ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
02 apríl 2009
/
Innviðaráðuneytið
Hreinn Haraldsson skipaður vegamálastjóri
Embætti vegamálastjóra var auglýst laust til umsóknar í byrjun mars og rann umsóknarfrestur út 23. mars. Hreinn var eini umsækjandinn. Samgönguráðherra afhenti Hreini skipunarbréf í dag á skrifstofu ráðuneytisins.
Vegamálastjóri veitir Vegagerðinni forstöðu. Helstu verkefni Vegagerðarinnar skiptast í framkvæmdir í vegamálum, umsjón með rannsóknum og þróun á sviði vegamála auk stjórnsýslu og eftirlits.