Forsætis- og fjármálaráðherra Íslands í Eistlandi
ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
27. febrúar 2019
/
Sendiráð Íslands í Helsinki
Forsætis- og fjármálaráðherra Íslands, Katrín Jakobsdóttir og Bjarni Benediktsson, hittu forsætisráðherra Eistlands, Jüri Ratas, og ræddu m.a. um rafræna stjórnsýslu og margháttaðar rafrænar lausnir til að auka öryggi og einfalda daglegt líf fólks. Eistland er tvímælalaust í broddi fylkingar í rafrænni þróun.