ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
22 október 2010
/
Forsætisráðuneytið

Ráðherrar á skólabekk

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu forsætisráðherra um að fela Stjórnsýsluskóla Stjórnarráðsins að skipuleggja fræðslu fyrir ráðherra og aðstoðarmenn þeirra um stjórnsýslu- og upplýsingarétt ásamt fræðslu um jafnréttismál og siðareglur. Jafnframt verður farið yfir lagareglur sem um ráðherrastarfið gilda og yfir starfshætti ríkisstjórnar í alþjóðlegum samanburði.

Þetta er annað verkefni Stjórnsýsluskólans sem nýlega var komið á fót en fyrsta verkefnið var fræðsla til starfsmanna Stjórnarráðsins en það sóttu um 50 starfsmenn úr 10 ráðuneytum.