ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
29 september 2006
/
Forsætisráðuneytið
Breyting á reglugerð um Stjórnarráð Íslands
Í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um ný verkefni íslenskra stjórnvalda við brottför varnarliðsins hefur verið gerð breyting á reglugerð um Stjórnarráð Íslands. Þar er áréttað að utanríkisráðherra fari með stjórnsýslu á svæðinu eins og verið hefur þar til auglýsing er birt um annað.
Reykjavík 29. september 2006