknis um frestun valkvæðra skurðaðgerða og annarra ífarandi aðgerða og hefur auglýsing þess efnis verið send til birtingar í Stjórnartíðindum. Frestunin tekur gildi frá og með morgundeginum á höfuðborgarsvæðinu en skipulagðar aðgerðir utan höfuðborgarsvæðisins eru heimilar dagana 27. og 28. október. Frestunin gildir til og með 15. nóvember næstkomandi. Minni aðgerðir sem hægt er að framkvæmda í staðdeyfingu, þ.e. á vakandi sjúklingi, verða áfram heimilar og einnig speglanir í greiningaskyni með þeim takmörkunum þó að ekki séu framkvæmdar ífarandi aðgerðir. Fyrirmæli landlæknis eru eftirfarandi:

    23. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Fitch, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fitch Ratings staðfestir óbreytta A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs með neikvæðum horfum

    Fitch Ratings birti í dag mat á lánshæfi ríkissjóðs. Langtímaeinkunnir í innlendri og erlendri mynt eru óbreyttar og standa í A. Horfur eru neikvæðar.

    23. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Nýting efnahagsúrræða stjórnvalda vegna heimsfaraldurs

    Ríkisstjórnin hefur frá því heimsfaraldur kórónuveiru hófst kynnt úrræði sem ætlað er styðja við efnahagslega vörn, vernd og viðspyrnu heimila og fyrirtækja. Úrræðin geta falið í sér bein útgjöld fyrir ríkissjóð, líkt og í tilfelli hlutabóta eða greiðslu launa á uppsagnarfresti, tilfærslu tekna milli ára eða ábyrgðir sem geta raungerst síðar sem kostnaður fyrir ríkissjóð. Hér á eftir er farið yfir stöðu nýtingar úrræðanna. tingar úrræðanna.

    23. okt. 2020Covid-19, Nýsköpun, Orka, Efnahagsmál og opinber fjármál, Neytendamál, Evrópusamvinna, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ráðherra á fundi viðskiptaráðherra innan EES: „Samkeppni er hvati nýsköpunar“

    „Nýsköpun þarf að vera kjarni nýrrar efnahagsstefnu því hún er lykillinn að sjálfbærum hagvexti til lengri tíma. Samkeppni og nýsköpun eru samofin. Án virkrar samkeppni er takmarkaður hvati til nýsköpunar,“ sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar, og nýsköpunarráðherra

    22. okt. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19, Menntamál

    Alþjóðleg samstaða um aðgerðir í þágu menntunar

    Alþjóðafundur um menntamál fór fram á vegum Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. UNESCO) með fjarfundasniði í dag.

    20. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Samkomutakmarkanir og skólastarf frá 20. október

    Í dag tóku gildi reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar og reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar. Gildistími reglugerðanna er til og með 10. nóvember að undanskildum bráðabirgðaákvæðum um takmarkanir á höfuðborgarsvæðinu sem gilda til 3. nóvember. Breytingar sem reglugerðirnar fela í sér frá fyrri takmörkunum eru raktar hér að neðan.

    20. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Umhverfi og náttúruvernd, Covid-19, Loftslagsmál, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ræddi hugmyndir um loftslagsgjöld á fundi OECD

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, tók í dag þátt í fundi Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um sjálfbæra þróun þar sem m.a. var rætt um hugmyndir um loftslagsgjöld á landamærum vegna innflutnings frá svæðum sem leggja ekki á kolefnisgjöld eða losunarkvóta og nýtingu gjaldanna í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru. Hugmyndir um slík gjöld eru til skoðunar hjá framkvæmdastjórn Evópusambandsins.

    19. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Um opnun líkamsræktarstöðva

    Ákvæði nýrrar reglugerðar heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum sem heimilar opnun líkamsræktarstöðva að uppfylltum ströngum skilyrðum, byggist á því að jafnræðis og meðalhófs sé gætt. Horft er til þess að sömu skilyrði gildi um íþróttaiðkun og líkamsrækt, þ.e. að iðka megi hvoru tveggja ef regla um 20 manna hámarksfjölda og 2 metra nálægðarmörk er virt.

    19. okt. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Félags- og fjölskyldumál

    Samningur við SÁÁ gerir sálfræðiþjónustu samtakanna fyrir börn mögulega

    Gerir samtökunum kleift að efla og bæta þjónustu við börn.

    18. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Reglugerðir um sóttvarnaráðstafanir sem taka gildi 20. október

    Reglugerðir Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um sóttvarnaráðstafanir sem taka gildi þriðjudaginn 20. október hafa verið staðfestar og verða birtar í Stjórnartíðindum á morgun. Annars vegar er ný reglugerð um takmarkanir á samkomum vegna farsóttar og hins vegar breyting á reglugerð um takmarkanir á skólahaldi vegna farsóttar. Reglugerðirnar eru meðfylgjandi.

    16. okt. 2020Covid-19, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    10 fjölþættar aðgerðir fyrir menningarlífið

    Forsætisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra kynntu í dag, ásamt fulltrúum Bandalags háskólamanna og Bandalags íslenskra listamanna, 10 stuðningsaðgerðir stjórnvalda fyrir listir og menningu á tímum COVID-19.

    16. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Tekjufallsstyrkir samþykktir í ríkisstjórn

    Ríkisstjórnin samþykkti í dag að leggja fyrir Alþingi frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um tekjufallsstyrki vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Frumvarpinu er ætlað að aðstoða einyrkja og litla rekstraraðila sem hafa orðið fyrir verulegum tekjumissi og er liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að draga úr tjóni vegna faraldursins og leggja grunn fyrir öfluga viðspyrnu í kjölfar hans.

    16. okt. 2020Covid-19, Hönnun, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Íslenskt gler, snjallhringur og stafrænt strokhljóðfæri meðal styrkþega úr Hönnunarsjóði

    Hönnunarsjóður úthlutaði í gær , 15. október, 18 styrkjum til ólíkra verkefna á vegum hönnunar og arkitektúrs. Að þessu sinni voru 17 milljónum úthlutað en alls bárust 122 umsóknir um 230 milljónir.

    15. okt. 2020Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Covid-19, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Fyrsti fundur samráðsteymis ríkis og sveitarfélaga á Suðurnesjum

    Samráðsteymi ríkis og sveitarfélaga á Suðurnesjum fundaði í fyrsta skipti þriðjudaginn 13. október.

    15. okt. 2020Covid-19, Dómsmálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    SEGÐU FRÁ - Sameiginleg rafræn gátt vegna ofbeldis

    Vef 112 breytt til að verða allsherjar upplýsingatorg um allt sem viðkemur ofbeldi, ásamt því að opnað verður á beint samtal við neyðarverði í netspjalli 112.

    14. okt. 2020Húsnæðis- og mannvirkjamál, Covid-19, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Frekari frestun aðalfunda húsfélaga samkvæmt fjöleignarhúsalögum, nr. 26/1994, vegna Covid-19

    Félagsmálaráðuneytið leggur til að aðalfundum húsfélaga verði frestað frekar um allt að sex mánuði vegna faraldursins.

    14. okt. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið

    Aðgerðarteymi gegn ofbeldi skilar annarri áfangaskýrslunni

    Inniheldur fjórar megintillögur sem eru ítarlega útfærðar og kostnaðarmetnar.

    13. okt. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Fiskeldi, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Ráðherra fellur frá gjaldskrárhækkun MAST

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið að falla frá öllum gjaldskrárhækkunum Matvælastofnunnar á árinu 2020 vegna áhrifa COVID-19 heimsfaraldursins á íslenska matvælaframleiðendur.

    12. okt. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19, Menntamál

    Skólastarf í forgangi

    Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra fundaði í dag með Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni og fulltrúum Kennarasambands Íslands og skólastjórnenda um stöðu skólastarfs í ljósi þróunar COVID-19 faraldursins hér á landi.

    12. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fundaði með alþjóðlegum vettvangi fjármálaráðherra um loftslagsmál

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, fundaði í dag með alþjóðlegum vettvangi fjármálaráðherra um loftslagsmál, sem ætlað er að hvetja til aðgerða í loftslagsmálum í krafti regluverks og ákvarðana á sviði ríkisfjármála og fjármálamarkaðar. Þetta er fjórði fundur vettvangsins, en hann var haldinn í tengslum við haustfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem fram fer þessa dagana.

    09. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Framhald á lokunarstyrkjum

    Ríkisstjórnin samþykkti í dag að leggja fyrir Alþingi breytingar á lögum um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru með það fyrir augum að tryggja framhald á lokunarstyrkjum til rekstraraðila sem gert er að sæta lokun á starfsemi eða stöðva hana frá 18. september 2020.

    09. okt. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19

    Félagsmálaráðuneytið auglýsir styrki til félagasamtaka vegna verkefna á sviði félagsmála

    Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 mánudaginn 9. nóvember 2020.

    08. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Þriðji samningur Evrópusambandsins um bóluefni í höfn

    Evrópusambandið hefur gert samning við lyfjafyrirtækið Janssen Pharmaceutica NV, dótturfyrirtæki Johnson & Johnson, um kaup á bóluefni gegn COVID-19. Samningurinn felur í sér að strax og prófunum er lokið og niðurstöður sýna að bóluefnið er öruggt og með fullnægjandi virkni er aðildarríkjum sambandsins tryggður réttur til kaupa á bóluefni fyrir 200 milljónir manna. Eins og áður hefur komið fram munu Ísland og önnur aðildarríki Evrópska efnahagssvæðisins njóta sama aðgangs að bóluefnum sem Evrópusambandið semur um og önnur ríki sambandsins.

    08. okt. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Líf og heilsa, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið

    Styrkur til Barnahúss eflir starfsemi og styttir biðlista

    Styrkurinn er liður í aðgerðapakka stjórnvalda til þess að bregðast við afleiðingum Covid-19 faraldursins.

    08. okt. 2020Covid-19, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    1,1 milljarða kr. aukning til menningarmála

    Framlög til menningar-, íþrótta- og æskulýðsmála aukast um 7% milli áranna 2020-2021 samkvæmt nýkynntu fjárlagafrumvarpi ársins 2021

    07. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Um reglur og tilmæli

    Reglugerð heilbrigðisráðherra um takmarkörkun á samkomum og hertar aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu tók gildi í gær. Reglugerðin byggist á minnisblaði sóttvarnalæknis og er þar farið að tillögum hans í öllum meginatriðum. Í minnisblaði hans koma einnig fram ákveðin tilmæli varðandi íþróttastarf og fleiri atriði sem mikilvægt er að fólk taki mið af, þótt tilmælin séu ekki liður í reglugerð ráðherra. Einnig má benda á að ríkislögreglustjóri hyggst birta almenn tilmæli sem ætlað er að styðja við markmið hertra sóttvarnaaðgerða á höfuðborgarsvæðinu.

    06. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Hertar sóttvarnaaðgerðir á höfuðborgarsvæðinu

    Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur sóttvarnalæknis um hertar samkomutakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu og taka þær gildi á morgun, 7. október. Samkomutakmarkanir sem kynntar voru í gær gilda óbreyttar annars staðar á landinu. Gildistími þessara takmarkana er til og með 19. október.

    06. okt. 2020Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Covid-19, Sveitarstjórnir og byggðamál, Jöfnunarsjóður

    Fimm milljarða innspýting til sveitarfélaga

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra kynnti aðgerðir til að veita sveitarfélögum fjárhagslega viðspyrnu á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna.

    06. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Undanþágur frá samkomubanni fyrir þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki

    Heilbrigðisráðherra veitti síðastliðið vor undanþágur frá samkomubanni fyrir þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki, svo unnt væri að halda starfsemi þeirra órofinni. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að áður veittar undanþágur haldi gildi sínu, þannig að hertar sóttvarnaráðstafanir raski ekki umræddri starfsemi. Sömu skilyrði fyrir undanþágum gilda og áður, en þær voru veittar að undangengnu samráði við sóttvarnalækni, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Matvælastofnun.

    05. okt. 2020Atvinnuvegir, Menningarmál, Covid-19, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Saman í tónlistarsókn

    Íslandsstofa hefur fyrir hönd markaðsverkefnisins „Ísland – saman í sókn“ gert samkomulag við Iceland Airwaves um framkvæmd tónlistarhátíðarinnar Live from Reykjavík.

    05. okt. 2020Menningarmál, Covid-19, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Könnun á starfsaðstæðum og áhrifum COVID-19 á skólastarf

    Mennta- og menningarmálaráðuneyti mun í samstarfi við Kennarasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga gera könnun meðal skólafólks um viðbrögð við COVID-19 faraldrinum og áhrifum hans á skólastarf nú um stundir s.s. starfsaðstæður og öryggi starfsfólks og nemenda í skólum.

    05. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Aðgerðir til að létta á útskriftarvanda Landspítala

    Heilbrigðisráðuneytið hefur í samvinnu við Landspítala, aðrar heilbrigðisstofnanir og hjúkrunarheimili unnið að því að létta álagi af Landspítala með því að flytja þaðan sjúklinga sem hægt er að sinna annars staðar sem eru einkum aldraðir hjúkrunarsjúklingar. Frá því um nýliðin mánaðamót hafa rúmlega 20 sjúklingar verið færðir frá spítalanum til annarra stofnana og unnið er að fleiri lausnum í þessu skyni.

    04. okt. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19, Menntamál

    Sóttvarnir í framhalds- og háskólum: Tímabundnar hertar aðgerðir

    Tilkynnt hefur verið um hertar sóttvarnarráðstafanir í framhalds- og háskólum. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra fundaði með skólameisturum framhaldsskóla og rektorum háskólanna í dag.

    03. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Hertar samkomutakmarkanir taka gildi 5. október

    Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um hertari samfélagslegar aðgerðir til að sporna við útbreiðslu Covid-19. Ný reglugerð þess efnis tekur gildi mánudaginn 5. október og verður birt á morgun. Stærstu einstöku breytingarnar verða 20 manna fjöldatakmörkun með ákveðnum undantekningum en þar má nefna 50 manna hámark í útförum og 100 manna hámark í tilteknum verslunum. Krám, skemmtistöðum, spilasölum og líkamsræktarstöðvum verður lokað. Sundlaugar verða áfram opnar en með þrengri fjöldatakmörkunum, eða 50% af leyfilegum fjölda samkvæmt starfsleyfi. Ekki verða breytingar á starfsemi leik- og grunnskóla. Í framhalds- og háskólum munu gilda 25 manna fjöldatakmarkanir og er þar miðað við algenga bekkjarstærð.…

    02. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Að lifa með veirunni: umsagnarfrestur framlengdur til 7. október

    Frestur til að skila umsögnum um efni frá samráðsfundinum „Að lifa með veirunni“ sem haldinn var 20. ágúst síðastliðinn hefur verið framlengdur til 7. október. Á fundinum var m.a. fjallað um tilteknar spurningar sem snúa að áhrifum sóttvarnaaðgerða á daglegt líf og helstu áskoranir sem þeim tengjast. Markmiðið með samráðsfundinum og því efni sem tekið var saman á fundinum og birt til umsagnar, er að stilla saman strengi og móta áherslur og leiðarljós sem geti nýst í áframhaldandi vinnu við mótun aðgerða vegna COVID-19 á næstu misserum.

    02. okt. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Landbúnaður, Matvælasjóður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Matvælasjóður fær 250 milljón króna viðbótarframlag

    Matvælasjóður mun fá 250 milljón króna viðbótarframlag á næsta ári samkvæmt nýbirtu fjárlagafrumvarpi. Alls er því áformað að sjóðurinn muni hafa 628 milljónir til umráða á næsta ári og stefnt er á næstu úthlutun úr sjóðnum á vormánuðum 2021.

    01. okt. 2020Dómsmálaráðuneytið, Covid-19, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpar afmælisfund fjórðu ráðstefnu SÞ um málefni kvenna

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpar 25 ára afmælisfund fjórðu ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um málefni kvenna í dag. Á ráðstefnunni, sem haldin var í Peking í september 1995 var samþykkt pólitísk yfirlýsing og framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum (Pekingáætlunin).

    01. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál, Innviðaráðuneytið, Sveitarstjórnir og byggðamál, Jöfnunarsjóður

    Samkomulag um afkomumarkmið og efnahag sveitarfélaga fyrir 2021-2025

    Samkomulag ríkis og sveitarfélaga um afkomumarkmið og efnahag sveitarfélaga fyrir árin 2021-2025 hefur verið undirritað af fjármála- og efnahagsráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Í tengslum við samkomulagið var einnig undirrituð yfirlýsing sem felur í sér að framlög ríkissjóðs til að veita sveitarfélögum fjárhagslega viðspyrnu nema alls tæpum 5 milljörðum króna.

    01. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Mótvægisaðgerðir verja lífskjör og veita viðspyrnu

    Ríkisfjármálum verður áfram beitt af fullum þunga til að verja störf og skapa viðspyrnu, en gert er ráð fyrir að áhrif heimsfaraldurs kórónRíkisfjármálum verður áfram beitt af fullum þunga til að verja störf og skapa viðspyrnu, en gert er ráð fyrir að áhrif heimsfaraldurs kórónuveirunnar á ríkissjóð verði neikvæð um 192 milljarða króna á næsta ári. Þetta kemur fram í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2021 sem lagt er fram á Alþingi í dag, samhliða fjármálaáætlun fyrir árin 2021-2025. Skattar verða alls um 52 ma.kr. lægri á komandi ári en þeir hefðu orðið án ákvarðana ríkisstjórnarinnar á kjörtímabilinu.uveirunnar á ríkissjóð verði neikvæð um 192 milljarða króna á næsta ári.…

    30. sep. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Jöfnunarsjóður, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Jöfnunarsjóður bætir við 200 milljónum vegna þjónustu við fatlað fólk

    Jöfnunarsjóður sveitarfélaga mun úthluta 200 milljónum krónum til viðbótar í ár vegna þjónustu við fatlað fólk.

    30. sep. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Menntanet sett á fót á Suðurnesjum

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær að leggja til að komið yrði á fót menntaneti á Suðurnesjum í samstarfi við menntastofnanir á svæðinu til að efla náms- og starfsúrræði fyrir atvinnuleitendur.

    30. sep. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Heimurinn eftir COVID-19

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ræddi áskoranir heimsins í kjölfar kórónuveirufaraldursins, á rafrænu alþjóðlegu málþingi sem framtíðarnefnd Alþingis stóð fyrir í samstarfi við forsætisráðuneytið í morgun.

    29. sep. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Átta nýjar stöðugleikaaðgerðir

    Í kjölfar samtala við aðila vinnumarkaðarins á almennum vinnumarkaði síðustu daga kynnir ríkisstjórnin átta aðgerða pakka sem ætlað er að stuðla að félagslegum og efnahagslegum stöðugleika í tengslum við Lífskjarasamninginn.

    27. sep. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Alþjóðlegt, rafrænt málþing um heiminn eftir COVID-19

    Forsætisráðherra og framtíðarnefnd boða til málþings um breytingar, áskoranir og tækifæri á ýmsum sviðum samfélagsins eftir COVID-19. Þekktir, alþjóðlegir fyrirlesarar taka þátt í málþinginu sem fer fram með rafrænum hætti miðvikudaginn 30. september.

    25. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Unnið að gagnkvæmri viðurkenningu vottorða milli Norðurlandaþjóða

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að senda heilbrigðisráðherrum hinna Norðurlandaþjóðanna erindi með ósk um samstarf sem miði að því að taka upp gagnkvæma viðurkenningu vottorða vegna COVID-19. Markmiðið er að hægt verði að undanskilja einstaklinga frá kröfum á landamærum framvísi þeir viðurkenndu vottorði, t.d. um að þeir hafi sýkst af veirunni og séu ekki smitberar eða hafi myndað virkt mótefni gegn henni. Málið var kynnt á fundi ríkisstjórnar í dag.

    25. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Sóttvarnalögin endurskoðuð

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur falið starfshópi að semja drög að frumvarpi til breytinga á sóttvarnalögum og er hópurinn tekinn til starfa. Tekin verða til skoðunar og skýrð nánar ákvæði núgildandi laga um opinberar sóttvarnaráðstafanir og valdheimildir stjórnvalda þar að lútandi. Við endurskoðunina verður horft til reynslu síðustu mánaða af COVID-19. Dr. Páll Hreinsson hefur að beiðni forsætisráðherra unnið álitsgerð um valdheimildir sóttvarnalæknis og heilbrigðisráðherra til opinberra sóttvarna samkvæmt sóttvarnalögum og verður hún meðal annars lögð til grundvallar við vinnu starfshópsins.

    25. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Sætaskylda innleidd á öllum vínveitingastöðum

    Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis sem felur í sér að öllum vínveitingastöðum verði skylt að hafa sæti fyrir alla gesti sína og tryggja að gestir séu að jafnaði í sætum eins og almennt tíðkast á veitingahúsum og kaffihúsum. Reglugerð þessa efnis tekur gildi mánudaginn 28. september. Frá sama tíma er aflétt tímabundinni lokun kráa og skemmtistaða á höfuðborgarsvæðinu en með fyrrnefndu skilyrði um sætaskyldu. Í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis verða aðrar samkomutakmarknir framlengdar óbreyttar í þrjár vikur til og með 18. október næstkomandi.

    24. sep. 2020Rit og skýrslur, Félags- og fjölskyldumál, Vinnumál, Covid-19, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Stöðuskýrsla teymis um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19

    Teymi um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19 hefur skilað 5. stöðuskýrsla sinni. Í þessari fimmtu stöðuskýrslu verður einkum fjallað um stöðu og þjónustu við innflytjendur.

    • First
    • Prev
    • 8
    • 9
    • 10
    • 11
    • 12
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband