ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
17 maí 2010
/
Atvinnuvegaráðuneytið

Auglýsing um leigu á ríkis- og eyðijörðinni Lágu - Kotey, Meðallandi, Skaftárhreppi dregin til baka

Vegna þess ástands sem skapast hefur á mörgum bújörðum vegna öskufalls úr Eyjafjallajökli, hefur ráðuneytið ákveðið að ráðstafa Lágu - Kotey tímabundið í þágu þeirra sem búa við mesta erfiðleika vegna eldgossins.