Um ráðuneytið

Verkefni dómsmálaráðuneytisins ná til fjölmargra sviða þjóðfélagsins. Þau varða meðal annars almannavarnir, ákæruvald, dómstóla, réttarfar, fullnustu dóma, landhelgisgæslu, löggæslu, persónurétt, sýslumenn og kosningar.

Ráðherra fer með yfirstjórn ráðuneytisins og ber ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess. Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra.

Dómsmálaráðherra er Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir.

Ráðuneytisstjóri er Páll Winkel.