Slow Food: Stockfish Journey sló í gegn á Terra Madre í Tórínó.
06. október 2026
/
Fastanefnd Íslands í Róm
Farandsýningin Stockfish Journey var frumsýnd með glæsibrag á alþjóðlegu matvæla- og menningarhátíðinni Terra Madre – Salone del Gusto í Tórínó á Ítalíu dagana 24.-27. september.
Áætlað er að 45.000 - 50.000 gestir hafi heimsótt skreiðarhjallinn og tekið þátt í þeirri einstöku upplifun að kynnast sögu, menningu og matarhefðum sem tengjast skreið og harðfiski. Sendiherrar Íslands og Noregs á Ítalíu, Guðmundur Árnason og Tord Tukun opnuðu sýninguna.
Stockfish Journey er samstarfsverkefni Íslands, Noregs og Svíþjóðar. Að sýningunni standa
Slow Food á Íslandi, Slow Food Bergen, Slow Food Mearra-Sámi í Noregi og Kålrotsakademien í Svíþjóð, ásamt fjölmörgum samstarfsaðilum á Íslandi, í Noregi, á Ítalíu og í Nígeríu. Stockfish Journey sýningin er hluti af alþjóðlegu samstarfi Íslands, Noregs, Ítalíu og Nígeríu um undirbúning UNESCO-umsóknar þar sem hefðir, þekking og menningararfur tengdur framleiðslu, verslun og neyslu skreiðar og harðfisks eru tilnefnd sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns.
Gestir sýningarinnar stoppuðu inni í hjallinum og gátu lesið söguna sem fylgdi hverjum fiski, tóku þátt í samtölum og smökkuðu afurðir sem endurspegla þá menningararfleifð sem hefur þróast í kringum þurrkaðan fisk í gegnum aldirnar víða um heim. Fyrir marga var þetta í fyrsta sinn sem þeir kynntust þeirri miklu sögu sem leynist á bak við eina mikilvægustu útflutningsafurð Norðurslóða.
Á fyrri öldum var skreið frá Íslandi og Norður-Noregi meðal verðmætustu útflutningsafurða landanna. Hún ferðaðist um verslunarleiðir Evrópu og þaðan áfram til Afríku og Ameríku, þar sem hún hafði áhrif á bæði efnahagslíf og matarmenningu heilla samfélaga. Enn í dag lifa þessar hefðir áfram, meðal annars á Ítalíu þar sem "stoccafisso" skipar enn mikilvægan sess í matargerð og í Nígeríu þar sem skreið er ómissandi hluti daglegrar matargerðar.
„Stockfish Journey var skapað til að sýna hvernig ein einföld afurð getur tengt saman ólíkar þjóðir og menningarheima. Viðbrögðin í Tórínó sýna að þessi saga á erindi langt út fyrir Norðurlöndin. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá sýninguna halda áfram ferðalagi sínu bæði um Ítalíu og Norðurlönd þar sem hver áfangastaður bætir nýjum kafla við söguna,“ segir Dóra Svavarsdóttir verkefnastjóri.
Mikill áhugi á sýningunni hefur leitt til þess að Stockfish Journey heldur nú áfram ferð sinni um Ítalíu. Fyrsta stopp verður í Feneyjum 3. – 4. október, þar sem sýningin verður sett upp á hinu sögufræga Rialto-fiskmarkaði í tengslum við 25 ára afmæli Dogale Confraternita del Baccalà Mantecato. Síðan fer sýningin m.a. til bæjarins Gubbio í Umbria-héraði og borgarinnar Catania á Sikiley.
Elín Arna Kristjánsdóttir Ringsted er sýningarhönnuðurinn.