ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
30 desember 2014
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Drög að þingsályktunartillögu um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda 2015-2019
Velferðarráðuneytið leggur hér með fram til umsagnar drög að þingsályktunartillögu um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda 2015–2019. Frestur til að skila ráðuneytinu umsögnum er til 13. janúar 2015.
Þingsályktunin er lögð fram skv. 7. gr. laga um málefni innflytjenda nr. 116/2012. Markmið framkvæmdaáætlunarinnar er að stuðla að samfélagi þar sem allir einstaklingar geta verið virkir þátttakendur óháð þjóðerni og uppruna.
Umsagnir skal senda ráðuneytinu á netfangið postur@vel.is og skrifa í efnislínu: Umsögn vegna framkvæmdaáætlunar í málefnum innflytjenda.